Þjóðarvarnarráðið hefur verið kallað saman af minna tilefni! Davíð Bergmann skrifar 7. júlí 2026 21:02 Hér er yfirlit yfir þau mál sem hafa komið upp frá 1. janúar til 6. júlí 2026, þar sem lögregla og tollgæsla lögðu hald á eitt kíló eða meira af fíkniefnum á hundavaði. Þetta tímabil sker sig algjörlega úr í íslenskri afbrotasögu. Haldlagt magn er nú mælt í tugum og jafnvel yfir hundrað kíló í einstökum aðgerðum og það á svona stuttum tíma. Eins og við séum að reyna að vinna einhvers konar óformlegt Evrópumeistaramót, og örugglega miðað við fræga höfðatöluviðmiðið. Ískaldi veruleikinn er þessi: Ef þetta magn finnst, hvað þá með öll hin efnin sem komast klakklaust inn í landið? Spurningin sem við verðum að spyrja okkur af fullri alvöru í dag er þessi: Hver skyldi eftirspurnin á markaðnum vera hér á landi? Einhver eftirspurn hlýtur að vera, það er orðið fólki ljóst miðað við magnið sem lögreglan og tollayfirvöld handleggja en hvað eru það mörg prósent af heildarmagninu sem kemur hingað til lands? Af hverju skyldi vera svona mikil eftirspurn? Ætli grámyglaði hversdagsveruleikinn hérna sé svona óbærilega erfiður að við þurfum að vera á heimsmælikvarða í notkun ólöglegra fíkniefna til þess eins að lifa hann af? Það er tímabært að fara að spyrja sig þessara spurninga miðað við öll þau ungmenni sem hafa fallið frá í blóma lífsins vegna ofneyslu, ásamt tíðni sjálfsvíga, slysa og ofbeldismála sem tengjast neyslu ólöglegra efna. Hvað veldur þessari vanlíðan? Fíkniefni eru mjög dýr hér á landi og það er ekki að ástæðulausu að erlend skipulögð glæpasamtök eru mætt á svæðið til að þjónusta markaðinn. Við þessu var að vísu varað á sínum tíma en á það var auðvitað ekki hlustað. Ég spái því að það verði ekki langt að bíða ef það hefur hreinlega ekki raungerst nú þegar að við þetta verði einfaldlega ekki ráðið. Atburðarásin 2026: Tímalína glæpa og ofbeldis Hér er skipulögð samantekt á stærstu fíkniefnahaldlagningunum og alvarlegum ofbeldismálum, raðað markvisst eftir mánuðum svo sjá megi hvernig markaðnum er fylgt eftir: Janúar 2026 Ofbeldismál – Árás í Höfðahverfi: Greint var frá alvarlegri líkamsárás í austurhluta Reykjavíkur þar sem tveir menn voru handteknir og fórnarlambið flutt á spítala með alvarlega hnífstunguáverka. Ofbeldismál – Alvarleg árás á þorrablóti HK í Kórnum (30. janúar): Karlmaður á fimmtugsaldri var sleginn niður á skemmtun í Kópavogi. Hann hlaut lífshættulega höfuðáverka og lá þungt haldinn á Landspítalanum. Febrúar 2026 Fíkniefnamál – Kratom-málin á Norðurlandi: 60 kíló Lögreglan á Norðurlandi eystra lenti í óvenjulegum haldlagningum á efni sem er nýlegt á ratsjá yfirvalda hér á landi. Magnið nam tæplega 60 kílóum af fíkniefninu Kratom (sem telst til ólöglegra ávana- og fíkniefna á Íslandi). Ofbeldismál – Hnífstunga í miðbæ Reykjavíkur (8. febrúar): Tilkynnt var um hnífstunguárás fyrir utan skemmtistað í miðbænum um helgina. Sérsveitin var kölluð út og fórnarlambið flutt á bráðamóttöku, en gerandinn flúði vettvang. Mars 2026 Ofbeldismál – Stóra bílakjallaramálið á Höfðatorgi (17. mars): Þetta var umfangsmesta og alvarlegasta hópárás tímabilsins sem rannsökuð var sem tilraun til manndráps. Milli 20 og 30 manns mættu í bílakjallara þar sem hnífum og kylfum var beitt. Ekið var á 26 ára karlmann á miklum hraða og hann stunginn með hníf. Hann fannst í blóði sínu og hlaut lífshættulega áverka. Ellefu manns voru handteknir í kjölfar þessarar uppákomu. Apríl 2026 Fíkniefnamál – Dettifossmálið: 14 lítrar af amfetamínbasa Hér var lagt hald á 14 lítra af amfetamínbasa í vökvaformi, en það magn samsvarar um 56 kílóum af amfetamíni á götunni eftir blöndun. Ofbeldismál – Hnífstunga og bráðaaðgerð á Akureyri (10.