Sögufræg Douglas DC 6 á leiðinni til Reykjavíkur Kristján Már Unnarsson skrifar 7. júlí 2026 12:10 Douglas DC 6B-vélin er væntanleg til Reykjavíkur um klukkan 17. Hún er með skrásetningarstafina OE-LDM. Wikimedia/Peter Bakema Flugvél af gerðinni Douglas DC 6B er núna á leiðinni til Reykjavíkur frá Salzburg í Austurríki. Áætlað er að hún lendi á Reykjavíkurflugvelli um fimmleytið síðdegis og verði yfir nótt. Flugáhugamenn fá með komu hennar fágætt tækifæri til að sjá með eigin augum flugvél sem markaði djúp spor í flugsögu Íslendinga.
Flugvélar þessarar gerðar voru uppistaðan í millilandaflugi íslensku flugfélaganna, bæði Loftleiða og Flugfélags Íslands, á árunum frá því um og fyrir 1960 og þar til þotuöldin gekk í garð. Tvær DC 6B-flugvélar Loftleiða á Reykjavíkurflugvelli, Eiríkur rauði og Þorfinnur karlsefni.Úr myndinni Alfreð Elíasson og Loftleiðir Þær lögðu grunninn að mestu velgengnisárum Loftleiða og gerðu Norður-Atlantshafsflug félagsins að raunhæfum valkosti í alþjóðlegri samkeppni á flugleiðum milli Evrópu og Ameríku, allt þar til Rolls Royce-vélarnar, eða Monsarnir, leystu þær af hólmi. Síðar þjónuðu þær meðal annars í Biafra-hjálparflugi sem þjóðkirkjur Norðurlandanna stóðu fyrir í samstarfi við Loftleiðamenn. Tvær DC 6B frá Flugfélagi Íslands á flugvellinum í Narsarssuaq á Grænlandi árið 1968.Snorri Snorrason Fraktflugfélagið Iscargo gerði slíkar vélar út frá Reykjavíkurflugvelli á árunum 1972 til 1982. Jafnan þótti mikið ævintýri að sjá þær lenda og taka á loft. Flugvélin, sem er væntanleg, er á leið til Bandaríkjanna á Oshkosh-flugsýninguna í Wisconsin og má fylgjast með flugi hennar á Flightradar24. Hún er á vegum félagsins The Flying Bulls, sem sérhæfir sig í varðveislu gamalla og sögufrægra flugvéla. DC 6B-flugvélin var smíðuð árið 1958 fyrir júgóslavneska ríkisflugfélagið JAT. Hún var með lúxusinnréttingu og þjónaði sem þjóðhöfðingaflugvél fyrir Josip Broz Tito. Tito seldi hana síðan þjóðhöfðingja Zambiu, Kenneth Kaunda, sem notaði hana sömuleiðis í opinberum erindagjörðum. DC 6-vél Iscargo á Reykjavíkurflugvelli. Þaðan var flugfélagið gert út til fraktflutninga á árunum 1972 til 1982.Pétur P. Johnson Tvær aðrar gamlar flugvélar lentu einnig í Reykjavík í gær, Lockheed P-38 Lightning frá árinu 1944, einnig á vegum The Flying Bulls, sem og önnur stríðsáravél af gerðinni Douglas A26 Invader, en sú er í eigu einkaaðila. Þær héldu báðar á brott í morgun, einnig á leið vestur um haf á Oshkosh-flugsýninguna.
Reykjavíkurflugvöllur Flug Flugþjóðin Tengdar fréttir Flykktust upp í turn til að sjá hvort sexan kæmist í loftið Flugtök Iscargo-sexanna frá Reykjavíkurflugvelli þóttu svo spennandi að starfsmenn Flugmálastjórnar flykktust jafnan upp í flugturn til að fylgjast með. Flugbrautirnar voru í stysta lagi fyrir fullhlaðna sexu auk þess sem hún klifraði hægt. 17. febrúar 2026 09:19 Þegar Þorvaldur í Síld og fisk varð örlagavaldur Loftleiða Þorvaldur Guðmundsson athafnamaður, oftast kenndur við Síld og fisk, reyndist örlagavaldur í rekstri Loftleiða árið 1959. Grétar Br. Kristjánsson, sonur þáverandi stjórnarformanns Loftleiða, Kristjáns Guðlaugssonar, segir að Þorvaldur hafi sem stjórnarformaður Verzlunarsparisjóðsins, síðar Verslunarbankans, tryggt nauðsynleg lán til að Loftleiðir gætu keypt Douglas DC 6B-flugvélarnar sem urðu grunnurinn að velgengni flugfélagsins. 18. maí 2025 06:48 Gullaldarárin þegar flugið varð stór uppspretta þjóðartekna Loftleiðabyggingarnar á Reykjavíkurflugvelli eru helsta táknmynd þess peningaflæðis sem fylgdi sókn Íslendinga inn á alþjóðlegan flugmarkað á árunum milli 1960 og ‘70 og gerði flugið að einum þýðingarmesta þætti efnahagslífsins. 22. mars 2025 16:44 Flugvélarnar sem gerðu Loftleiðir að stórveldi Velgengni Loftleiða í Norður-Atlantshafsfluginu hófst fyrir alvöru með DC 6B-flugvélum. Það voru hins vegar Rolls Royce 400-skrúfuþoturnar, CL-44, eða monsarnir, sem gerðu Loftleiðir að stórveldi í íslensku efnahagslífi. 18. september 2024 19:44 Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Fleiri fréttir „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Sjá meira
Flykktust upp í turn til að sjá hvort sexan kæmist í loftið Flugtök Iscargo-sexanna frá Reykjavíkurflugvelli þóttu svo spennandi að starfsmenn Flugmálastjórnar flykktust jafnan upp í flugturn til að fylgjast með. Flugbrautirnar voru í stysta lagi fyrir fullhlaðna sexu auk þess sem hún klifraði hægt. 17. febrúar 2026 09:19
Þegar Þorvaldur í Síld og fisk varð örlagavaldur Loftleiða Þorvaldur Guðmundsson athafnamaður, oftast kenndur við Síld og fisk, reyndist örlagavaldur í rekstri Loftleiða árið 1959. Grétar Br. Kristjánsson, sonur þáverandi stjórnarformanns Loftleiða, Kristjáns Guðlaugssonar, segir að Þorvaldur hafi sem stjórnarformaður Verzlunarsparisjóðsins, síðar Verslunarbankans, tryggt nauðsynleg lán til að Loftleiðir gætu keypt Douglas DC 6B-flugvélarnar sem urðu grunnurinn að velgengni flugfélagsins. 18. maí 2025 06:48
Gullaldarárin þegar flugið varð stór uppspretta þjóðartekna Loftleiðabyggingarnar á Reykjavíkurflugvelli eru helsta táknmynd þess peningaflæðis sem fylgdi sókn Íslendinga inn á alþjóðlegan flugmarkað á árunum milli 1960 og ‘70 og gerði flugið að einum þýðingarmesta þætti efnahagslífsins. 22. mars 2025 16:44
Flugvélarnar sem gerðu Loftleiðir að stórveldi Velgengni Loftleiða í Norður-Atlantshafsfluginu hófst fyrir alvöru með DC 6B-flugvélum. Það voru hins vegar Rolls Royce 400-skrúfuþoturnar, CL-44, eða monsarnir, sem gerðu Loftleiðir að stórveldi í íslensku efnahagslífi. 18. september 2024 19:44