Má ekki spila en hjálpar til við met: „Frekar skrýtið að horfa á þessa leiki“ Sindri Sverrisson skrifar 21. júní 2026 12:30 Atli Þór Jónasson hefur komið öflugur inn í lið Fram, að láni frá Víkingi. vísir/Diego Atli Þór Jónasson, framherjinn stóri og stæðilegi í liði Fram, má ekki spila stórleikinn við Íslandsmeistara Víkings í Úlfarsárdal í kvöld. Hann verður því í stúkunni og hjálpar til við að setja mögulega áhorfendamet í blíðviðrinu. Fimm leikir eru í Bestu deildinni í kvöld, þar af fjórir klukkan 18, en lokaleikur kvöldsins er sannkallaður risaleikur á milli Fram og Víkings, klukkan 20:15 á Lambhagavellinum. Ellefta umferð Bestu deildar karla: Sunnudagurinn 21. júní: 17.50 Subway-messan (Sýn Sport Ísland) 18.00 Breiðablik - KA (Sýn Sport Ísland 2) 18.00 Valur - Keflavík (Sýn Sport Ísland 3) 18.00 ÍBV - Stjarnan (Sýn Sport Ísland 4) 18.00 FH - Þór (Sýn Sport Ísland 5) 20.15 Fram - Víkingur (Sýn Sport Ísland) Mánudagurinn 22. júní: 19.15 KR - ÍA (Sýn Sport Ísland) 21.20 Stúkan (Sýn Sport Ísland) Víkingar unnu KR í síðasta leik og eru taplausir á toppi Bestu deildarinnar en Fram getur með sigri í kvöld komist upp í 2. sæti, og minnkað forskot Víkings í fimm stig. Atli skoraði tvö mörk í síðasta leik með Fram, í 4-3 sigrinum gegn KA á Akureyri, en þar sem hann er að láni hjá Fram frá Víkingi þá fær hann ekki að láta ljós sitt skína í kvöld. „Auðvitað til í að spila leikinn“ „Það er frekar leiðinlegt. Ég missti líka af bikarleiknum á móti Víkingi en svona er þetta bara. Það stendur í samningnum mínum að ég megi ekki spila og það verður að fara eftir reglunum en maður væri auðvitað til í að spila leikinn. Það er geggjað veður…“ segir Atli í samtali við Vísi í dag. „Það er frekar skrýtið að horfa á þessa leiki, sérstaklega bikarleikinn. Kennie skoraði þarna á fimmtu mínútu og maður fagnaði auðvitað, en svo skoraði Víkingur og þá fagnaði maður líka smá. Þetta er mjög skrýtið allt saman,“ segir Atli. Rúnar Kristinsson gerði leikmönnum sínum grein fyrir því að Fram hefði ekki byrjað betur í næstum fjóra áratugi.vísir/Diego Bikarleikur Fram og Víkings í byrjun apríl var afar spennandi en eftir að Fram hafði jafnað í 2-2 á 78. mínútu náðu Víkingar að skora tvö mörk og tryggja sér 4-2 sigur. Fellur áhorfendametið í kvöld? Framarar hafa svo sýnt það í Bestu deildinni að þeir eru til alls líklegir og liðið hefur aðeins tapað einum deildarleik af tíu hingað til, gegn Þór á Akureyri í apríl. „Þetta er búin að vera mjög góð byrjun en það er enn fullt eftir. Það þýðir ekkert að stoppa núna, við þurfum bara að halda áfram og keyra á þetta,“ segir Atli. „Ég held að þetta verði bara hörkuleikur í kvöld. Rúnar [Kristinsson, þjálfari Fram] var að tala um það í klefanum á föstudaginn að þetta væri besta byrjun Fram í 38 ár. Það er góð hvatning fyrir strákana. Ég býst við mikið af fólki uppi í stúku í kvöld,“ segir Atli. Áhorfendametið á Lambhagavellinum var sett fyrir rúmum tveimur árum, þegar 1.861 manns mættu á fyrsta leik tímabilsins og sáu Fram vinna Vestra 2-0. „Það væri geggjað að fá 2.000 manns á völlinn,“ segir Atli sem eins og fyrr segir leggur sitt af mörkum með því að fá sér sæti í stúkunni í kvöld. Besta deild karla Fram Víkingur Reykjavík Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Engin uppalin spilaði með Fram Íslenski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjá meira
