„Þetta er svo hörmulegur dómur, án gríns“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 14. júlí 2026 07:59 Marin Mudrazija trúði ekki sínum eigin augum þegar mark var dæmt af honum eftir rúmlega hálftíma í leiknum gegn Breiðabliki í gær. sýn sport Sérfræðingar Stúkunnar telja að Keflvíkingar hafi verið hlunnfarnir af dómurum leiksins gegn Blikum í Bestu deild karla í gær. Mark var dæmt af Keflavík í fyrri hálfleik.
Á 33. mínútu leiksins á Eikarvellinum í Kópavogi í gær tók Mohamed Alghoul aukaspyrnu á vallarhelmingi Breiðabliks og sendi boltann inn á vítateiginn. Þar var Marin Mudrazija og stýrði boltanum í netið og hélt að hann hefði komið Keflavík í 0-2. En aðstoðardómarinn lyfti flaggi sínu til marks um rangstöðu. Að mati Alberts Ingasonar og Sigurbjörns Hreiðarssonar hefði markið átt að standa. „Þetta er svo hörmulegur dómur, án gríns,“ sagði Albert í Stúkunni í gærkvöldi. Klippa: Stúkan - mark dæmt af Keflavík „Hvað er hann að dæma? Á líkum?“ spurði Sigurbjörn forviða og Albert bætti við að línuvörðurinn sem dæmdi markið af hefði eflaust ekki áttað sig á því hver það var sem skoraði. „Hann er eins langt fyrir innan og hægt er. Ef þetta er einhver dómur er þetta áfellisdómur,“ sagði Albert. „Þetta er eins mikið bull og það verður. Þetta er pjúra mark,“ bætti Sigurbjörn við. Keflavík var 0-1 yfir í hálfleik þökk sé marki Alpah Conteh á 24. mínútu. Leikmenn Breiðabliks sóttu í sig veðrið í seinni hálfleik og Jónatan Guðni Arnarsson jafnaði á 57. mínútu. Þegar ein mínúta var eftir skoraði Kristinn Jónsson svo sigurmark Blika, 2-1. Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, kvaðst mjög ósáttur við dómgæsluna í samtali við íþróttadeild eftir leikinn í gær. „Við erum ofan á í löngum hluta leiksins og skorum löglegt mark í 2-0 þar sem er dæmd rangstaða á einhvern ótrúlegan hátt. Ég skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki. Þetta er bara magnað,“ sagði Haraldur í leikslok. Keflavík er í 6. sæti Bestu deildarinnar með sextán stig eftir fjórtán leiki. Innslagið úr Stúkunni má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Besta deild karla Breiðablik Keflavík ÍF Stúkan Mest lesið Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ Fótbolti Fleiri fréttir Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Sjá meira