Messi þarf að minnsta kosti tvennu til að taka fram úr Mbappé Ágúst Orri Arnarson skrifar 19. júlí 2026 10:02 Lionel Messi og Kylian Mbappé mætast ekki í úrslitaleiknum þetta árið en kljást um gullskóinn. Zhizhao Wu/Getty Images Eftir markaregn í bronsleiknum er Kylian Mbappé orðinn markahæsti leikmaður á HM 2026 og í keppninni frá upphafi. Lionel Messi þarf að minnsta kosti tvö mörk til að taka fram úr honum.
Fastlega er gert ráð fyrir því að Messi bindi enda á farsælan landsliðsferil eftir úrslitaleikinn milli Argentínu og Spánar í kvöld. Hann hefur unnið nánast allt sem hægt er að vinna á sínum ferli, en aldrei verið markahæsti leikmaður HM. Eftir villtan og trylltan leik tíu marka leik Englands og Frakklands í gærkvöld er Kylian Mbappé kominn með 10 mörk og 4 stoðsendingar á HM í sumar, 22 mörk í 22 leikjum í heildina. Messi hefur skorað 8 mörk og gefið 4 stoðsendingar á HM í sumar, en mun eftir úrslitaleikinn í kvöld vera kominn með fleiri mínútur en Mbappé. Tvenna myndi því ekki duga Messi til að vinna gullskóinn á HM heldur þyrfti hann þrennu, eða tvennu og eina stoðsendingu. Nema hann skori tvennu og spili minna en 57 mínútur, sem telst ólíklegt. Tvenna myndi hins vegar duga Messi til að verða aftur markahæsti leikmaður allra tíma á HM en líklega verður Kylian Mbappé, nú 27 ára gamall, enn í fantaformi eftir fjögur ár. Ef Messi skyldi skora þrennu er sigur Argentínu gegn Spáni ansi líklegur. Hann yrði þá fyrsti handhafi gullskósins til að spila fyrir heimsmeistaraliðið síðan Ronaldo skoraði átta mörk fyrir Brasilíu á HM 2002. „Messi skorar í úrslitaleiknum á morgun, ég er alveg viss um það. Messi skorar alltaf,“ sagði Mbappé eftir leikinn gegn Englandi í gær. Mbappé vann einnig gullskóinn á HM 2022 í Katar, þegar Frakkland tapaði fyrir Argentínu í úrslitaleik. Hann gæti orðið fyrsti leikmaður sögunnar til að vinna verðlaunin í tvígang. Mbappé á einn gullskó fyrir, frá HM í Katar 2022. Dan Mullan/Getty Images Messi verður þá að teljast með líklegri mönnum til að vinna gullboltann sem gefinn er besta leikmanni HM. Hann er nú þegar sá eini sem hefur unnið þau verðlaun tvisvar og gæti orðið sá fyrsti til að eignast þrjá gullbolta í kvöld. Nokkuð ljóst er að Lamine Yamal mun verða valinn besti ungi leikmaðurinn, sem eru verðlaun veitt leikmönnum 21 árs og yngri. Liðsfélagi hans hjá Spáni, markmaðurinn Unai Simon, þykir líklegastur til að vinna gullhanskann en hann hefur aðeins fengið eitt mark á sig í sjö leikjum hingað til.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir Veðmálasvindl tengt Ballon d'Or á borði lögreglu Hópurinn sem gæti komið Íslandi á EM Dreymir um að sjá framherjapar Íslands í ensku úrvalsdeildinni „Ef menn geta ekki hagað sér núna þá er eitthvað mikið að“ „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Arnar kynnti landsliðshópinn „Ég er ekki Mohamed Salah“ Parker nýr þjálfari West Ham Þorláki sagt upp í Sádi-Arabíu FH fær miðvörð aftur heim Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ „Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu Sjá meira