Morðið á Ann Widdecombe var „markviss árás“ Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 14. júlí 2026 16:57 Ann Widdecombe var 78 ára gömul. AP Breska hryðjuverkalögreglan segir morðið á stjórnmálakonunni Ann Widdecombe hafa verið markvissa árás. 28 ára gamall maður er í haldi lögreglu.
Laurence Taylor, yfirmaður hryðjuverkalögreglunnar, ávarpaði blaðamenn á höfuðstöðvunum við New Scotland Yard síðdegis í dag. Hann sagðist ekki geta veitt nema takmarkaðar upplýsingar enda um virka morðrannsókn að ræða. „Þó er ljóst að um markvissa árás var að ræða.“ Hann sagði umfangsmikla rannsókn standa yfir á skipulagningu, undirbúningi og hvata morðingjans. Hann sagðist ekki geta tjáð sig um hvort litið væri á morðið sem hryðjuverk og hvort það beindist þá gegn Endurbótaflokki Nigel Farage. Hin 78 ára gamla Ann Widdecombe var áður ráðherra Íhaldsflokksins en gekk síðan til liðs við Endurbótaflokkinn. Hryðjuverkarannsókn standi yfir samhliða morðrannsókn að sögn Laurence. Hvort hinn grunaði hafi skipulagt fleiri voðaverk eða haft önnur skotmörk til viðbótar við Widdecombe gat hann heldur ekki tjáð sig um. Hinn grunaði sem er í haldi lögreglu er 28 ára gamall hvítur Breti. Hann var handtekinn á heimili sínu í gær í Rotherham. Fyrst var 26 ára gamall maður handtekinn í bæ skammt undan morðvettvanginum en hann var látinn laus á laugardaginn.
Bretland England Morðið á Ann Widdecombe Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fleiri fréttir Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Sjá meira