DeChambeau refsað eftir hringinn og dettur niður í fimmta sæti Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. júlí 2026 22:01 Bryson DeChambeau hélt að hann væri í öðru sæti eftir daginn en fékk tveggja högga refsingu. Getty/Kate McShane Bandaríski kylfingurinn Bryson DeChambeau fékk í kvöld tveggja högga víti eftir annan hring sinn á 154. Opna breska meistaramótinu í golfi, The Open. Honum var refsað fyrir að bæta legu sína í háu grasi fyrir annað högg sitt á fimmtu holu.
DeChambeau hafði komist einn í annað sætið á sjö höggum undir pari, einu höggi á eftir Lucas Herbert sem var í forystu, eftir að hafa leikið á 66 höggum, eða 4 höggum undir pari. Grant Moir, framkvæmdastjóri reglumála hjá R&A, sagði í yfirlýsingu að DeChambeau hefði fengið tveggja högga víti „fyrir að bæta óviljandi svæðið fyrir fyrirhugaða sveiflu sína, þ.e.a.s. fyrirhugaða baksveiflu á 5. holu þegar hann lék annað högg sitt.“ Í yfirlýsingunni bættist við: „Bót á aðstæðum þýðir að breyta einu eða fleiri af þeim skilyrðum sem hafa áhrif á höggið þannig að leikmaðurinn öðlist hugsanlegt forskot fyrir höggið. Ég vil leggja áherslu á að þetta á við jafnvel þótt aðgerðin sé óviljandi, eins og var í tilfelli Brysons.“ Tveggja högga vítið breytti skori DeChambeau í 68 og færði hann niður í jafnt fimmta sæti á 5 höggum undir pari eftir 36 holur. Bryson DeChambeau has received a 2-shot penalty for improving his lie on the 5th hole.Live From The Open is breaks down the incident now on Golf Channel ⬇️ pic.twitter.com/aktl1kK8dv— Golf Channel (@GolfChannel) July 17, 2026
Opna breska Golf Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Liverpool - Arsenal | Englandsmeistararnir mæta í Bítlaborgina Sport Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira