Jóhann Örn fulltrúi Íslands í Mr. Bear Europe Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 23. júní 2026 11:00 Jóhann Örn er Mr. Reykjavík bear. Sunna Ben Jóhann Örn B. Benediktsson, fyrsti handhafi titilsins Mr. Reykjavík Bear, mun keppa fyrir Íslands hönd í Mr. Bear Europe sem fer fram í Lissabon í júlí.
Sýnilegur fulltrúi Íslands Reykjavík Bear er ein af stærri hinsegin hátíðum landsins og er haldin árlega í Reykjavík af Bangsafélaginu og dregur að sér bæði innlenda og erlenda gesti, auk fjölda sjálfboðaliða. Jóhann Örn er 34 ára, uppalinn í Miðfirði og búsettur í miðbæ Reykjavíkur. Hann er meðlimur í Bangsafélaginu, sem heldur Reykjavík bear hátíðina á hverju ári. Frá því að Jóhann hlaut titilinn hefur hann ferðast víða um Evrópu sem Mr. Reykjavík Bear og hefur verið sýnilegur fulltrúi Íslands á alþjóðlegum vettvangi. Hann hefur verið dómari í keppnum annarra landa og tekið að sér ýmis hlutverk fyrir sýnileika íslenska bangsasamfélagsins. Líkamsvirðing í forgrunni Keppnin Mr. Bear Europe, eða Herra bangsi Evrópu, hefur verið haldin síðan árið 2017 en fyrsti Mr. Bear í Evrópu var valinn árið 1989 í Þýskalandi. Mr. Bear keppnir eru haldnar alls staðar í heiminum en fyrsta alþjóðlega keppnin var haldin árið 1992 í San Francisco. Nú þegar Ísland hefur valið sér sinn fyrsta fulltrúa opnast tækifæri fyrir íslensku bangsana að taka þátt á erlendum vettvangi. Jóhann Örn er 34 ára og var valinn Mr. Reykjavík Bear síðastliðið haust. Sunna Ben Í fréttatilkynningu segir: Bangsakeppnir eru ólíkar hefðbundnum fegurðarsamkeppnum. Þær snúast ekki um kröfur samfélagsins um hinn svokallaða „fullkomna“ líkama, heldur fagna fjölbreyttum líkamsgerðum og persónuleikum. Bangsar, líkt og nafnið bendir til eru oft kenndir við birni og oft eru þeir þykkir og hárugir. Sýnileiki ólíkra líkama skiptir máli. Fegurðarviðmið samfélagsins hafa lengi verið útilokandi, en líkamsvirðing snýst um að fleiri fái að sjá sína líkamsgerð endurspeglaða í samfélaginu. Þátttaka Jóhanns í Mr. Bear Europe er því meira en keppni. Hún er tækifæri til að minna á að hinsegin samfélagið er fjölbreytt, lifandi og sterkara þegar fólk fær að sjást eins og það er.“ Næsta Reykjavík Bear hátíð verður haldin dagana 3.–6. september 2026. Þar mun Jóhann krýna næsta handhafa titilsins Mr. Reykjavík Bear.
Hinsegin Gleðigangan Mest lesið „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Menning Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Lífið Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar Bíó og sjónvarp Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Bíó og sjónvarp Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Menning Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Fleiri fréttir Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Sjá meira