„Hlakka mikið til að ná fleiri áföngum fyrir Ísland“ Sindri Sverrisson skrifar 9. júní 2026 10:01 Gunnlaugur Árni Sveinsson heldur áfram að ryðja brautina fyrir hönd íslenskra kylfinga. Getty/Tanner Pearson Kylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson var gripinn í viðtal við Golf Channel nokkrum sekúndum eftir að hann tryggði sig, fyrstur íslenskra karla, inn á Opna bandaríska meistaramótið í golfi í gærkvöld. Þar kvaðst hann afar stoltur af því að vera brautryðjandi fyrir íslenskt golf.
Gunnlaugur Árni, eða Árni eins og Golf Channel kallar hann, spilar á sínu fyrsta risamóti í næstu viku, í beinni útsendingu á Sýn Sport, þegar Opna bandaríska hefst 18. júní. Hann tryggði sig inn á mótið eftir æsispennandi lokaúrtökumót í Ohio í gær þar sem úrslitin réðust í bráðabana. Gunnlaugur Árni var þar í fjögurra manna bráðabana um þrjú laus sæti og komst inn ásamt til að mynda J.B. Holmes og Davis Thompson, á meðan menn á borð við Lucas Glover, sem vann Opna bandaríska árið 2009, og Jhonattan Vegas sátu eftir með sárt ennið. With rounds of 67-68 at Lakes Golf & Country Club, Arni Sveinsson becomes the FIRST player from Iceland to qualify for the @USOpenGolf 🇮🇸👏 pic.twitter.com/OLNjwz2fxN— Golf Channel (@GolfChannel) June 9, 2026 „Ég er virkilega stoltur af að vera frá Íslandi og það fylgir mér, að vera sá sem minna má sín (e. underdog) og þurfa að brjóta niður múra og ná áföngum sem enginn hefur áður náð,“ sagði Gunnlaugur Árni í viðtali við Golf Channel. „Þetta er mikill heiður og ég hlakka mikið til að ná fleiri áföngum fyrir Ísland,“ bætti hann við en brot úr viðtalinu má sjá hér að ofan. Gunnlaugur, sem er úr GKG, hefur áður náð merkum áföngum fyrstur íslenskra kylfinga, þrátt fyrir að vera enn aðeins tvítugur. Hann vakti snemma athygli með frammistöðu sinni sem nýnemi í bandaríska háskólagolfinu, haustið 2024 með Louisiana State háskólanum sem hann spilar enn fyrir. HE'S A FRESHMAN! LSU's Árni Sveinsson shoots 5-under for the day, and leads entering the final round of the Blessings Collegiate Invitational. pic.twitter.com/zmhkcGEIWA— Golf Channel (@GolfChannel) October 1, 2024 Svo vel stóð hann sig að hann var í ársbyrjun 2025 valinn sem einn af tólf fulltrúum Evrópu í Bonallack Trophy, mót í anda Ryder Cup þar sem bestu áhugakylfingar Evrópu mæta bestu áhugakylfingum Asíu og Eyjaálfu. Þar stóð Gunnlaugur Árni sig frábærlega og vann til að mynda indverskt undrabarn, þó að Evrópuliðið hafi á endanum tapað. Þá fór hann hratt upp heimslista áhugakylfinga og náði í janúar 2025 besta sæti sem Íslendingur hefur náð þar, þegar hann komst í 96. sæti. Hann hefur síðan hæst komist upp í 8. sæti listans. Gunnlaugur Árni keppti svo á Arnold Palmer bikarnum, sterkasta áhugakylfingamóti heims, í fyrrasumar og fagnaði þar sigri með alþjóðlega liðinu gegn Bandaríkjamönnum. Hann keppir aftur á því móti í byrjun júlí. Hann fagnaði líka sigri á firnasterku háskólamóti í Mississippi um haustið, á sínu öðru ári í háskóla, eftir að hafa lent í 2. sæti á öðru háskólamóti, og hélt áfram að gera frábæra hluti með liði LSU-skólans. Frammistaðan skilaði sér meðal annars í samningi við sömu umboðsskrifstofu og Scottie Scheffler er hjá. Þá er skammt síðan að Gunnlaugur Árni komst með LSU inn á sjálft úrslitamót bandaríska háskólagolfsins. Eftir að hafa daðrað við risamótin síðustu misseri er svo núna komið að því að Gunnlaugur Árni spili, fyrstur Íslendinga, á sjálfu Opna bandaríska meistaramótinu á Shinnecock Hills í Southampton í New York-fylki sem fram fer dagana 18.-21. júní og verður í beinni útsendingu á Sýn Sport.
Golf Opna bandaríska Tengdar fréttir Fórnar bandarískum háskólapartýum til að ná á toppinn Gunnlaugur Árni Sveinsson hefur verið að gera frábæra hluti á sínu fyrsta ári í bandaríska háskólagolfinu, með LSU Tigers frá Louisiana State háskólanum. Markmiðin eru háleit og skýr svo að hann sneiðir hjá partýunum á háskólasvæðinu. 14. apríl 2025 12:31 Mest lesið Klipptu Trump út af bikarmyndinni en Hvíta húsið bætti honum aftur inn Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Íslenski boltinn Mætti ekki á úrslitaleik HM til að mótmæla Fifa Sport Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Íslenski boltinn Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Enski boltinn Hituðu upp fyrir heimsleikana í CrossFit með því að trúlofa sig Sport Gaf mömmu sinni gullmedalíuna: Gekk ófrísk og berfætt yfir eyðimörkina Fótbolti Argentína nú þegar undir rannsókn Fótbolti Fleiri fréttir „Ég ætla ekki að segja neitt sem ég má ekki segja“ Rory var „fastur í hlutlausum“ allt mótið og segist vera á leið í frí „Ég fann ekki fyrir neinu við púttið því allt skalf svo mikið“ Scheffler segir DeChambeau „klárlega ekki vera svindlara“ Fox sýndi stáltaugar og vann sitt fyrsta risamót Young flaug inn í toppbaráttuna og Scheffler skammt undan Aron og Guðrún með forystu fyrir lokahringinn McIlroy pirraður á athyglissjúkum DeChambeau Burns leiðir á Birkdale og líkur á sögulegum sigri Sá þriðji sem jafnar vallarmetið Púttin að leika Scheffler grátt DeChambeau refsað eftir hringinn og dettur niður í fimmta sæti DeChambeau einu höggi frá toppsætinu eftir fugla á lokaholunum Íslendingar í stórum hlutverkum á The Open Tveir kylfingar jafna besta hringinn á risamóti Stuttu pútti frá besta hring sögunnar „Of mörg heimskuleg mistök“ Hafði aldrei komið til Evrópu en nú er hann efstur á Opna breska Vonar að hann fái að halda áfram að reykja „Er það ekki fullkominn dagur? Golf og fótbolti“ „Ég sef í bílnum ef ég þarf“ „Ég er svo lélegur í golfi“ Ragnhildur hlaut hálfa milljón í þriðja sæti í Englandi Gunnlaugur Árni íþróttakarl ársins í LSU Íslensku liðin hófu leik á Evrópumótinu í holukeppni Gunnlaugur Árni vann Arnold Palmer-bikarinn Tveir íslenskir kylfingar í efstu tíu sætunum Bjargaði fugli úr tjörn í miðjum golfhring Fá að skoða sjúkraskrár Tigers Woods Níu ára fór holu í höggi með ömmu og afa Sjá meira
Fórnar bandarískum háskólapartýum til að ná á toppinn Gunnlaugur Árni Sveinsson hefur verið að gera frábæra hluti á sínu fyrsta ári í bandaríska háskólagolfinu, með LSU Tigers frá Louisiana State háskólanum. Markmiðin eru háleit og skýr svo að hann sneiðir hjá partýunum á háskólasvæðinu. 14. apríl 2025 12:31