Messi segir að Argentína þurfi að laga marga slæma hluti Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. júlí 2026 20:01 Lionel Messi var ekki alltof kátur þrátt fyrir 3-2 sigur argentínska landsliðsins. Getty/Robert Cianflone Lionel Messi var allt annað en sáttur með frammistöðu argentínska landsliðsins í naumum 3-2 sigri á Grænhöfðaeyjum í framlengingu en markahæsti maður HM benti á veikleika síns liðs í viðtali eftir leikinn. „
Í dag lögðum við mikið á okkur, eins og alltaf, og spiluðum vel, alveg eins og við segjum alltaf,“ sagði Messi eftir leikinn. „En ég held að það mikilvægasta núna sé að hvíla sig, hugsa um það sem er fram undan og reyna að taka það jákvæða úr leiknum í dag. Fyrir utan að komast áfram þá held ég að það séu jákvæðir punktar því við gerðum nokkra góða hluti, en við þurfum líka að laga þá slæmu, sem ég held að hafi verið margir í dag,“ sagði Messi. Messi opnaði markareikninginn með stórkostlegu marki en Grænhöfðaeyjar svöruðu fyrir sig og sendu leikinn í framlengingu. Þar komst Argentína yfir en eyþjóðin jafnaði metin aftur með marki sem gæti verið mark mótsins frá Sidny Lopes Cabral. Messi: Argentina have 'many' things to correctLionel Messi said the Argentina have "many" things to improve after a nail-biting 3-2 win over Cape Verde in extra time on Friday night at Hard Rock Stadium Miami, pointing out his team's shortcomings in th… https://t.co/P2ryvQ2XVS— ESPN Soccer (@ESPNsoccer) July 4, 2026 Sjálfsmark Diney Borges hjá Grænhöfðaeyjum eftir skalla frá Cristian Romero tryggði Argentínu forystuna fyrir fullt og allt og liðið komst áfram í 16-liða úrslit á sjötta heimsmeistaramótinu í röð. Seinni tvö mörkin komu bæði eftir hornspyrnur frá Messi. Grænhöfðaeyjar skráðu sig á spjöld sögunnar á HM 2026 með því að verða minnsta þjóðin til að komast í útsláttarkeppni mótsins. Messi var fullur lofs um liðið, sem er í 67. sæti á heimslistanum, þegar hann talaði um hvernig Grænhöfðaeyjar gerðu Argentínu erfitt fyrir allan leikinn. „Við vissum að þetta yrði mjög erfiður leikur; þetta lið hafði ekki tapað fyrir Spáni og Úrúgvæ af ástæðu. Við gerðum erfiðasta hlutann, sem var að finna fyrsta markið,“ sagði Messi. „Við héldum að upp frá því myndum við byrja að finna okkar leik og vera afslappaðri, en það var þveröfugt. Við töpuðum boltanum, við lágum til baka, við gátum ekki pressað þá vel og þeir nýttu styrkleika sína. Við vissum að þetta yrði erfitt; þetta er útsláttarkeppni og enginn gefur þér neitt,“ sagði Messi. „Við vissum að þetta yrði alls ekki auðvelt og það er það sem þetta heimsmeistaramót, sérstaklega, snýst um. Það er mjög jafnt, mjög flókið og hver einasti leikur verður gríðarlega erfiður,“ sagði Messi. Argentína mætir Egyptalandi í 16-liða úrslitum keppninnar á þriðjudaginn.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Íslenski boltinn Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Enski boltinn „Öll tækifæri sem ég hef fengið eru frá Íslandi“ Sport FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Fótbolti „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ Íslenski boltinn Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal Íslenski boltinn Enskt hlaðborð á laugardegi Sport „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ Íslenski boltinn Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Handbolti Fleiri fréttir Alþjóðadómarinn verður yfirþjálfari Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ Neitar að hafa tekið þátt í mannráni „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ „Við náðum einum af þessum stóru í ár“ „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Breiðablik - Afturelding 2-1 | Blikar bikarmeistarar í annað sinn Lagði upp á leið í undanúrslit FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Viktor skoraði í fjórða sigrinum í röð Markasúpa í Noregi Spenntur að sjá rauða hafið í stúkunni Meðvitaðir um pressuna Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“ Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Ólafur skilur Magga en er ekki sammála Róbert Frosti með slitið krossband og á leið í aðgerð Sjáðu markaveislur United og Bayern München Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag United aldrei í vandræðum Sjá meira