Fyrsta ebólutilfellið í Evrópu staðfest Freyja Þórisdóttir skrifar 24. júní 2026 16:49 Aðalframkvæmdastjóri Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) ræðir við fjölmiðla um ebólufaraldurinn og alþjóðleg heilbrigðismál á blaðamannafundi í höfuðstöðvum stofnunarinnar í dag, miðvikudaginn 24. júní. AP Í Frakklandi hefur fyrsta tilfelli ebólu verið staðfest en læknir sem var nýkominn aftur heim úr hjálparstarfi í Austur-Kongó er smitaður. Er þetta fyrsta staðfesta ebólutilfelli inna Evrópu. Ebólufaraldur hefur geisað í Mið-Afríku ríkinu síðustu vikur en einnig eru staðfest smit í nágrannaríkinu Úganda.
Í frétt breska ríkisútvarpsins (BBC) segir að franski læknirinn hafi verið „lagður samstundis inn á sérhæfða deild“ og að ástand hans sé stöðugt, en það hafa þeir eftir franska heilbrigðisráðuneytinu. Austur-Kongó tilkynnti um ebólufaraldur í síðasta mánuði, en í fréttinni er greint frá því að sérfræðingar telji veiruna hafa verið í umferð vikum saman áður en faraldurinn var tilkynntur. Staðfest sé að ríflega tvö hundruð og sextíu manns hafi látist af völdum veirunnar í þessu Mið-Afríkuríki og að alls hafi um þúsund manns smitast. Er þetta fyrsta ebólutilfellið sem staðfest hefur verið í Evrópu en bandarískur læknir sem greindist í Austur-Kongó fékk meðferð á þýsku sjúkrahúsi í maí síðastliðnum. Almenningur hafi ekkert að óttast Úganda, nágrannaríki Austur-Kongó, hefur einnig staðfest ebólutilfelli þar í landi. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) hefur greint frá því í tilkynningum að tuttugu manns hafi þegar smitast í landinu og að tvö dauðsföll hafi verið staðfest. Unnið er að því að rekja þá sem kunna að hafa verið í snertingu við lækninn en heilbrigðisstarfsfólk er í sérstakri hættu vegna ebólu, sem smitast með líkamsvessum. Þá hefur forstjóri WHO, Tedros Adhanom Ghebreyesus, sagt enga ástæðu til þess að örvænta og heilbrigðisráðuneyti Frakklands lagði áherslu á að hættan fyrir almenning væri „mjög lítil“. Núverandi ebólufaraldur stafar af Bundibugyo-afbrigði veirunnar, en ekkert bóluefni er til við því og hefur Frakkland komið á fót „sérstöku eftirlitskerfi“ fyrir hjálparstarfsfólk sem snýr aftur frá Austur-Kongó, að því er haft eftir franska heilbrigðisráðuneytinu í frétt BBC.
Ebóla Frakkland Austur-Kongó Tengdar fréttir Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Árásir á heilbrigðisstarfsmenn og sjálfboðaliða í Austur-Kongó hafa gert störf þeirra hættulegri og erfiðari. Tortryggnir og óttaslegnir íbúar hafa kastað grjóti í sjálfboðaliða sem reyna að vekja athygli á faraldri ebólu sem lýst hefur yfir á svæðinu og þá stafar þeim einnig ógn af víga- og glæpahópum sem hafa myrt þúsundir og stökkt gífurlegum fjölda á flótta á undanförnum árum. 26. maí 2026 11:30 Lýsa yfir neyðarástandi vegna ebólufaraldursins Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) hefur lýst yfir neyðarástandi á heimsvísu vegna nýs ebólufaraldursins sem geisar nú í Austur-Kongó. Mikil hætta er sögð á að faraldurinn breiðist út til nágrannaríkjanna. 18. maí 2026 08:56 Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Vučić játar ósigur Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira
Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Árásir á heilbrigðisstarfsmenn og sjálfboðaliða í Austur-Kongó hafa gert störf þeirra hættulegri og erfiðari. Tortryggnir og óttaslegnir íbúar hafa kastað grjóti í sjálfboðaliða sem reyna að vekja athygli á faraldri ebólu sem lýst hefur yfir á svæðinu og þá stafar þeim einnig ógn af víga- og glæpahópum sem hafa myrt þúsundir og stökkt gífurlegum fjölda á flótta á undanförnum árum. 26. maí 2026 11:30
Lýsa yfir neyðarástandi vegna ebólufaraldursins Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) hefur lýst yfir neyðarástandi á heimsvísu vegna nýs ebólufaraldursins sem geisar nú í Austur-Kongó. Mikil hætta er sögð á að faraldurinn breiðist út til nágrannaríkjanna. 18. maí 2026 08:56