Fimm leikir eru í Bestu deildinni í kvöld, þar af fjórir klukkan 18, en lokaleikur kvöldsins er sannkallaður risaleikur á milli Fram og Víkings, klukkan 20:15 á Lambhagavellinum. Ellefta umferð Bestu deildar karla: Sunnudagurinn 21. júní: 17.50 Subway-messan (Sýn Sport Ísland) 18.00 Breiðablik - KA (Sýn Sport Ísland 2) 18.00 Valur - Keflavík (Sýn Sport Ísland 3) 18.00 ÍBV - Stjarnan (Sýn Sport Ísland 4) 18.00 FH - Þór (Sýn Sport Ísland 5) 20.15 Fram - Víkingur (Sýn Sport Ísland) Mánudagurinn 22. júní: 19.15 KR - ÍA (Sýn Sport Ísland) 21.20 Stúkan (Sýn Sport Ísland) Víkingar unnu KR í síðasta leik og eru taplausir á toppi Bestu deildarinnar en Fram getur með sigri í kvöld komist upp í 2. sæti, og minnkað forskot Víkings í fimm stig. Atli skoraði tvö mörk í síðasta leik með Fram, í 4-3 sigrinum gegn KA á Akureyri, en þar sem hann er að láni hjá Fram frá Víkingi þá fær hann ekki að láta ljós sitt skína í kvöld. „Auðvitað til í að spila leikinn“ „Það er frekar leiðinlegt. Ég missti líka af bikarleiknum á móti Víkingi en svona er þetta bara. Það stendur í samningnum mínum að ég megi ekki spila og það verður að fara eftir reglunum en maður væri auðvitað til í að spila leikinn. Það er geggjað veður…“ segir Atli í samtali við Vísi í dag. „Það er frekar skrýtið að horfa á þessa leiki, sérstaklega bikarleikinn. Kennie skoraði þarna á fimmtu mínútu og maður fagnaði auðvitað, en svo skoraði Víkingur og þá fagnaði maður líka smá. Þetta er mjög skrýtið allt saman,“ segir Atli. Rúnar Kristinsson gerði leikmönnum sínum grein fyrir því að Fram hefði ekki byrjað betur í næstum fjóra áratugi.vísir/Diego Bikarleikur Fram og Víkings í byrjun apríl var afar spennandi en eftir að Fram hafði jafnað í 2-2 á 78. mínútu náðu Víkingar að skora tvö mörk og tryggja sér 4-2 sigur. Fellur áhorfendametið í kvöld? Framarar hafa svo sýnt það í Bestu deildinni að þeir eru til alls líklegir og liðið hefur aðeins tapað einum deildarleik af tíu hingað til, gegn Þór á Akureyri í apríl. „Þetta er búin að vera mjög góð byrjun en það er enn fullt eftir. Það þýðir ekkert að stoppa núna, við þurfum bara að halda áfram og keyra á þetta,“ segir Atli. „Ég held að þetta verði bara hörkuleikur í kvöld. Rúnar [Kristinsson, þjálfari Fram] var að tala um það í klefanum á föstudaginn að þetta væri besta byrjun Fram í 38 ár. Það er góð hvatning fyrir strákana. Ég býst við mikið af fólki uppi í stúku í kvöld,“ segir Atli. Áhorfendametið á Lambhagavellinum var sett fyrir rúmum tveimur árum, þegar 1.861 manns mættu á fyrsta leik tímabilsins og sáu Fram vinna Vestra 2-0. „Það væri geggjað að fá 2.000 manns á völlinn,“ segir Atli sem eins og fyrr segir leggur sitt af mörkum með því að fá sér sæti í stúkunni í kvöld.
Ellefta umferð Bestu deildar karla: Sunnudagurinn 21. júní: 17.50 Subway-messan (Sýn Sport Ísland) 18.00 Breiðablik - KA (Sýn Sport Ísland 2) 18.00 Valur - Keflavík (Sýn Sport Ísland 3) 18.00 ÍBV - Stjarnan (Sýn Sport Ísland 4) 18.00 FH - Þór (Sýn Sport Ísland 5) 20.15 Fram - Víkingur (Sýn Sport Ísland) Mánudagurinn 22. júní: 19.15 KR - ÍA (Sýn Sport Ísland) 21.20 Stúkan (Sýn Sport Ísland)
Besta deild karla Fram Víkingur Reykjavík Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Engin uppalin spilaði með Fram Íslenski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjá meira