Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Tómas Arnar Þorláksson skrifar 4. júlí 2026 12:42 Vík í Mýrdal. vísir/vilhelm Mikil ferðahelgi fer nú í hönd enda bæjarhátíðir og útilegur víða í öllum landshlutum. Umferðin hefur verið nokkuð þung um allt land. Á Suðurlandi urðu tvö umferðarslys í morgun. Allt hefur gengið vel á höfuðborgarsvæðinu þó að nokkrir hafi verið gripnir við of hraðan akstur.
Magnús Ragnarsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi, segir að mikil umferð hafi verið á Suðurlandi í gær og í dag. Lítið hafi verið um glæfralegt aksturslag þrátt fyrir minniháttar slys. „Við vorum með slys núna rétt fyrir vestan Hvolsvöll rétt í þessu. Sem betur fer þurfti ekki að loka vegi nema um stutta stund en það er verið að opna hann aftur. Meiðsl voru minniháttar. Einnig var ekið á gangandi vegfaranda í Vík í morgun en sömuleiðis minniháttar áverkar sem betur fer. Þetta slapp vel.“ Tveir bílar skullu saman Tildrög slysanna séu nú til rannsóknar. Svo virðist sem ökumaður hafi misst stjórn á ökutæki sínu á bílastæði þegar ekið var á gangandi vegfaranda. Tveir bílar skullu saman við Hvolsvöll. „Við höfum ekki fengið mikið um tilkynningar. Það er náttúrulega mikil umferð og veðrið er gott. Það vill oft vera þegar mikil umferð er að það sé minna um glæfralegan akstur þar sem það er bara minna tækifæri. Vonandi eru ökumenn bara að fara varlega í umferðinni núna og njóta veðursins og hérna. Það liggur ekkert á. Þannig að við vonum að það haldi áfram að ganga vel, vonandi.“ Sá hraðasti á 136 kílómetra hraða Hörður Lilliendahl, varðstjóri hjá umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir mikla umferð hafa verið í og úr bænum í gær vegna Írskra daga á Akranesi og Blómahátíðar í Hveragerði. „Við gerðum ráð fyrir mikilli umferð þannig að við vorum með okkar menn uppi á vegunum í gær og allt gekk vel, engin óhöpp, engin slys. Menn voru aðeins að spýta í, þannig að það voru nokkrir teknir fyrir of hraðan akstur. Sá hraðasti var á 136 kílómetra hraða.“ Enginn hafi verið tekinn fyrir ölvunarakstur á þeim slóðum í gær og í nótt. „Við hvetjum náttúrulega fólk til þess að vera ekki með einhvern hraðakstur í þessari umferð. Það borgar sig ekki neitt og menn græða ekki neitt á því, nema bara skapa hættu.“
Mýrdalshreppur Samgönguslys Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Erlent Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Erlent Fleiri fréttir Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sjá meira