Krýndur tískukóngur fótboltans Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 1. júlí 2026 11:01 Töskusafn Haalands er metið á tug-milljóna og vinsælustu tískuhús í heimi vilja ólm vinna með honum. Getty Norska fótboltastjarnan Erling Haaland hefur spilað sig inn í hjörtu margra fótboltaunnenda og eru fáir leikmenn sem hafa vakið jafn mikla athygli á HM í ár, sérstaklega ef marka má samfélagsmiðilinn TikTok. Hann er ekki bara stjarna í fótboltanum því hann virðist vera einn sá vinsælasti hjá tískuheiminum líka.
Tískurisar á borð við Vogue hafa fjallað ítarlega um persónulegan stíl Haalands og tímaritið Russh krýnir hann best klædda fótboltamanninn. Utan vallar hefur hann unnið með hátískuhúsum á borð við Dolce & Gabbana, Chanel og Louis Vuitton og er tíður gestur á tískuviðburðum. View this post on Instagram A post shared by Erling Braut Haaland (@erling) Þó er það líklega töskusafnið hans sem hefur vakið mesta athygli en hann á veglegt safn af hinum mjög svo eftirsóttu Birkin töskum frá goðsagnakennda franska tískuhúsinu Hermès. Töskurnar eru skírðar eftir ensk-frönsku leik-og tónlistarkonunni Jane Birkin en hún lést árið 2023. Þær kosta allt frá tveimur milljónum að rúmlega hundrað milljónum og þurfa flestir að hanga lengi á biðlista til að fá tækifæri til að festa kaup á henni. Þessi taska er á uppboði hjá Southeby's og byrjar í 50 þúsund dollurum.Instagram Birkin töskur Haalands eru metnar á yfir 317 þúsund dollara eða rúmlega fjörutíu milljónir íslenskra króna. Þar af er taskan Caban Togo Multipockets HAC Birkin 50 sem kemur í mjög takmörkuðu upplagi og var slík taska meðal annars á uppboði hjá Southeby's sem byrjaði í rúmum sex milljónum íslenkra króna. Sömuleiðis blá Birkin taska með fjalla-landslagi sem er einstaklega viðeigandi fyrir Norðmanninn. Þessi Birkin taska er einstaklega glæsileg. Jason Howard/Bauer-Griffin/GC Images Þá vekur ferðatösku-safnið hans sömuleiðis lukku á veraldrarvefnum en hann á slíkar frá Chanel, Louis Vuitton, auðvitað Hermès og fleiri rándýrum tískuhúsum og bætast þar þónokkrar milljónir við virði töskusafnsins. View this post on Instagram A post shared by Erling Braut Haaland (@erling) Klæðaburður hans er einkar glæsilegur og stálu hann og kærasta hans Isabel Haugseng Johansen senunni á tískusýningu Dolce & Gabbana í Róm í fyrra, bæði klædd í silfur-grátt. View this post on Instagram A post shared by Erling Braut Haaland (@erling) Hann rokkaði ljósblá jakkaföt við hvíta sandala frá Dolce & Gabbana á sýningu þeirra í Pugliu 2023 og virðist sömuleiðis mjög hrifinn af gallaefni frá toppi til táar, dýramynstrum og líflegum flíkum. Erling Haaland er óhræddur við að taka áhættu, bæði innan og utan vallar. View this post on Instagram A post shared by Erling Braut Haaland (@erling) Haaland smart í hlébarðamynstri.Instagram
Tíska og hönnun Fótbolti Noregur HM 2026 í fótbolta Mest lesið Urður yfirgefur Kastljós Lífið Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna Lífið Stjörnulífið: „Ég elska að vera hommalingur“ Lífið Týndi bókstaflega röddinni eftir áratugi af aga Lífið Ben Jones er látinn Bíó og sjónvarp Raye og Jordan ástfangin í rússíbana Lífið Þegar Davíð hafði afskipti af hjónabandi Ólafs og Dorritar Lífið Aubrey Plaza orðin mamma Lífið Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Menning „Svolítið eins og að vera á annarri plánetu“ Ferðalög Fleiri fréttir „Hef engar áhyggjur af því hvað þeim finnst“ „Betra að vera sein og sæt en fljót og ljót“ Heitast að vera aðeins of fín, alltaf Stórbrotinn stíll Zendayu Geirvörtur og latex vekja athygli í París Osaka best klædd á Wimbledon Krýndur tískukóngur fótboltans Sjá meira