Atvinnulíf

Í­myndaðu þér ef yfir­maðurinn væri eins og Trump

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Það er hlýtt á milli okkar sagði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra um Trump á dögunum. En hversu lengi mun það vara? Ófyrirsjáanlegur stjórnunarstíll einkennir Trump, sem meðal annars hefur lofað, gagnrýnt og gert lítið úr Meloni forsætisráðherra Ítalíu sem einnig sést á myndinni og taldi sig eiga í góðu sambandi við Trump um tíma.
Það er hlýtt á milli okkar sagði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra um Trump á dögunum. En hversu lengi mun það vara? Ófyrirsjáanlegur stjórnunarstíll einkennir Trump, sem meðal annars hefur lofað, gagnrýnt og gert lítið úr Meloni forsætisráðherra Ítalíu sem einnig sést á myndinni og taldi sig eiga í góðu sambandi við Trump um tíma. Vísir/Getty

Heimurinn vaknar við það daglega að vita aldrei upp á hverju Trump tekur næst. Eða hvað hann skrifaði á Truth Social á meðan við sváfum.

Ófyrirsjáanleikinn er algjör.

En við erum ekki að fara að ræða pólitík.

Heldur stjórnunarstíl.

Því staðreyndin er þessi:

Það er fólk sem þekkir það af eigin raun að vera með yfirmann sem segir eitt á mánudegi, annað á miðvikudegi og neitar svo á föstudegi að hafa nokkurn tímann sagt það fyrsta.

Hugtakið capricious supervision var kynnt til sögunnar árið 2025. Það lýsir stjórnunarstíl þar sem starfsfólk upplifir yfirmann sinn sem ófyrirsjáanlegan og ósamkvæman.

Fólk sem er með svona yfirmann er akkúrat fólkið sem segir:

Ég veit aldrei hvað kemur næst…

Í rannsókninni kemur fram að starfsfólk upplifi að ákvarðanir, væntingar og framkoma yfirmannsins geti breyst með tíðum og ófyrirsjáanlegum hætti. Því geti verið erfitt að vita hvað gildir hverju sinni.

Svolítið eins og við erum að upplifa Trump í fréttum.

Hér er ekki átt við stjórnanda sem endurskoðar ákvarðanir sínar þegar nýjar upplýsingar liggja fyrir. Heldur stjórnanda sem starfsfólk upplifir að breyti leikreglunum með ófyrirsjáanlegum hætti.

Meðal þeirra áhrifa sem rannsóknin tengir við slíkan stjórnunarstíl eru óvissa og gremja hjá starfsfólki, tilfinningaleg örmögnun, lakari svefn og auknar líkur á gagnslausri eða skaðlegri hegðun á vinnustað.

Það sem ruglar fólk síðan enn meira í ríminu er að viðkomandi stjórnandi getur líka verið einstaklega hlýr.

Því svona stjórnandi getur verið hlýr og styðjandi einn daginn en fjarlægur þann næsta, snúið fyrri ákvörðunum við, breytt forgangsröðun án fyrirvara eða hrósað vinnu starfsmanns einn daginn en gagnrýnt nákvæmlega sömu vinnu daginn eftir.

Höfundarnir leggja áherslu á að þegar ófyrirsjáanleiki verður sjálfur að stjórnunarstíl sé hann ekki aðeins pirrandi heldur raunverulegur streituvaldur fyrir starfsfólk.

Er þetta eitthvað sem þú hefur upplifað?


Tengdar fréttir

Helstu einkenni og afleiðingar óttastjórnunar á vinnustöðum

Ef skaðinn er skeður þarf að hreinsa til í stjórnendahópnum segir Bjarni Snæbjörn Jónsson í viðtali um óttastjórnun á vinnustöðum. Hann bendir hins vegar á að það er ekki alltaf svo að rót vandans liggi hjá stjórnanda.

„Þar eru leiðtogar sem virðast hafa eitthvað extra“

„Það gerist oft í krísum að við áttum okkur á því að mögulega þarf vinnustaður að breyta vinnustaðamenningunni. Því það er í krísum sem við áttum okkur á því hvað hjá okkur er ekki að virka,“ segir Eyþór Eðvarðsson stjórnendaþjálfari og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun.

Að læra af fimm mistökum Steve Jobs

Það er ekkert sem kennir okkur jafn góðar lexíur eða styrkir og mistök sem við náum að draga lærdóm af. Því ekkert okkar getur litið í baksýnisspegilinn og ekki séð hvar eða hvernig við hefðum mátt gera betur.

Eru karlmenn í jakkafötum á undanhaldi?

Klæðnaður karlmanna hefur verið nokkuð til umfjöllunar upp á síðkastið. Nú síðast skór sem Donald Trump Bandaríkjaforseti talar víst fyrir að sem flestir af samstarfsmönnum hans noti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×