Skar kindur á háls án þess að svipta þær meðvitund fyrst Agnar Már Másson skrifar 15. júní 2026 15:51 Matvælastofnun greinir frá þessu. Vísir/Eiður Matvælastofnun kærði í maí nautgripabónda til lögreglu fyrir barsmíðar á kúm og kvígum. Einnig var sauðfjárbóndi sektaður fyrir að skera tvær kindur á háls án þess að svipta þær meðvitund fyrst eins og skylt er.
Þetta er meðal þess er greint er í yfirliti yfir stjórnvaldsákvarðanir MAST í dýravelferðarmálum febrúar, mars, apríl og maí 2026. Þar er fjöldi mála færður til bókar, til dæmis sviptingar gæludýra vegna óviðeigandi heimilisaðstæðna. Ofangreint mál átti sér stað í maí. Í febrúar var til dæmis umráðamaður hrossa sviptur vörslum á stórri hrossahjörð þar sem fóðrun þeirra var ófullnægjandi. Með dýragarð heima hjá sér Í mars var umráðamaður margra gæludýra sviptur vörslum á þeim öllum. Um var að ræða mikinn fjölda dýra – svo sem hunda, katta, fugla og skrautfiska – sem hann taldist engan veginn ráða við að annast með fullnægjandi hætti, að sögn MAST. Í sama mánuði var sauðfjárbóndi sviptur vörslum alls sauðfjár vegna endurtekinna brota á velferð þess. Vörslusviptingin tekur gildi 1. október hafi bóndinn ekki áður ráðstafað sjálfur fénu frá sér. Skar kindur á háls án þess að svipta þær meðvitund fyrst Í apríl var umráðamaður katta sviptur vörslum kattanna og sektaður um 144 þúsund krónur. Hann hafði farið í vikufrí án þess að gera ráðstafanir fyrir pössun eða eftirliti með læðu og kettlingum. Í sama mánuði var umráðamaður stórrar hrossahjarðar sviptur vörslum hrossanna fyrir að vanrækja fóðrun og brynningu og ekki hugað að sjúkum og horuðum hrossum svo viðunandi væri. Í maí var sauðfjárbónda á Íslandi gert að greiða 286 þúsund krónur í stjórnvaldssekt fyrir að skera tvær kindur sínar á háls án þess að svipta þær meðvitund fyrst eins og skylt er.
Matvælastofnun Dýr Dýraheilbrigði Sauðfé Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira