Halldór Haraldsson er látinn Freyja Þórisdóttir skrifar 30. júní 2026 17:14 Halldór hélt sína fyrstu opinberu einleikstónleika árið 1965 en hann er af mörgum talinn hafa verið einn besti píanóleikari okkar Íslendinga. Aðsend Halldór Haraldsson, píanóleikari og fyrrverandi skólastjóri Tónlistarskólans í Reykjavík, lést í gær, þann 29. júní, þá 89 ára gamall. Foreldrar hans voru Haraldur Halldórsson og Hólmfríður Gísladóttir en hann lætur eftir sig eiginkonu, tvö börn, barnabörn og barnabarnabörn.
Er þetta meðal þess sem fram kemur í andlátstilkynningu frá aðstandendum Halldórs en hann fæddist í Reykjavík þann 18. febrúar árið 1937. Þar er einnig stiklað á stóru yfir feril Halldórs en hann lauk burtfararprófi í píanóleik frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1960. Hann fór svo í framhaldsnám í píanóleik við Royal Academy of Music í London sem hann lauk með Licentiate-prófi árið 1965. Halldór lauk burtfararprófi í píanóleik frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1960.Glatkistan Þá er sagt frá því í tilkynningunni að hann hafi kennt við Tónmenntaskóla Reykjavíkur í fimm ár og því næst Tónlistarskólann í Reykjavík frá árinu 1966 til ársins 2008, þar sem hann varð síðar yfirkennari píanó- og píanókennaradeildar og loks skólastjóri í ellefu ár eða frá árinu 1992 og fram yfir aldamót. Samhliða þeim stöðum kenndi hann nemendum í hlutastarfi og kenndi svo píanóleik við Listaháskóla Íslands í tíu ár frá árinu 2002. Á ferli sínum kenndi Halldór fjölmörgum píanónemendum og útskrifaði stóran hóp píanókennara og píanóleikara með burtfarar- eða einleikarapróf. Komið víða við í tónlistarheiminum Halldór hélt sína fyrstu opinberu einleikstónleika árið 1965 og svo fjölda einleikstónleika bæði heima og erlendis, en einnig lék hann margoft sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hann stofnaði Tríó Reykjavíkur árið 1988 með Guðnýju Guðmundsdóttur fiðluleikara og Gunnari Kvaran sellóleikara og héldu þau tónleika víða. Þá lék hann oft með Gísla Magnússyni píanóleikara en þeir gáfu út tvær hljómplötur með verkum fyrir tvö píanó. Í tilkynningunni segir að hann hafi alla tíð verið virkur í félagsmálum. Hann var formaður Félags íslenskra tónlistarmanna í þrjú ár og var einn af stofnendum Félags tónlistarkennara þar sem hann var formaður frá 1970 til 1975 og svo aftur frá árinu 1977 til ársins 1982. Á ferli sínum kenndi Halldór fjölmörgum píanónemendum og útskrifaði stóran hóp píanókennara og píanóleikara með burtfarar- eða einleikarapróf. Aðsend Þar segir jafnframt að Halldór hafi átt frumkvæðið að því að Ísland gerðist fyrst landa aðili að Evrópusambandi píanókennara árið 1979 og að hann hafi verið fyrsti formaður Íslandsdeildar EPTA og forseti Evrópuráðs EPTA árin 1985 til 1986. Þá hafi Halldór verið einn af stofnendum Tónlistarbandalags Íslands árið 1985 og sat í stjórn þess ásamt formennsku árin 1988 til 1989. Þá var hann formaður Samtaka tónlistarskólastjóra árin 1999 til 2001 og sat í nefndum á vegum menntamálaráðuneytisins varðandi tónlistarmál. Halldór var forseti Lífspekifélagsins um tíma og hélt marga fyrirlestra um andleg og heimspekileg mál. Sterk vinabönd til lífstíðar Halldór hlaut ARAM-viðurkenningu (Associate of the Royal Academy of Music) í London árið 1988 og var gerður að heiðursfélaga Félags íslenskra tónlistarmanna 2003. Þá var hann sæmdur riddarakrossi Hinnar íslensku fálkaorðu fyrir störf í þágu tónlistar sama ár. Aðstandendur skrifa í tilkynningunni að Halldóri hafi alla tíð verið annt um nemendur sína og nálgaðist þá ávallt af virðingu og mynduðust þar sterk vinabönd til lífstíðar. „Hann hafði einstakt lag á því að miðla þekkingu sinni og innsæi af sinni einkennandi ljúfmennsku,“ skrifa þau. Halldór lætur eftir sig eiginkonu, Susan Haraldsson, f. 1940, og börn, Katrínu, f. 1967 og Hákoni, f. 1969, barnabörn og barnabarnabörn. Útför hans fer fram fimmtudaginn 9. júlí klukkan 15:00 frá Hallgrímskirkju. Hér að neðan má hlusta á Halldór leika á píanó.
Andlát Tímamót Tónlist Mest lesið Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Lífið Ákvað strax að hann ætlaði ekki að fela stómað Tíska og hönnun Grætur enn að hafa misst af símtalinu Lífið Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Lífið Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Lífið Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Lífið Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Lífið Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Lífið Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Lífið Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Lífið Fleiri fréttir Ástarbréf til íslenskra költmynda „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Seiðandi Alaska heillaði gesti upp úr skónum Taylor Swift sló met á VMA-hátíðinni Myndaveisla: Aron Can var ekkert að flækja þetta Hafna ásökun um lagastuld og líður eins og bekkjartrúð á Íslandi Howie B og Hiraki Saka í Gamla bíó Allt kemur í ljós ef maður á geisladrif Allir gengu út af tónleikunum: „Ég fór heim og grét“ Myndaveisla: „Við sprengjum þetta hús í loft upp“ Sheeran bað aðdáendur afsökunar „Þú ætlar ekki að verða feilaður rappari“ besta mantran Fresta öðrum tónleikum sínum hérlendis vegna óvænts fráfalls ástvinar „Það tók viku að vinna í Rúriki“ Írar ekki með í Eurovision annað árið í röð „Ég ætlaði í lögfræði en tónlistin tók völdin“ „Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Fjórtán manns hita upp fyrir Mos Def í Gamla bíó Lifa í draumi og heiðra Eyfa Laufey djammaði með Robyn og Troy Sivan HAM boða endalok alls Ein langlífasta tónlistarhátíð landsins hefst í sautjánda sinn Afþakkar Grammy-tilnefningu Miley losar sig við eftirnafnið Skvísur og gæjar í útgáfuhófi Tatjönu Sjá meira