Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Sindri Sverrisson skrifar 12. júlí 2026 08:02 Mikkel Hansen bregður fyrir í stiklunni úr myndinni. Youtube/Angel Films Danska handboltastjarnan Mikkel Hansen, sem lagði skóna á hilluna eftir ólympíumeistaratitilinn sumarið 2024, leikur sjálfan sig í danskri bíómynd sem fjallar um handboltastrák sem lagður er í grimmilegt einelti.
Myndin ber heitið Yfir strikið og byggir á sannri sögu rithöfundarins Ahrnt Clausen, og upplifun hans sem föður drengs sem lagður var í einelti. Ejgil Riis Hansen leikur drenginn og Martin Greis-Rosenthal pabbann en Hansen bregður einnig fyrir í myndinni sem verður frumsýnd í nóvember. Stiklu úr myndinni má sjá hér að neðan. Hansen þekkir það sjálfur að hafa verið lagður í einelti, og að hafa lagt aðra í einelti, eins og hann ræddi um þegar hann stofnaði samtök gegn einelti árið 2015. Þau samtök lifa enn góðu lífi og hafa heitið Hej Fonden frá árinu 2022, þegar kollegar Hansen úr handboltanum, Mathias Gidsel og Mie Höjlund, bættust í hópinn og gerðust stjórnarmeðlimir. „Ég hef sjálfur mátt þola það að vera lagður í einelti og ég hef sjálfur tekið þátt í að leggja aðra í einelti þegar ég var yngri. Þannig að þetta er auðvitað tilraun til að sýna öðrum að þeir ættu helst ekki að falla í þá gryfju,“ sagði Hansen þegar hann stofnaði samtökin. Hann tók einnig þátt í því árið 2016 að hleypa af stokkunum herferðinni Antibulli, gegn einelti, ásamt Mary Fonden — sjóðnum sem María Danadrottning stýrir og berst gegn því að fólk einangrist. Yfir strikið ku vera fyrsta kvikmyndin sem Hansen leikur í. Tvö ár eru síðan að hann lagði skóna á hilluna eftir einstakan feril þar sem hann vann meðal annars þrjá heimsmeistaratitla, tvo ólympíumeistaratitla og einn Evrópumeistaratitil, með danska landsliðinu, auk fjölda meistaratitla með félagsliðum sínum.
Handbolti Mest lesið „Ég er rasisti og ég gerði þetta viljandi“ Sport Infantino hættir við allt saman Fótbolti „Ég mun að minnsta kosti sofa vel í nótt“ Fótbolti „Þetta er mikið áfall fyrir okkur“ Íslenski boltinn JP Morgan veldur fjaðrafoki í annað sinn Fótbolti Konurnar fyrsta fórnarlambið eftir útspil Infantino Fótbolti Ný heimildarmynd um banaslys Ólympíumeistarans Sport ÍBV - Fram | Þjóðhátíðarleikur í Dalnum Íslenski boltinn Sagði nei við Love Island og vann svo silfur á Samveldisleikunum Sport Vinícius á förum? Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir áfram með fullt hús Ungverjagrýlan hrjáir ekki U18 lið Íslands Yngsti Skipagötu-bróðirinn skoraði þrettán mörk í fyrsta leik á EM Fjórtán marka stórsigur í fyrsta leik Var sagt upp á stórafmælinu og er haldinn út í heim Besti handboltamaður heims fór í markið Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Sjá meira