Infantino veðurtepptur og Spánn hætti við æfingu Ágúst Orri Arnarson skrifar 19. júlí 2026 11:17 Spánverjar gátu ekki æft í gær. Gianni Infantino forseti FIFA komst ekki á bronsleik HM í Miami og Spánn þurfti að hætta við síðustu æfinguna fyrir úrslitaleikinn vegna ofsaveðursins sem gekk yfir New York borg í gær. Argentína slapp með skrekkinn.
Infantino hefur mætt á nær alla leiki HM í sumar en sást hvergi í stúkunni þegar England vann 6-4 sigur gegn Frakklandi í leiknum um þriðja sætið í gær. Veðuraðstæður í New York leiddu til þess að flugi Infantino var aflýst og forsetinn sat veðurtepptur á skrifstofum FIFA í Trump turni. Hann hafði flogið til New York á föstudeginum til að halda blaðamannafund með Donald Trump, Bandaríkjaforseta. Vegna þrumuveðursins og eldingahættu þurfti spænska landsliðið líka að hætta við æfingu, síðustu æfingu liðsins fyrir úrslitaleikinn í kvöld gegn Argentínu, sem var upphaflega frestað en síðan aflýst. Leikmenn færðu sig inn í lyftingarsal. Spænska landsliðið lenti líka í vandræðum vegna veðurs á fimmtudag en þá æfðu leikmenn í hættulegum aðstæðum af völdum loftmengunar vegna skógarelda. Lamine Yamal var að glíma við áverka síðan í undanúrslitaleiknum gegn Frakklandi og tók lítinn þátt í þeirri æfingu. Argentínska landsliðið æfði í Atalanta á fimmtudag en flaug til New York á föstudag og rétt slapp við eldingaviðvörunina í gær. Argentína náði að æfa, eftir frestun, á velli í um 8 kílómetra fjarlægð frá æfingasvæði Spánar. Lionel Messi og félagar náðu að æfa í gær. Elsa/Getty Images Búist er við betra veðri þegar úrslitaleikur HM fer fram í kvöld en líklega mun rigna töluvert í dag í aðdraganda leiksins. Fylgst verður grannt með framþróun mála en ekki er búist við töfum eða frestun á úrslitaleiknum.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Fleiri fréttir „Ég er ekki Mohamed Salah“ Parker nýr þjálfari West Ham Þorláki sagt upp í Sádi-Arabíu FH fær miðvörð aftur heim Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ „Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Sjá meira