„Aðstæðurnar eru erfiðar og þetta tekur á“ Stefán Árni Pálsson skrifar 16. júní 2026 09:03 Jón Þór gerir tveggja ára samning við félagið. vísir/lýður Jón Þór Hauksson stýrir Stjörnunni í sínum fyrsta leik gegn Blikum í Bestu-deild karla í kvöld. Hann segir að mikið búi í mannskapnum og liðið geti horft upp á við.
Jón var tilkynntur sem nýr þjálfari liðsins um helgina en Jökull Elísabetarsson var látinn fara frá félaginu á föstudaginn. Stjarnan er sem stendur í níunda sæti deildarinnar með 10 stig. Í síðustu viku tapaði liðið fyrir Lengjudeildarliði Aftureldingar í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins og var það kornið sem fyllti mælinn hjá forráðamönnum Stjörnunnar. Jón Þór kemur til Stjörnunnar frá Vestra en hann hefur verið hluti af þjálfarateymi liðsins frá síðasta sumri. „Þetta gerðist mjög hratt og aðdragandinn var stuttur,“ segir Jón í Sportpakkanum á Sýn í gærkvöldi. „Það var stutt í næsta leik og það þurfti að vinna hratt og það gerðist og hér er ég kominn. Nú þarf að bretta upp ermar hér og henda sér strax í það. Sem betur fer er fullt af góðu fólki hérna í klúbbnum og hér er vel haldið á málum og ég er að taka við mjög góðu búi af Jökli. Liðið er vel þjálfað og vel skipulagt. Auðvitað hjálpar það en aðstæðurnar eru erfiðar og þetta tekur á.“ Þurfa laga ákveðna hluti Jón segir samt sem áður að liðið sé einstaklega vel mannað. „Það er skipað virkilega góðum leikmönnum og það dylst engum. En þegar svona staða kemur upp þá eru ákveðnir hlutir sem þarf að laga og bæta og við hendum okkur í það,“ segir Jón en fyrsti leikur hans með liðið er í kvöld gegn Breiðabliki. „Breiðabliksliðið er vel skipað og gott lið þannig að það verður ærið verkefni,“ segir Jón sem gerir tveggja ára samning við félagið. Hér að neðan má sjá viðtalið í heild sinni.
Besta deild karla Stjarnan Mest lesið Fíklar í fráhvörfum: „Öskra þarna á einn átta ára að gefa boltann“ Enski boltinn UEFA logar í ljósi áforma Infantino: „Sál fótboltans ekki til sölu“ Fótbolti Hausverkur fyrir Iraola Enski boltinn Uppgjörið: KA - Þór 0-0 | Steindauður norðanslagur Íslenski boltinn Sonurinn skaut móður sína Sport Mbappé sár eftir HM Fótbolti Eiginkona þjálfara hjá Chiefs skotin Sport Gylfi ósáttur: „Ótrúleg ákvörðun hjá KSÍ“ Sport Rosenborgarar Freys óstöðvandi Fótbolti Sölvi keyptur til KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Ekki það sem við lögðum upp með“ Sara Björk leitar enn fyrsta sigursins Njarðvík marði botnliðið Uppgjörið: Stjarnan - Grindavík/Njarðvík 0-0 | Fer seint í sögubækurnar Uppgjörið: Þróttur - Víkingur 1-1 | Botnliðið náði í stig Tókst á við stjörnurnar í La Liga en heldur nú til Þórs Sölvi keyptur til KR „Frábær leikmaður og skemmtilegur karakter sem við munum sakna“ Sjáðu Ágúst Orra tryggja Breiðabliki sigur og viðhalda ótrúlegri tölfræði Freyja seld til Svíþjóðar Valdi tíu verstu augnablik Stjörnumanna á Skaganum: „Eins og þeir væru drukknir“ Dagskráin í dag: Bikarúrslitaliðin í eldlínunni „Góðir tímar framundan“ „Hefði nú verið betra að vera með tvo sigra“ „Mjög ánægður með margt í leiknum en óánægður með jafntefli“ Uppgjörið: KA - Þór 0-0 | Steindauður norðanslagur „Þetta eru fagmenn sem lifa fyrir boltann“ Fyrirliði Njarðvíkur til Vals Uppgjörið: Breiðablik - ÍBV 1-0 | Ágúst Orri hetjan Aðstoðarþjálfari Jökuls í Vesturbæinn „Við eigum harma að hefna“ Sjáðu mörkin þegar ÍA kjöldró Stjörnuna Rúnar: Ég hef aldrei farið á Þjóðhátíð Jón Þór: „Ég er algjörlega orðlaus“ Jóhannes Karl: Strákarnir eiga skilið frí yfir helgina Uppgjörið: ÍA-Stjarnan 5-1 | Draumabyrjun ÍA í martraðarheimkomu Jóns Þórs Uppgjörið: FH-Fram 0-0 | Mörg mörk síðast en ekkert í kvöld Kláraði Harvard og samdi við Blika Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Í skýjunum eftir sögulegan sigur: „Þetta var dýrðardagur“ Sjá meira