Tónleikasvæðið á Þingvöllum fyrir og eftir: Eins og „góð mosatæting“ Lovísa Arnardóttir skrifar 23. júní 2026 20:02 Eftir tiltekt og á meðan henni stóð. Vísir/Bjarni og Viktor Freyr Þjóðgarðsvörður segir tónleikahátíðina Bergmál hafa gengið nokkuð vel fyrir sig um helgina og grasflatirnar komi vel undan viðburði. Stór rýnifundur verði haldinn á morgun og svo rýni þjóðgarðsnefnd það í sumar og haust hvort tilefni sé til að halda fleiri viðburði í garðinum.
Um tuttugu þúsund manns komu saman til að sækja tónleika Kaleo á Þingvöllum um liðna helgi. Í myndbandinu að neðan má sjá hátíðarsvæðið fyrir tónleikana og sömuleiðis á lokastigum frágangs. Í myndbandinu má sjá að mest sést á grasinu þar sem var setið til að borða og á gönguleiðum. Í aðdraganda tónlistarhátíðarinnar Bergmáls, sem fór fram um helgina, heyrðust áhyggjuraddir um að mögulega myndi viðburðahaldið valda raski á Þingvöllum. Um tuttugu þúsund manns sóttu hátíðina sem haldin var við bestu mögulegu aðstæður. Smári Jökull, fréttamaður Sýnar, skundaði á Þingvelli síðdegis í gær til að taka út aðstæður og sagði ekki hægt að sjá að það hefðu verið tuttugu þúsund manna tónleikar um helgina. Gott veður hafi aðstoðað við að halda grasi góðu. Góð mosatæting Einar Sæmundssen þjóðgarðsvörður tekur undir það og segir veðrið hafa hjálpað mjög mikið. „Þessar flatir koma mjög vel undan þessum viðburði,“ segir hann en rætt var við hann í kvöldfréttum Sýnar í gær. Hann segir viðburðinn þannig hafa virkað sem „góða mosatætingu“. Það eigi enn eftir að hreinsa upp kamra og smá rusl og svo í dag eigi ryksugubíll að ryksuga smæsta ruslið. Einar segir þurfa að rýna allt til gagns og það sé margt á viðburðinum sem hafi heppnast vel en það sé sumt sem þurfi að skoða og það verði gert á morgun á stórum rýnifundi með lögreglu og öðrum viðbragðsaðilum. „Þá munum við fara yfir útfærsluna og margt sem má skoða og bæta ef það verður annar svona viðburður, en ég er ekki að lofa honum.“ Skoða frekara tónleikahald Spurður hvort það sé eitthvað því til fyrirstöðu að halda svona viðburð segir Einar stærðargráðuna mögulega til skoðunar en að þjóðgarðsnefndin muni taka þetta til skoðunar í sumar og haust og fara yfir reynsluna. „En þetta var sannarlega ógleymanlegur dagur hérna.“ Ryksuga smárusl í þjóðgarðinum Ósk Gunnarsdóttir kom að skipulagningu tónleikanna og var til viðtals í Bítinu á Bylgjunni í gærmorgun. Þá sagði hún skipuleggjendur enn í hreinsunarfasa og að þeir gætu í raun ekki „fagnað lokum“ fyrr en eftir viku og allt væri búið. Hún sagði mikilvægt fyrir alla sem komu að viðburðinum að það yrði gengið vel frá og þau ætluðu að gera það. Sviðið hafi verið farið niður klukkan átta á sunnudagskvöldi og svo hafi stórt hreinsunarteymi tekið við á sunnudegi. Hún sagði engan svona viðburð ganga upp án góðrar aðstöðu fyrir salerni og rusl. Jakob Frímann Magnússon, skipuleggjandi tónlistar- og fjölskylduhátíðarinnar, var svo til viðtals í Reykjavík síðdegis um sama mál. Hann sagðist á kafi í frágangi. Hann hafi hafist um leið og tónleikunum lauk og næstu daga yrði unnið að því að taka allan búnað. Það ætti til dæmis að ryksuga túnið til að ná, til dæmis, nikótínpúðunum upp úr grasinu. Jakob sagði skipulagninguna lexíu sem yrði færð til bókar. Markmiðið hafi verið sett hátt að skipuleggja best skipulögðu tónleika á Íslandi. Náttúruöflin séu ekki fyrirsjáanleg en það hafi ekkert komið illa á óvart þarna. Skipulagið að tónleikunum geti verið gagnlegt fyrir aðra sem halda viðburði þarna eða annars staðar. Skipulagið hafi verið agað og vel fundað.
Þingvellir Tónleikar Kaleo á Þingvöllum 2026 Tónleikar á Íslandi Tónlist Reykjavík síðdegis Bítið Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Bíði og bíði eftir Bjarna Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Fleiri fréttir Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Sjá meira