Guardiola hafði rétt fyrir sér um Rodri Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. júlí 2026 10:01 Rodri fagnar hér með heimsmeistarabikarinn sem hann tók við í leikslok fyrir hönd spænska liðsins. Getty/Ryan Pierse Rodri leiddi Spánverja til heimsmeistaratitilsins í gær og var í framhaldinu kosinn besti leikmaður heimsmeistaramótsins. Það tók hann langan tíma að ná sér af erfiðum hnémeiðslum en hann sýndi á þessu heimsmeistaramóti af hverju hann er besti miðjumaður heims.
Þetta var kjörið tækifæri til að rifja upp spámannsleg orð Pep Guardiola frá því í október síðastliðnum. „Á heimsmeistaramótinu verður Rodri bestur og á næsta tímabili verður Rodri bestur,“ sagði Guardiola á meðan spænski miðjumaðurinn var enn að jafna sig eftir krossbandaslit í hægra hné sem héldu honum frá keppni í um fimmtán mánuði. Hann sneri aftur til keppni með Manchester City fyrir alvöru í janúar og minnti alla á það sem hafði vantað. Það var strax augljóst hversu miklu betur liðið spilaði með hann innanborðs og svo var allt til loka tímabilsins í maí, en samt var hann ekki enn upp á sitt allra besta. View this post on Instagram A post shared by Men in Blazers (@meninblazers) Sumir veltu því jafnvel fyrir sér að hann myndi aldrei ná sér almennilega og ná fyrri hæðum þegar hann leiddi Manchester City á þrennutímabilinu og fékk að launum Gullknöttinn. Yfirburðaframmistaða hans hafði þegar vakið athygli á þessu móti en það sem stóð upp úr var framlag hans þegar hann kom í veg fyrir að Argentína næði skoti á mark í úrslitaleiknum í gær og þá má ekki gleyma frábærum leik hans í sannfærandi 2-0 sigri Spánar á Frakklandi í undanúrslitaleiknum. Það voru ekki aðeins gæði hans með boltann og leikskilningur hans heldur einnig hreyfanleikinn sem spekingar höfðu efast um fyrir mótið. Ekki sannfærandi í fyrstu leikjunum Hann var, eins og spænska liðið, ekki alltaf sannfærandi í fyrstu leikjunum en hélt trausti þjálfarans og sætinu í liðinu. Hann spilaði því betur og betur með hverjum leik og tveir síðustu leikirnir voru hans bestu á mótinu. Guardiola var að tala á þeim tíma þegar Rodri var óþreyjufullur eftir að komast aftur í leik á meðan læknateymi félagsins barðist við að bjarga honum frá sjálfum sér. Mánuðum áður hafði hann snúið aftur í Heimsmeistarakeppni félagsliða í júní og spilað fjóra leiki aðeins átta mánuðum eftir að hafa meiðst í leik í ensku úrvalsdeildinni gegn Arsenal í september 2024. View this post on Instagram A post shared by The Athletic | Football (@theathleticfc) Það hafði truflað endurkomu hans sem náðist ekki fyrr en eftir áramót. Um haustið reyndi Rodri reglulega að gera sig leikfæran og var sýnilega svekktur þegar honum var sagt að hann þyrfti að bíða. Samningur hans hjá City rennur út næsta sumar og félagið hefur gert allt sem það getur til að fá hann til að skrifa undir nýjan samning. Hingað til hefur þeim ekki orðið mikið ágengt, en þeir ætla að ræða við hann aftur eftir heimsmeistaramótið. Minna áberandi eftir því sem hann spilar betur Hæfileiki Rodri til að stjórna hraða liðsins í boltanum bregst ekki og ef eitthvað er þá verður einstaklingsframlag Rodri minna áberandi eftir því sem hann spilar betur. Það er þversögn leikmanns sem heldur hljóðlega uppi skipulagi liðsins svo aðrir geti blómstrað. Þegar hann er í stuði eru sendingarnar óaðfinnanlegar og andstæðingurinn er innikróaður, ófær um að sleppa þar sem hann sankar að sér öllum lausum boltum á miðjunni. Það sást á þessu móti og það sáu sérfræðingarnir sem stóðu að valinu á besta leikmanni mótsins.
HM 2026 í fótbolta Enski boltinn Manchester City Mest lesið „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Íslenski boltinn Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Fótbolti Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Íslenski boltinn Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Enski boltinn Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Enski boltinn „Stemning í hópnum og við reynum að láta verkin tala“ Sport „Óöruggir og við þurfum að laga það“ Sport Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Enski boltinn Fleiri fréttir Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Arteta vill bæta við hópinn í dag Gata nefnd í höfuð Salah í Tyrklandi „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sjáðu Stjörnuna klára Blika Sveindís skoraði í langþráðum sigri Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Barcelona með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Vandræði Sønderjyske halda áfram þegar liðið tapaði manni færri Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Glódís Perla hélt hreinu þegar lið hennar jafnaði met „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Messi leggur landsliðsskóna á hilluna Sjáðu þrennu Hlínar Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Af Skaganum til Lyngby Nýtur frelsis undir stjórn Mourinho Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjá meira