Rannsaka morð Widdecombe sem hryðjuverk Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 13. júlí 2026 14:02 Ann Widdecombe á ársfundi Umbótaflokksins árið 2024. Getty/Ioannis Alexopoulos Hryðjuverkalögreglan í Bretlandi hefur tekið við rannsókn á andláti Ann Widdecombe sem talin hafa verið myrt. Þessi breyting varð eftir að „nýjar upplýsingar og sönnunargögn“ litu dagsins ljós.
28 ára hvítur breskur karlmaður var handtekinn um helgina grunaður um að hafa orðið Widdecombe, fyrrverandi ráðherra, að bana. Hann hefur verið handtekinn aftur grunaður um að hafa framið, undirbúið eða hvatt til hryðjuverka samkvæmt BBC. „Við erum að rannsaka margar vísbendingar til að komast að ástæðu árásarinnar,“ sagði Laurence Taylor, yfirmaður hryðjuverkalögreglunnar. Á fimmtudag fannst Widdecombe, þá 78 ára, látin á heimili sínu með alvarlega áverka. Talið er að hún hafi orðið fyrir árás sólarhring áður en hún fannst. Fyrst var talið að meint morð hefði ekki haft pólitíska hvata. Nýja tilkynningin kemur í kjölfar þess að The Sun birti upptöku úr eftirlitsmyndavél þar sem sjá má hinn grunaða, klæddan í hvíta skyrtu og stuttbuxur, fara inn í rauðan bíl snemma á miðvikudagsmorgun. Fjarlægðin milli staðsetningar hins grunaða og heimilis Widdecombe er um 430 kílómetrar sem BBC telur að taki fjóra og hálfa klukkustund að aka. Widdecombe var þingmaður Íhaldsflokksins í 23 ár og gegndi ráðherraembætti árin 1994 til 1997. Hún gekk til liðs við Brexit-flokkinn árið 2019 og var þingmaður hans árin 2019 og 2020.
Bretland England Morðið á Ann Widdecombe Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Fleiri fréttir Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Sjá meira