Sá þriðji sem jafnar vallarmetið Ágúst Orri Arnarson skrifar 18. júlí 2026 13:41 Ryan Fox fór hringinn á 62 höggum á Royal Birkdale vellinum. David Cannon/Getty Images Ryan Fox átti frábæran hring á Opna breska meistaramótinu og jafnaði vallarmetið á Royal Birkdale vellinum þegar hann kom í hús á 62 höggum. Hann er sá þriðji á mótinu sem jafnar vallarmetið og situr nú jafn Lucas Herbert í efsta sæti stöðutöflunnar.
Lucas Herbert varð fyrstur til að jafna vallarmetið í gær og Sam Burns fylgdi honum fljótt eftir. Ólíkt þeim tveimur fékk Ryan Fox skolla á sínum hring. Fox fór fyrri níu holurnar á 29 höggum, einu höggi meira en Herbert. Hann lækkaði sig enn frekar með fugli á tíundu holu en eftir tvö pör skellti hann í skolla á þrettándu holu. Þá virtist vallarmetið vera úr augsýn en Fox átti eftir að ná þremur fuglum á síðustu fimm holunum til að jafna metið. A third record-equalling 62 at The 154th Open.Ryan Fox writes his name in history. pic.twitter.com/PQ05HSdmNR— The Open (@TheOpen) July 18, 2026 Með frammistöðu sinni í dag stökk Fox upp um 51 sæti á stöðutöflunni. Hann var á pari eftir fyrstu tvo dagana en er nú átta höggum undir pari, jafn Lucas Herbert í efsta sæti mótsins. Herbert leggur af stað á sinn hring innan skamms en þeir eru báðir í séns á að vinna risamót í fyrsta sinn á ferlinum. Xander Schauffele var með Fox í holli og spilaði sömuleiðis fínasta hring í dag. Schaufelle fór á 66 höggum, fjórum minna en Fox, og stökk upp um 42 sæti í 10. sæti mótsins.
Golf Opna breska Tengdar fréttir Tveir kylfingar jafna besta hringinn á risamóti Ótrúlegar senur voru á Opna breska risamótinu í golfi þegar tveir kylfingar jöfnuðu vallarmet Royal Birkdale-vallarins þar sem mótið er haldið. Lucas Herbert jafnaði vallarmetið og stuttu seinna gerði Sam Burns slíkt hið sama. 17. júlí 2026 14:01 Stuttu pútti frá besta hring sögunnar Ástralinn Lucas Herbert náði aðeins að jafna besta hring í sögu risamótanna í golfi, þegar hann jafnaði vallarmet á Royal Birkdale vellinum með 62 högga hring. Hann var hársbreidd frá því að slá metið en klikkaði á metra löngu pútti. 17. júlí 2026 13:27 Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira
Tveir kylfingar jafna besta hringinn á risamóti Ótrúlegar senur voru á Opna breska risamótinu í golfi þegar tveir kylfingar jöfnuðu vallarmet Royal Birkdale-vallarins þar sem mótið er haldið. Lucas Herbert jafnaði vallarmetið og stuttu seinna gerði Sam Burns slíkt hið sama. 17. júlí 2026 14:01
Stuttu pútti frá besta hring sögunnar Ástralinn Lucas Herbert náði aðeins að jafna besta hring í sögu risamótanna í golfi, þegar hann jafnaði vallarmet á Royal Birkdale vellinum með 62 högga hring. Hann var hársbreidd frá því að slá metið en klikkaði á metra löngu pútti. 17. júlí 2026 13:27