–11. apríl): Ráðist var á mann með hnífi í heimahúsi á Akureyri. Maðurinn mætti alvarlega sár á bráðamóttökuna og þurfti að gangast undir bráðaskurðaðgerð. Tveir menn voru handteknir með aðstoð sérsveitarinnar. Ofbeldismál – Hnífstunga í Árbæ (28. apríl): Lögreglan handtók mann í mjög annarlegu ástandi í íbúðarhúsnæði í Árbæ eftir að hann hafði stungið annan mann. Fórnarlambið var flutt með hraði á Landspítalann. Maí 2026 Ofbeldismál – Ofbeldisbylgja í miðbænum: Í maí var mikið um tilkynningar í helgarlögregludagbókum um hnífaburð og minni líkamsárásir í miðbænum. Þetta virðist vera orðinn fastur liður. Júní 2026 Fíkniefnamál – Straumsvíkurmálið: 106 kíló af kókaíni Hvað magn og verðmæti varðar er þetta stærsta einstaka kókaínmál Íslandssögunnar, samtals 106 kílógrömm. Fíkniefnamál – Húsbílamálið á Seyðisfirði: Tæp 60 kíló Lögreglan upplýsti í júní um stórfellt smygl sem var stöðvað við komu Norrænu til landsins. Magnið var tæp 60 kíló af blönduðum efnum. Bróðurparturinn (um 50-55 kg) var amfetamín en einnig fannst kókaín, ketamín og svokallað „bleikt kókaín“, í fyrsta sinn sem það finnst í svona tilkomumiklu magni hérlendis. Júlí 2026 (til 6. júlí) Fíkniefnamál – Stóra kannabisræktunin á Suðvesturhorni: 800 plöntur Lagt var hald á tæplega 800 kannabisplöntur. Þarna er um erlenda aðila að ræða, eins og komið hefur fram í fréttum, og það er í rannsókn hvort um skipulagða glæpastarfsemi sé að ræða. Til að geta ræktað svona magn þarftu útbúnað sem kostar milljónir; þarna eru augljóslega ekki einstaklingar með vankunnáttu á ferð eða einhverjir byrjendur. Það þarf alvöru þekkingu í svona stórfellda ræktun. Ef það finnast 800 plöntur, hvað skyldu þá vera margar samsvarandi ræktanir í gangi hér á landi sem hafa ekki verið upprættar? Miðað við kostnaðinn og það sem þarf að leggja út þá er greinilega eftir einhverju að slægjast á íslenskum fíkniefnamarkaði. Áhættan er hins vegar nánast engin því dómarnir eru þægilega vægir, það er að segja ef það er þá yfirhöfuð hægt að framfylgja þeim vegna hins eilífa plássleysis í fangelsum landsins. Ofbeldismál – Grettisgötumálið (2.–3. júlí): Tilkynnt var um hnífstungu í miðbæ Reykjavíkur þar sem blóðslettur og vasahnífur fundust á gangstétt við Grettisgötu. Gerandinn var handtekinn skömmu síðar eftir leit lögreglu. Þróunin og framtíðarsýnin: Zombie-veruleikinn er á leiðinni Þetta eru þau mál sem ég get dregið fram á hundavaði úr íslenskum fjölmiðlum. Lögreglan hefur staðfest í fréttaskýringum á tímabilinu að skipulögð glæpastarfsemi og fjármögnun frá erlendum brotahópum spili þarna stórt hlutverk. En hér er ég ekki einu sinni farinn að skrifa um skipulögðu þjófana eða um mansalshringi og vændisstarfsemi. Við erum jú bara 400.000 hræður, en miðað við höfðatölu erum við sko sannarlega komin á kortið í heimi skipulagðra glæpa og það er ekki að ástæðulausu. Glæsilegur árangur það eða þannig! Ég bíð ekki spenntur eftir framtíðinni ef þessi þróun heldur áfram. Þess verður ekki langt að bíða að hingað komi efni í stórum stíl sem eru 50 sinnum sterkari en heróín, og þá förum við að sjá fólk vafra um í „zombie-stíl“ um götur og stræti eins og þegar hefur gerst í Evrópu og Bandaríkjunum. Sú þróun sem á sér stað hér á landi í dag hefur nefnilega átt sér nákvæmlega stað í þessum löndum. Sterkari efni hafa komið á markaðinn og á endanum kallar markaðurinn einfaldlega eftir efnum á borð við efni sem er 50 sinnum sterkara en heróín. Verðum við þá komin á endastöðina, eða hvar er hún? Höfundur er áhugamaður um betra samfélag og með áratuga reynslu á vettvangi olnbogabarna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Davíð Bergmann Mest lesið Pólitískir vindhanar sem vilja nú hafa afstöðu af þjóð Þórður Snær Júlíusson Skoðun Þjóðinni er að blæða út – og þetta á bara að reddast Vilhelm Jónsson Skoðun Hörmuleg húsnæðisstaða ungs fólks í ESB Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun „Við hefðum aldrei átt að ganga í ESB,“ sagði engin þjóð aldrei Eiríkur Ragnarsson Skoðun Sumar án aðgerða Halla Gunnarsdóttir,Jakob Tryggvason,Andri Reyr Haraldsson,Eiður Stefánsson,Gunnar Sigurðsson,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson Skoðun Bollaleggingar Sigurður Kári Kristjánsson Skoðun Ísland, já takk Jón Pétur Zimsen Skoðun Já-sjá leiðir til Já-já Guðmundur Edgarsson Skoðun Höggdeyfir fyrir hverja? Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Hvernig er að eiga sæti við borðið Ásta Guðrún Helgadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ég ætla að treysta komandi kynslóðum Margrét Sveinsdóttir skrifar Skoðun Hvernig er að eiga sæti við borðið Ásta Guðrún Helgadóttir skrifar Skoðun Sumar án aðgerða Halla Gunnarsdóttir,Jakob Tryggvason,Andri Reyr Haraldsson,Eiður Stefánsson,Gunnar Sigurðsson,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson skrifar Skoðun Þjóðinni er að blæða út – og þetta á bara að reddast Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Hörmuleg húsnæðisstaða ungs fólks í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Pólitískir vindhanar sem vilja nú hafa afstöðu af þjóð Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun „Við hefðum aldrei átt að ganga í ESB,“ sagði engin þjóð aldrei Eiríkur Ragnarsson skrifar Skoðun Bandaríkin Gunnar Björgvinsson skrifar Skoðun Bollaleggingar Sigurður Kári Kristjánsson skrifar Skoðun Höggdeyfir fyrir hverja? Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Ísland, já takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Já-sjá leiðir til Já-já Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Hvernig tryggjum við börnum okkar framtíð á Íslandi? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Hvers vegna blaktir palestínski fáninn í Gleðigöngunni? Elí Hörpu- og Önundarbur,Bashar Murad skrifar Skoðun B verður 8 – umbætur eða umbúðaskipti? Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Ég hélt að friðurinn væri kominn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Við megum ekki gefa eftir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Blásum til sóknar í menntun með bættum námsgögnum Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar Skoðun Sameinumst undir regnboganum: Jafnrétti, inngilding og stolt Clara Ganslandt skrifar Skoðun Mikilvægasta Gleðigangan Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Sjöunda þversögn gervigreindar Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Myndum borga fyrir inngöngu Svartfjallalands Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun The First Yes Is the Crucial Vote Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Sameiginlegur þekkingargrunnur að glatast? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Bæjarstjórnarmyrkrið: Þegar einokunarleyfishafinn gat ekki kveikt ljósið Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Barátta intersex fólks standi styrkum fótum Daníel E. Arnarsson skrifar Skoðun JÁkvæður kvikmyndaframleiðandi Grímar Jónsson skrifar Skoðun Hvað ætlar þú að gera við tímann sem gervigreindin gefur þér? Þórdís Jóna Ingigerðardóttir skrifar Skoðun Hverju myndi evran skila? - svar til Ásdísar Kristjánsdóttur Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Eigi veldur sá er varar Sigurgeir B. Kristgeirsson skrifar Sjá meira
Sumar án aðgerða Halla Gunnarsdóttir,Jakob Tryggvason,Andri Reyr Haraldsson,Eiður Stefánsson,Gunnar Sigurðsson,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson Skoðun
Skoðun Sumar án aðgerða Halla Gunnarsdóttir,Jakob Tryggvason,Andri Reyr Haraldsson,Eiður Stefánsson,Gunnar Sigurðsson,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson skrifar
Skoðun Hvers vegna blaktir palestínski fáninn í Gleðigöngunni? Elí Hörpu- og Önundarbur,Bashar Murad skrifar
Skoðun Blásum til sóknar í menntun með bættum námsgögnum Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar
Skoðun Bæjarstjórnarmyrkrið: Þegar einokunarleyfishafinn gat ekki kveikt ljósið Arnar Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvað ætlar þú að gera við tímann sem gervigreindin gefur þér? Þórdís Jóna Ingigerðardóttir skrifar
Sumar án aðgerða Halla Gunnarsdóttir,Jakob Tryggvason,Andri Reyr Haraldsson,Eiður Stefánsson,Gunnar Sigurðsson,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson Skoðun