Það allra besta að gráta í gufu Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 6. júlí 2026 20:01 Viktor Breki leirlistamaður ræddi við Kára Sverris í þáttunum Litlu hlutirnir. Kári Sverris „Ég upplifði þögn í hausnum á mér í fyrsta sinn í mörg ár,“ segir leirlistamaðurinn Viktor Breki sem tók sannkallaða U-beygju í lífinu. Hann var við nám í lögfræði við Háskóla Íslands þegar hann ákvað að hlusta á innsæið, hætta og fylgja sköpunargleðinni.
Viktor Breki hefur undanfarin ár getið af sér gott orð fyrir leirlist sína og hefur meðal annars hannað svokallaðan Morgunbollann, þar sem undirskálin er föst við bollan og hentar vel fyrir kaffidrykkju uppi í rúmmi. Viktor Breki ræddi við Kára Sverris um ferilinn í þættinum Litlu hlutirnir. Hér má sjá þáttinn í heild sinni: „Eftir að ég hætti í lögfræðinni var ég í smá eyðimerkurgöngu en sem betur fer fann ég leirinn. Ég man ekki eftir því að hafa sérstaklega skráð mig á leirnámskeið en allt í einu var ég mættur og ég upplifði þögn í hausnum á mér í fyrsta sinn í mörg ár,“ segir Viktor Breki. Hann býr í Hlíðunum með kærustu sinni og ketti og finnur mikla fegurð í hversdagsleikanum. Fáránlegt, en skapandi „Ég reyni að vakna á morgnana og brosa í spegilinn,“ segir Viktor með sínu einstaklega yfirvegaða viðmóti en hann hefur alla tíð farið eigin leiðir og verið skapandi. Sem unglingur sótti hann í skapandi greinar í skólanum, saum og smíði sem dæmi og var alltaf að breyta fötunum sínum eftir eigin höfði. „Ég man ég tók einhvern tíma loðefni, klippti gat á yfir lærin á buxunum og setti loð undir. Ég held þetta hafi ekki slegið í gegn og þegar ég hugsa um það núna var þetta fáránlegt, en skapandi!“ View this post on Instagram A post shared by 𝚅𝚒𝚔𝚝𝚘𝚛 𝙱𝚛𝚎𝚔𝚒 (@studioviktorbreki) Endurnærður eftir gufugrátur Hann segir andleg veikindi hafa mótað sig mikið í lífinu. „Það blundar í mér þunglyndi og ég held það tengist því að upplifa heiminn svolítið mikið og ná ekki að velja sér hugsanir, það er mikið í gangi í hausnum.“ Það er ýmislegt sem lætur honum líða vel, samhliða sköpuninni. „Ef ég næ að gráta í gufu þá er það bara eitt það besta sem gerist, að hreinsa palletuna alveg. Það er einhver öndun sem gerist við það að gráta og manni líður alltaf ótrúlega vel eftir á. Á uppvaxtarárunum reynir maður að gráta sem minnst þannig það safnast upp. Það sést minna í gufunni að ég sé grátandi, það heyrist kannski, ég veit það ekki,“ segir Viktor hlæjandi og bætir við: „En ég virðist hafa mjög gott af því. Þá kem ég alveg endurnærður til baka.“
Gufuböð Menning Litlu hlutirnir Mest lesið Diljá Mist á lausu Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Sahara Ray látin Lífið Píparapæja selur pent „penthouse“ Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Costanza á klakanum Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Richard Riehle látinn Lífið Fleiri fréttir Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Sjá meira