„Dapurlegt tímabil í sögu ríkis okkar“ Valur Páll Eiríksson skrifar 15. júlí 2026 11:00 Lionel Scaloni, þjálfari Argentínu, segir sína menn ekki á leið í stríð þrátt fyrir deilur sem utanríkisráðherra ríkis hans hefur ýft upp í vikunni. Julian Finney/Getty Images Lionel Scaloni, landsliðsþjálfari Argentínu, var snöggur að skjóta niður pólitískar spurningar er tengjast deilum ríkis hans við Breta um Falklandseyjar. Utanríkisráðherra ríkisins hafði nýtt tækifærið og ýft upp gömul sár í vikunni.
Töluverð saga er milli landanna tveggja og rígurinn töluverður. Þau háðu stríð um Falklandseyjar, umráðasvæði Breta í nánd við Argentínu, árið 1982. Átökin vörðu í 74 daga þar sem 649 argentínskir hermenn létust, 255 breskir hermenn og þrír óbreyttir borgarar. Meira og minna allir rúmlega 3.600 íbúar Falklandseyja eru breskir og allir nema þrír íbúar eyjanna kusu með því að vera áfram hluti af Bretlandi árið 2013. Pablo Quirno, utanríkisráðherra Argentínu, skrifaði langan pistil í La Nación, einum víðlesnasta miðli landsins, í vikunni þar sem hann minnti á að deilunni um Falklandseyjar væri hvergi nærri lokið. Hann segir atkvæðagreiðsluna frá árinu 2013 hafa farið ólöglega fram og hún réttlæti ekki ólögmæta landtöku Breta á svæðinu fyrir tæpum 200 árum síðan. Rugla þessu ekki saman Lionel Scaloni, þjálfari landsliðs Argentínu, var spurður út í deiluna á blaðamannafundi fyrir leik Englands og Argentínu í undanúrslitum á HM karla í fótbolta í kvöld. Hann talaði deiluna niður og vildi forðast pólitískt tal. „Raunveruleikinn er sá að þetta er bara fótboltaleikur. Það má ekki rugla því saman, sérstaklega af virðingu við það sem gerðist fyrir öllum þessum árum síðan,“ segir Scaloni og bætir við: „Það var dapurlegt tímabil í sögu ríkis okkar, og það er ekki mikið sem við getum í því gert. Það er raunveruleikinn,“ „Hlutir ganga á annarsstaðar í heiminum og við gagnrýnum tilvist stríðsátaka. Við minnumst þessa fólks, að sjálfsögðu. En þetta er fótboltaleikur og við skulum ekki rugla þessu tvennu saman,“ segir Scaloni. Hver er sagan á fótboltavellinum? Ekki síður er saga milli þeirra innan fótboltavallarsins. Það nær aftur til ársins 1966 en England sló Argentínu úr leik á HM á heimavelli það árið. Argentínumenn sökuðu þá ensku um dómarasvindl og öll landslið Suður-Ameríku hótuðu eftir þann leik að segja sig frá FIFA. Þess leiks er hvað helst minnst fyrir framgöngu Antonio Rattin, fyrirliða Argentínu, sem neitaði að fara af velli þegar dómarinn vísaði honum út af. Hann sagðist ekki skilja þýskan dómara leiksins og úr varð mikið havarí. Hann krumpaði enskan fána og kastaði í jörðina áður en hann settist á rauðan dregil sem var frátekinn fyrir Elísabetu drottningu. Það atvik leiddi til þess að FIFA kynnti til sögunnar gul og rauð spjöld til að áminna og vísa mönnum af velli, svo tungumálaörðugleikar flæktust ekki fyrir. Rattin lést á laugardaginn var og Argentínumenn minntust hans fyrir sigur sinn við Sviss í 8-liða úrslitum. Hendi guðs hjálpaði Maradona. Diego Maradona skoraði tvö frægustu mörk í sögu HM í leik við Englendinga á HM 1986 þar sem Argentína sló England út í 8-liða úrslitunum. Annað skoraði hann eftir að hafa hlaupið völlinn endilangan og leikið á hálft enska liðið áður en hann renndi boltanum í netið. Hitt með hendinni, án þess að dómarinn sæi til, og hefur það mark gjarnan verið sagt skorað með hendi Guðs. Beckham varð skúrkur heima fyrir eftir rauða spjaldið árið 1998. Fjórum árum síðar var hann hetjan er hann tryggði Englandi sigur gegn Argentínumönnum á HM 2002 í Japan og Suður-Kóreu.Adam Butler - PA Images/PA Images via Getty Images Liðin spiluðu einnig frægan leik á HM 1998 þar sem David Beckham var vísað af velli fyrir brot á Diego Simeone. Gera má ráð fyrir að þeir félagar verði báðir í stúkunni á miðvikudagskvöldið en Argentína sló þar Englendinga út einnig, eftir vítaspyrnukeppni. Beckham svaraði fyrir rauða spjaldið fjórum árum fyrr þegar hann skoraði sigurmarkið af vítapunktinum í 1-0 sigri á Argentínu á HM 2002. Það var í riðlakeppninni en England fór áfram og Argentína féll úr leik. Síðan þá hafa liðin ekki mæst, að undanskildum æfingaleik sem England vann 3-2 árið 2005. Lionel Messi lék ekki þann leik og hefur því aldrei mætt enska landsliðinu á löngum ferli sínum sem telur 205 landsleiki aftur til ársins 2005.
HM 2026 í fótbolta Argentína England Bretland Enski boltinn Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Liverpool - Arsenal | Englandsmeistararnir mæta í Bítlaborgina Sport Segir félagið í skítnum Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Fleiri fréttir Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Njarðvík sagði upp samningi við Smit Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Freyr að eignast markakóng eftir enn einn sigurinn Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Sjá meira