„Búnir að þróa með sér spilafíkn áður en þeir byrja að veðja“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 14. júlí 2026 08:06 Alma Hafsteinsdóttir rekur síðuna spilavandi.is. Spilafíkniráðgjafi segir vísbendingar um að spilafíkn sé að aukast í samfélaginu. Markhópurinn sé ungir drengir sem jafnvel þróa með sér spilafíkn áður en þeir hafi nokkurn tímann veðjað. Slík fíkn geti haft alvarleg áhrif á líf og vellíðan fólks. „Þessi vandi er ekki að fara og það bendir allt til þess að hann sé að aukast frekar en hitt. Við erum að sjá að markhópurinn er ungir drengir,“ segir Alma Hafsteinsdóttir spilafíkniráðgjafi sem ræddi málin í Reykjavík síðdegis í gær. Hún telur að markhópurinn sé á aldrinum fimmtán til þrjátíu ára. Þrátt fyrir að ungmenni hafi ekki leyfi til þess að taka þátt í fjárhættuspilum séu ýmsar leiðir til að komast fram hjá aldurstakmörkum. „Síðan er náttúrulega hitt og það er það sem við höfum svolítið verið að reyna að fá stjórnvöld til að skoða og það eru þessi „lootbox“ í tölvuleikjum.“ Hægt er að festa kaup á slíkum boxum í tölvuleikjum en ekki liggur fyrir hvað er inni í slíku fyrr en búið er að kaupa það. „Það virkar þannig að fólk getur verið að leggja undir eða þróa með sér þessi karaktereinkenni spilafíknar í tölvuleikjum þannig að við erum jafnvel með einstaklinga sem hafa ekki stundað fjárhættuspil, hafa verið í tölvuleikjum og eru í rauninni búnir að þróa með sér spilafíkn áður en þeir byrja nokkurn tímann að veðja.“ Með fíkninni fylgi skömm Ekki sé hægt að vera í ábyrgri neyslu fjárhættuspila þar sem vandinn við spilafíkn er að hún gengur ekki til baka. Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígs- eða sjálfsskaðahugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar 1700, netspjallið á heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins 1717, netspjallið á 1717.is og Píeta símann 552-2218 sem opinn er allan sólarhringinn. „Þú getur hætt og haldið þessu í skefjum og verið í því sem við köllum bata frá fjárhættuspilum eða í bata í spilafíkn. En tölfræðin er allavega ekki með þér ef þú ætlar að prófa og ég hef aldrei heyrt af einhverjum sem hefur misst tökin á fjárhættuspilum, náð tökum á því og er að blómstra,“ segir Alma. Einn af hverjum fjórum sem hafi þróað með sér spilafíkn hafi ýmist gert tilraun til eða íhugað að taka sitt eigið líf. „Þetta eru gríðarlega háar tölur og það sem er kannski líka áhugavert og í rauninni bara hræðilegt er að við missum þennan hóp svolítið úr samfélaginu.“ Alma telur að fíkninni fylgi oft skömm þar sem oft er viðkomandi kominn í miklar skuldir og búinn að eyða öllum peningum sem hann á. Hún hafi sjálf séð tilfelli þar sem einstaklingur með spilafíkn eyddi tveimur til fjórum milljónum á sólarhring. Þeir sem glími við spilafíkn séu einnig líklegri til að draga sig út úr vinahópnum og mæta illa í nám eða vinnu. Myndu aldrei leggja lögleiðingu til Birgir Örn Steinarsson sálfræðingur sagði í viðtali í hádegisfréttum Bylgjunnar í gær að áhrifavaldar sem auglýsi veðmálasíður verði að líta í eigin barm. „Ég hef aldrei skilið þetta vegna þess að oft og tíðum eru þetta einstaklingar sem hafa sjálfir farið í meðfer,ð til að mynda við áfengis- eða vímuefnavanda, og eru að prómótera sjálfa sig sem heilbrigða og búna að ná tökum en eru svo að auglýsa fjárhættuspil,“ segir Alma. „Mér finnst það galið að sjá þessa ungu stráka sem hafa heldur betur neikvæða upplifun og reynslu af fíkniefnaheiminum og svona afleiðingum sem því fylgja, að þeir skuli láta sér detta í hug að auglýsa fjárhættuspil.“ Fjöldi ungmenna líti upp til áhrifavaldanna sem séu oft ekki einu sinni að veðja sínum eigin peningum heldur greiði fyrirtækin fyrir veðmál áhrifavaldanna. „Ég átta mig ekki á því af hverju íslensk stjórnvöld eru úti á túni. Ég skil það ekki að þetta skuli fá að viðgangast og þessi spretthópur sem hafði það markmið að finna einhverja blandaða leið. Ég skil ekki hvað fólki gengur til,“ segir Alma. „Þeir sem hafa reynslu af þessu eða hafa orðið fyrir áhrifum af spilafíkn myndu aldrei nokkurn tímann leggja það til að þetta yrði löglegt, aldrei.“ Fjárhættuspil Reykjavík síðdegis Bylgjan Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Bíði og bíði eftir Bjarna Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Fleiri fréttir Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Sjá meira
„
Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígs- eða sjálfsskaðahugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar 1700, netspjallið á heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins 1717, netspjallið á 1717.is og Píeta símann 552-2218 sem opinn er allan sólarhringinn.
Fjárhættuspil Reykjavík síðdegis Bylgjan Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Bíði og bíði eftir Bjarna Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Fleiri fréttir Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Sjá meira