Stuttu pútti frá besta hring sögunnar Ágúst Orri Arnarson skrifar 17. júlí 2026 13:27 Herbert fleygði kylfunni frá sér þegar púttið klikkaði. Stuart Kerr/R&A/R&A via Getty Images Ástralinn Lucas Herbert náði aðeins að jafna besta hring í sögu risamótanna í golfi, þegar hann jafnaði vallarmet á Royal Birkdale vellinum með 62 högga hring. Hann var hársbreidd frá því að slá metið en klikkaði á metra löngu pútti.
Vallarmetið, 62 högg Suður-Afríkumannsins Branden Grace árið 2017, stendur því enn. Það met er einnig met yfir fæst högg á einum hring á öllum fjórum risamótunum í golfi; Opna breska, Opna bandaríska, PGA meistaramótinu og Masters. Herbert virtist ætla að slá metið en missti pálmann úr höndum sér á átjándu holu. Stressið var farið að segja til sín þegar Herbert tók teighögg á sautjándu holu, eftir að hafa náð fugli á sextándu holu sem kom honum niður fyrir mörk metsins. Teighögg hans á sautjándu holu hitti ekki brautina, en fram að því höfðu öll nema eitt teighögg hans hitt braut. Herbert ásamt kylfusveini sínum. Stuart Kerr/R&A/R&A via Getty Images Herbert náði að bjarga sér með frábæru þriðja höggi, púttaði svo fyrir fugli en hitti ekki og kláraði sautjándu holuna á pari, fimm höggum, sem hélt honum undir mörkum metsins. Á átjándu holu lenti Herbert aftur í vandræðum með upphafshögg sitt, sem fór út af braut og lenti hjá áhorfendaskaranum. En líkt og á sautjándu holu náði hann að bjarga sér vel. Herbert lagði vel upp og var um metra frá holunni, með tækifæri til að slá metið, en klikkaði á pútti sem hefði skráð hann á spjöld sögunnar. Hann hitti svo úr næsta höggi, jafnaði vallarmetið, en var sjáanlega svekktur að hafa ekki náð að slá það. Millimetres from men's major history. An incredible card of 62 from clubhouse leader Lucas Herbert. pic.twitter.com/IlREzoAMfD— The Open (@TheOpen) July 17, 2026 Ekki náð í gegnum niðurskurð í tvö ár Þrátt fyrir svekkelsið undir lokin er þetta magnaður árangur hjá Herbert og hann er efstur á stöðutöflunni sem stendur, búinn að koma sér í góða stöðu fyrir helgina. Besti árangur Herberts á risamóti fram að þessu er 13. sæti á PGA meistaramótinu árið 2022. Hingað til hafði hann aðeins náð niðurskurði á níu af sautján risamótum sem hann hefur tekið þátt í. Hann hefur þrisvar unnið mót á Evrópumótaröðinni, einu sinni fagnað sigri á PGA mótaröðinni og unnið eitt mót síðan hann skipti yfir á LIV-mótaröðina árið 2024. Síðustu tvö ár hefur Herbert aðeins spilað á tveimur risamótum, Opna breska í fyrra og Opna bandaríska í ár, en ekki náð í gegnum niðurskurð. Sigurstranglegri en Scheffler Fram að þessum hring hafði Scottie Sheffler, ríkjandi meistari Opna breska og efsti kylfingur heimslistans, verið talinn sigurstranglegastur af veðbönkum. Nú er Herbert talinn líklegastur til að fagna sigri á sunnudag.
Golf Opna breska Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira