Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. júlí 2026 21:01 Brasilíska knattspyrnukonan missti algjörlega hausinn og stefndi lífi mótherja síns um leið í hættu. @Liberta Depre Brjálæðiskast knattspyrnukonu í úrslitaleik í innanhússfótboltamóti hefur hneykslað marga og fór á mikið flug á samfélagmiðlum. Leikmaðurinn sem trompaðist má ekki taka þátt í íþróttum á svæðinu næstu árin.
Lið RDJ Sport og As Resenhas voru að spila um fyrsta titilinn í Futsal í Eusébio í norður Brasilíu. Innanhússfótboltinn, Futsal, er mjög vinsæll í Brasilíu og Brassar eru heimsmeistarar bæði hjá konum og körlum. Knattspyrnukona sem lék í treyju númer tíu hjá As Resenhas og hún var þegar búin að fella mótherja sinn í gólfið þegar atvikið varð. Hún brást við því í framhaldinu með því að sparka tvívegis í höfuð mótherja síns. Þegar liðsfélagi fórnarlambsins reyndi að verja hana fékk hún að launum hnefahögg frá sama kolklikkaða leikmanni. RDJ Sport var þarna 1-0 yfir en komið var fram í seinni hálfleik. Dómari gerði hlé á leiknum enda allir í miklu uppnámi yfir því hvernig svona gat gerst. Það er eitt að brjóta illa á mótherja eða ýta eða slá frá sér en það er lífshættuleg líkamsárás að sparka ítrekað í höfuð andstæðings á meðan hann liggur hjálparvana í gólfinu. Eftir hlé ákvað dómarinn að halda leik áfram og RDJ Sport vann leikinn á endanum 1-0. Aganefnd íþróttahéraðsins hefur strax komið saman og ákveðið að dæma leikmann í fimm ára bann frá öllum íþróttum. Það má líka búast við því að sú hin sama verði ákærð fyrir líkamsárás og gæti því einnig átt von á fangelsisvist í næstu framtíð. Hér fyrir neðan má sjá þetta sláandi ofbeldi knattspyrnukonunnar. View this post on Instagram A post shared by Voz de Rondônia (@vozdero)
Brasilía Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Falko farinn frá ÍR Körfubolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Íslenski boltinn Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Handbolti Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Fleiri fréttir Haaland sló met Agüero Modric ætlar að halda áfram með Króatíu Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Schalke náði í stig gegn Bayern Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Raphinha nýr fyrirliði Barcelona Rúst hjá Rosenborg Arbeloa í brasi Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Misjafn árangur Íslendingaliðanna Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum 16 ára gamalt myndskeið af Messi vekur athygli Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Hágrét í bílnum með mömmu Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Sjá meira