Röng spurning í réttri umræðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar 9. júlí 2026 07:01 Umræðan um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið er hávær og sitt sýnist hverjum í meira lagi. Báðir hópar færa fram gild rök, leggja áherslu á ólíka þætti og nota orðalag sem styður þeirra málstað. Sum segja að við eigum að sjá hvað er í boði áður en endanleg ákvörðun er tekin. Önnur benda á að aðildarferlið sé vel þekkt, reglurnar skýrar og að ekki sé verið að opna óþekktan pakka heldur fara í ferli sem fjölmörg ríki hafi farið í. Ólík sjónarmið takast á Það er eðlilegt að skiptar skoðanir séu um jafn stórt og mikilvægt mál. Evrópusambandsaðild snertir fullveldi, efnahag, utanríkisstefnu og framtíðarsýn þjóðarinnar. Líklega verður aldrei algjör samstaða um málið sem er styrkleiki lýðræðisins að ólík sjónarmið fái að takast á. Evrópusambandið eða óánægja Í umræðunni er tveimur ólíkum hlutum blandað saman. Annars vegar spurningin um Evrópusambandið sjálft og hinsvegar óánægja með stöðu íslensks samfélags og efnahags; háir vextir, verðtrygging, hár húsnæðiskostnaður, mikill framfærslukostnaður, sveiflur í hagkerfinu og upplifun margra af auknum ójöfnuði eru raunveruleg áhyggjuefni. Það er því eðlilegt að fólk vilji breytingar og leiti nýrra leiða. En þar þarf að staldra aðeins við. Aðild að Evrópusambandinu er ekki efnahagsaðgerð í sjálfu sér og markmið sambandsins er ekki að leysa sértæk efnahagsvandamál einstakra ríkja. Aðild getur vissulega haft margvísleg áhrif bæði jákvæð og neikvæð en hún er ekki sjálfkrafa lausn á þeim áskorunum sem íslenskt hagkerfi stendur frammi fyrir. ESB leið til að laga það Hættan felst í að rugla saman orsök og afleiðingu. Ef fólk er orðið þreytt á efnahagsástandinu er auðvelt að líta á Evrópusambandið sem leið til að laga það. En spurningin sem við þurfum að spyrja er hvort vandamálin sem við viljum leysa séu fyrst og fremst afleiðing þess að Ísland stendur utan Evrópusambandsins eða hvort þau tengist ákvörðunum sem við höfum sjálf tekið sem sjálfstæð þjóð og fullvalda ríki. Það er líka mikilvægt að hafa í huga að Evrópusambandsaðild snýst um miklu meira en vexti, verðbólgu og gjaldmiðil. Hún snýst einnig um hvernig samfélag við viljum byggja. Þar undir falla málefni eins og sjávarútvegur, landbúnaður, matvælaöryggi, byggðastefna, orkumál og hversu mikið svigrúm við viljum hafa til að setja okkar eigin reglur eða taka þátt í sameiginlegri stefnumótun Evrópusambandsins. Hvort sjónarmiðið vegur þyngra Landbúnaður er gott dæmi. Sum telja að aðild geti skapað ný tækifæri með stærri markaði, aukinni samkeppni og stuðningi úr sameiginlegum sjóðum. Önnur benda á að íslenskur landbúnaður starfi við allt aðrar náttúrulegar aðstæður en víðast hvar í Evrópu og óttast að breytingar á regluverki og stuðningskerfum geti haft áhrif á byggðir, fæðuöryggi og innlenda framleiðslu. Hvort sjónarmiðið vegur þyngra er mat hvers og eins en það er umræða sem á skilið að fari fram af yfirvegun og byggist á staðreyndum fremur en slagorðum. Það sem við vonum að gerist með ESB aðild Hvort sem Ísland stendur innan eða utan Evrópusambandsins berum við áfram ábyrgð á eigin ríkisfjármálum, skattkerfi, húsnæðismarkaði, kjarasamningum og stórum hluta þeirrar efnahagsstefnu sem mótar lífskjör landsmanna. Þess vegna er mikilvægt að ræða Evrópusambandið á eigin forsendum en ekki út frá því sem við vonum að muni gerast heldur út frá því sem við vitum um aðildina, réttindin, skuldbindingarnar, kostina og gallana. Af hverju ætti Evrópusambandið að vilja fá Ísland inn? Aðild byggist á gagnkvæmum hagsmunum. Þótt Ísland sé lítið ríki búum við yfir auðkindum og verðmætum sem skipta máli; auðugum fiskimiðum, mikilli þekkingu á sjávarútvegi og endurnýjanlegri orku, mikilvægu hlutverki á norðurslóðum og landfræðilegri stöðu á Norður-Atlantshafi. Við erum einnig stöðugt lýðræðisríki sem tekur nú þegar þátt í stórum hluta innri markaðar Evrópu í gegnum EES-samninginn. Í samningi hagnast báðir aðilar? Um leið er mikilvægt að hafa í huga að Ísland yrði eitt minnsta aðildarríkið og áhrif okkar myndu ráðast af því hvernig okkur tækist að gæta hagsmuna okkar innan sambandsins. Umræðan snýst um hvað Ísland fengi út úr Evrópusambandinu og hvað Ísland hefði fram að færa sem utanríkisráðherra forðast að ræða. Aðild er í grunninn samstarf þar sem báðir aðilar þurfa að sjá sameiginlegan ávinning. Þroskinn til að vera ósammála Það skiptir máli hvernig umræðan fer fram. Hvorug hliðin styrkir málstað sinn með því að gera lítið úr þeim sem eru á annarri skoðun eða gera þeim upp annarlegar hvatir. Þau sem eru fylgjandi aðild eru ekki endilega óábyrg eða minna þjóðrækin og þau sem eru andvíg eru ekki endilega hrædd við breytingar eða andsnúin alþjóðasamstarfi. Flest vilja það sem er Íslandi fyrir bestu. Sterk rök verða ekki sterkari með því að gera andstæðinginn veikari. Þau verða sterkari þegar þau standast gagnrýna skoðun og eru metin á eigin forsendum. Þess vegna ætti umræðan fyrst og fremst að snúast um kosti og galla aðildar en ekki um að gera lítið úr þeim sem komast að annarri niðurstöðu. Löngunin til breytingar ráði niðurstöðunni Það er líka mikilvægt að viðurkenna að margir Íslendingar eru orðnir þreyttir á þeirri stöðu sem þeir upplifa. Mörg vilja sjá breytingar og telja að tími sé kominn til að fara aðra leið en við höfum farið hingað til. Við þurfum að gæta þess að láta ekki löngunina til breytinga ráða niðurstöðunni áður en umræðan hefur farið fram. Ákvörðun um jafn stórt framtíðarmál á ekki að byggjast á óskhyggju heldur þekkingu. Hvort niðurstaðan verður að lokum já eða nei skiptir auðvitað miklu máli. Ekki síður að þjóðin taki þá ákvörðun á upplýstum forsendum með skýran skilning á því hvað Evrópusambandsaðild felur í sér. Hverju aðild getur breytt og ekki síður hvað verður áfram á okkar eigin ábyrgð. Hvaða leið sem við veljum verður verkefnið eftir sem áður hið sama; að byggja stöðugra, réttlátara og farsælla samfélag á Íslandi. Sú ábyrgð verður alltaf fyrst og fremst okkar eigin. Höfundur er kennari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun