Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Lovísa Arnardóttir skrifar 2. júlí 2026 08:18 Samtökin fjögur krefjast þess að hvalveiðar verði stöðvaðar og að það fari fram óháð rannsókn. Vísir/Vilhelm Dýraverndarsamband Íslands, Hvalavinir – vernd hafsins, Náttúruverndarsamtök Íslands og Samtök um dýravelferð hafa sent Matvælastofnun (MAST) formlega kröfu um að hvalveiðar Hvals hf. verði stöðvaðar tafarlaust og að hafin verði ítarleg rannsókn á meintum brotum á lögum um velferð dýra.
Í sameiginlegri tilkynningu samtakanna fjögurra kemur fram að krafa þeirra byggi á sex eftirlitsskýrslum MAST dagsettum 22.–25. júní 2026, sem samtökin fengu afhentar á grundvelli upplýsingalaga. Að mati samtakanna benda skýrslurnar til ítrekaðra brota á lögum nr. 55/2013 um velferð dýra, sem banna að dýrum sé valdið ónauðsynlegri þjáningu og kveða á um að aflífun skuli fara fram með skjótum og sársaukalausum hætti. Þar sé helst hægt að nefna 31 mínútna dauðastríð langreyðar sem var skotin fjórum sinnum. „… endurtekin atvik þar sem þurfti fleiri en eitt skot til að aflífa dýr, ófullnægjandi skráningar eftirlitsgagna og vísbendingar um kerfisbundinn vanda við framkvæmd veiðanna,“ segir í tilkynningu samtakanna. Þá benda þau á að veiðar á kelfdri langreyði og aflífun fullþroska hvalfósturs hennar kunni að brjóta gegn lögum um velferð dýra og banni við veiðum á hvalkálfum. Vilja óháða rannsókn Af þessum sökum krefjast samtökin þess að MAST stöðvi tafarlaust frekari hvalveiðar á grundvelli núgildandi leyfis Hvals hf. eða beini eftir atvikum tilmælum til ráðuneytis um að fella leyfið úr gildi á meðan rannsókn fer fram á mögulegum brotum Hvals hf. Samtökin benda enn fremur á álit fagráðs um velferð dýra frá því í júní 2023 þar sem fagráðið komst að því að veiðiaðferðin samrýmist ekki lögum og vísa til þess þegar MAST stöðvaði veiðar hvalskips í september 2023 í kjölfar fráviks. „Jafnframt er krafist óháðrar rannsóknar, álits sérfróðra aðila og endurskoðunar á eftirliti og skráningu gagna,“ segir að lokum.
Hvalir Hvalveiðar Dýr Dýraheilbrigði Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira