Áhyggjuefni að markmið kjarasamninga sé ekki að nást Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 26. júní 2026 12:02 Róbert Farestveit er sviðsstjóri hagfræði- og greiningardeildar ASÍ. Vísir/Lýður Valberg Verðbólga er að aukast þvert á spár en hækkun flugfargjalda vegur þar hvað þyngst. Hagfræðingur ASÍ segir áhyggjuefni að markmið kjarasamninga um minni verðbólgu og lægri vexti séu ekki að nást.
Hagstofan birti nýjar verðbólgutölur í morgun en vísitala neysluverðs hækkaði um 0,94% á milli mánaða. Ársverðbólga mælist nú 5,2% eða 0,1 stigi meira en í síðasta mánuði. Hækkunin er þvert á spár. „Við höfðum gert ráð fyrir óbreyttri verðbólgu milli mánaða og hún hækkar þá lítillega, ársverðbólgan, en í mínum huga er þetta mjög dökk verðbólgumæling. Þó að ársverðbólgan sé að breytast lítið milli mánaða þá er þetta mánaðarhækkun upp á 0,94% sem er veruleg aukning,“ segir Róbert Farestveit, hagfræðingur Alþýðusambands Íslands. Hann segir þrjá þætti skýra hækkunina að miklu leyti. „Það er þá í fyrsta lagi húsnæðiskostnaðurinn sem er enn að hækka nokkuð en síðan eru það ferðatengdir liðir. Það er annars vegar gistiþjónustan sem hækkar um tæplega fimmtung og síðan er það kostnaður við flugfargjöld sem er að hækka um 20% og er kannski það sem vegur þyngst í þessari mánaðarmælingu.“ Ef verðbólga mælist yfir 4, 7% þann 1. september næstkomandi verður hægt að segja kjarasamningum á almennum vinnumarkaði upp samkvæmt forsenduákvæði þeirra. „Sú spá sem við gerðum núna í lok maímánaðar gerði ráð fyrir að verðbólga væri í kringum 5, 1% í ágúst og við höfum í raun og veru haft áhyggjur af því frá því í byrjun árs að forsendur kjarasamninga muni bresta og kannski með þessum tölum þá virðist sú sviðsmynd vera að teiknast upp. Ef forsendur bresta þá er ekkert sjálfgefið að kjarasamningum verði sagt upp, það er eitthvað samtal sem stéttarfélögin þurfa að taka. En það er auðvitað áhyggjuefni fyrst og fremst það að markmið kjarasamninga um lægri verðbólgu og lægri vexti séu ekki að nást.“
Verðlag Kjaramál Kjaraviðræður 2023-25 Flug Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira