Skoraði á HM en nær ekki að spila í Fossvogi Sindri Sverrisson skrifar 7. júlí 2026 12:02 Nadhir Benbouali fagnar marki sínu gegn Jórdaníu á sjálfu heimsmeistaramótinu. Getty/Elysia Su Víkingar eiga fyrir höndum afar erfitt verkefni í kvöld í fyrri leik sínum við Ungverjalandsmeistara Györ í undankeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta. Gestirnir verða þó án síns helsta markahróks sem skoraði mark á HM í Bandaríkjunum fyrir tveimur vikum.
Uppselt er á leikinn í kvöld en hann verður sýndur á Sýn Sport Ísland, klukkan 19. Nadhir Benbouali, sem skoraði í sigri Alsír gegn Jórdaníu á HM, skoraði fimmtán mörk og varð markahæstur hjá Györ þegar liðið vann Ungverjalandsmeistaratitilinn á síðustu leiktíð. Benbouali á hins vegar við meiðsli að stríða, samkvæmt ungverskum miðlum, og verður því ekki með í Fossvoginum í kvöld. Hann missti af leiknum við Sviss á föstudaginn, í 32-liða úrslitum, og gat því ekkert gert við 2-0 tapinu sem sendi Alsír út af HM. Meiðslin virðast koma í veg fyrir að hann geti tekið þátt í einvíginu við Víkinga en seinni leikurinn er í Ungverjalandi eftir viku. „Ég er sannfærður um að við getum fyllt hans skarð og staðið okkur eins vel án hans,“ sagði Milán Vitalis, miðjumaður Györ, við M4 Sport. Með nýjan þjálfara Ungversku meistararnir mæta til leiks með nýjan þjálfara því Mexíkóinn Efraín Juárez er tekinn við liðinu, eftir að Balázs Borbély var ráðinn til Ferencváros. Á vef M4 Sport segir að Juárez hafi ekki fengið mikinn tíma með Györ-liðið til undirbúnings og þá er veðrið á Íslandi talið geta orðið áskorun sem og vallaraðstæður, en gervigras er á heimavelli Víkinga. „Vonandi getum við náð góðum úrslitum, burtséð frá veðri og vallaraðstæðum,“ sagði Vitalis.
HM 2026 í fótbolta Víkingur Reykjavík Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Íslenski boltinn Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Enski boltinn „Öll tækifæri sem ég hef fengið eru frá Íslandi“ Sport FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Fótbolti „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ Íslenski boltinn Gefa út yfirlýsingu til varnar Fannari eftir „öfgafulla rangtúlkun“ Fótbolti Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal Íslenski boltinn Enskt hlaðborð á laugardegi Sport „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Landsliðskona opnar sig um áfall: „Hefði geta farið mun verr“ Töpin sitja ekki í leikmönnunum fyrir úrslitaleikinn Gefa út yfirlýsingu til varnar Fannari eftir „öfgafulla rangtúlkun“ Alþjóðadómarinn verður yfirþjálfari Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ Neitar að hafa tekið þátt í mannráni „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ „Við náðum einum af þessum stóru í ár“ „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Breiðablik - Afturelding 2-1 | Blikar bikarmeistarar í annað sinn Lagði upp á leið í undanúrslit FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Viktor skoraði í fjórða sigrinum í röð Markasúpa í Noregi Spenntur að sjá rauða hafið í stúkunni Meðvitaðir um pressuna Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“ Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Ólafur skilur Magga en er ekki sammála Róbert Frosti með slitið krossband og á leið í aðgerð Sjáðu markaveislur United og Bayern München Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Sjá meira