Hvort hefja eigi inngöngu í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar 15. júní 2026 07:01 Fyrirhugað þjóðaratkvæði í lok sumars snýst fyrst og síðast um það hvort hefja eigi inngöngu í Evrópusambandið eða ekki. Umsóknarferlið að sambandinu gengur enda einkum út á fulla aðlögun að löggjöf þess og stjórnsýslu samhliða viðræðum um inngönguna. Aðlögunin er þannig hluti af því ferli að ganga í Evrópusambandið. Hér áður fyrr fór hún fram eftir að ríki gengu í sambandið en var síðan færð fram fyrir formlega inngöngu í það þegar farið var að taka inn ríki í Austur-Evrópu. Aðlögunin mun því vera orðinn hlutur þegar samningur liggur fyrir sem kjósendur geta kosið um. Fullyrðingar um að samið hafi verið um það við Evrópusambandið þegar umsóknarferlið var í gangi síðast að engin aðlögun ætti sér stað fyrr en samningur hefði verið samþykktur samrýmast hvorki gögnum sambandsins um umsóknarferlið almennt né í tengslum við umsóknarferli Íslands síðast. Þar er enda að finna skýra kröfu um aðlögun áður en hægt væri að loka tilteknum viðræðuköflum. Þar á meðal köflum sem falla ekki undir EES-samninginn og þar sem engin aðlögun hafði fyrir vikið þegar átt sér stað. Hafi slíkt samkomulag verið gert er því ljóst að ekki hefur verið farið eftir því. Morgunblaðið reyndi ítrekað að fá gögn um meint samkomulag við Evrópusambandið afhent frá utanríkisráðuneytinu fyrr á árinu en að lokum reyndust engin slík gögn til. Kveðið er beinlínis á um aðlögunina að sambandinu samhliða viðræðum um inngöngu í það í greinargerðinni með þingsályktun Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðið: „Á það er gjarnan bent að aðildarviðræður við ESB snúist um að ný aðildarríki lagi sig að reglum sambandsins. Má þetta til sanns vegar færa, enda væri Ísland að ganga í ríkjabandalag með fyrirliggjandi reglum.“ „Viðfangsefni samningaviðræðna um inngöngu er geta umsóknarríkis til þess að standa undir þeim skuldbindingum sem fylgja veru í sambandinu. Hugtakið „samningaviðræður“ getur verið villandi,“ segir í upplýsingabæklingi Evrópusambandsins um umsóknarferlið. Viðræðurnar snúist enda um upptöku, innleiðingu og framkvæmd umsóknarríkisins á reglum þess. Þá segir í viðræðuramma sambandsins vegna umsóknar Íslands á sínum tíma sem ætlunin er að endurvekja: „Rétt innleiðing Íslands á regluverkinu og framkvæmd þess [….] mun ákvarða hversu hratt viðræðurnar ganga fyrir sig.“ Mikilvægt er fólk viti hvað verið er að opna á ef niðurstaðan verður já í lok ágúst. Aðlögunin er hluti af því ferli að ganga í Evrópusambandið og mun eiga sér stað áður en kjósendur geta sagt álit sitt á samningi sem fyrr segir. Fyrir vikið snýst þjóðaratkvæðið um það hvort hefja eigi inngöngu í sambandið eða ekki. Það er ekkert til sem heitir að kíkja í pakkann. Það er ekkert til sem heitir að sjá hvað verði í boði. Það liggur fyrir í öllum meginatriðum eins og forystumenn Evrópusambandsins hafa ítrekað bent á. Já í ágúst þýðir einfaldlega að hafin verður innganga í sambandið. Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Halldór 22.10.26 Halldór Baldursson Halldór Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar