Hvers vegna styðja Íslendingar dánaraðstoð og hvað veldur andstöðu? Ingrid Kuhlman skrifar 10. júní 2026 08:01 Umræðan um dánaraðstoð snýst sjaldnast um einfalt já eða nei. Hún snýst um það hvernig samfélag vill mæta fólki við lífslok, þegar þjáning, sjálfræði, vernd og mannleg reisn mætast. Niðurstöður könnunar sem Maskína framkvæmdi fyrir Lífsvirðingu dagana 16. til 19. mars 2026 varpa skýru ljósi á þessi ólíku sjónarmið. Könnunin sýnir að stuðningur við dánaraðstoð er mikill. Meirihluti svarenda, eða 73,3%, er hlynntur því að einstaklingar geti fengið dánaraðstoð við ákveðnar aðstæður. Þá eru 17,6% óviss og 9% andvíg. Afstaða fólks mótast þó af ólíkum og stundum andstæðum rökum og áhyggjum. Til að skilja niðurstöðurnar betur þarf því að horfa til þeirra gilda og sjónarmiða sem liggja að baki afstöðunni. Rökin með dánaraðstoð: sjálfræði, mannúð og reisn Í spurningunni um helstu rök fyrir stuðningi við dánaraðstoð, sem einungis var lögð fyrir þá sem lýstu sig fylgjandi, gátu svarendur valið úr sex svarmöguleikum og raðað þremur þeirra í mikilvægisröð. Þegar öll svör eru skoðuð kemur skýrt fram að algengasta röksemdin snýr að því að lina þjáningu. Alls segja 86,4% að dánaraðstoð geri fólki kleift að ljúka lífi sínu á mannúðlegan hátt vegna alvarlegrar skerðingar á lífsgæðum og/eða óbærilegrar þjáningar. Sjálfræði vegur einnig þungt. Tæp 65% telja dánaraðstoð hluta af mannréttindum einstaklingsins til sjálfsákvörðunar um eigin lífslok. Þá telja 47% að hún gefi einstaklingum möguleika á að viðhalda mannlegri reisn þegar sjálfstæði hefur glatast, og rúmlega 43% segja lögleidda dánaraðstoð tryggja skýr skilyrði og faglegt eftirlit. Athygli vekur að 37% nefna að vissan um að dánaraðstoð sé í boði veiti hugarró, jafnvel þótt úrræðið sé ekki nýtt. Þetta gefur til kynna að fyrir marga snúist málið ekki aðeins um dánaraðstoðina sjálfa heldur einnig um öryggistilfinningu, valmöguleika og tilfinningu fyrir stjórn við lífslok. Rúmlega 5% þeirra sem eru fylgjandi vísa til persónulegrar reynslu af ástvini sem óskaði eftir dánaraðstoð. Gögnin gefa til kynna að stuðningur við dánaraðstoð byggist sjaldnast á einni röksemd. Flestir vísa til fleiri þátta í senn, einkum mannúðar, sjálfræðis, reisnar og traustrar lagaumgjarðar. Rökin gegn dánaraðstoð: áhyggjur af misnotkun og þrýstingi Í spurningunni um helstu rök gegn dánaraðstoð, sem einungis var lögð fyrir þá sem lýstu sig andvíga, gátu svarendur valið úr níu svarmöguleikum og raðað þremur þeirra í mikilvægisröð. Þegar litið er á öll svör kemur í ljós að helstu áhyggjur snúa að misnotkun og vernd viðkvæmra hópa. Alls nefna 61,7% hættu á misnotkun og rúmlega 53% óttast að viðkvæmir hópar, svo sem fatlað fólk, aldraðir eða félagslega einangraðir einstaklingar, gætu fundið fyrir beinum eða óbeinum þrýstingi. Um helmingur hefur einnig áhyggjur af því að viðmið eða skilyrði geti víkkað með tímanum og að lögleiðing þróist þannig umfram upphaflegar forsendur. Niðurstöðurnar endurspegla jafnframt áhyggjur af hlutverki heilbrigðiskerfisins. Rúmlega 23% telja dánaraðstoð stangast á við siðferðilegar skyldur lækna eða grafa undan trausti milli sjúklinga og heilbrigðisstarfsfólks. Sumir vísa einnig til persónulegra gilda. Um fimmtungur telur dánaraðstoð ganga gegn eigin siðferðilegum gildum, rúmlega 17% telja líknarmeðferð nægja til að lina þjáningu, 15% nefna trúarleg rök og tæp 13% vísa til faglegra skylda lækna. Munur kemur einnig fram eftir stjórnmálaskoðunum. Kjósendur Viðreisnar nefna oftar hættu á misnotkun, eða 80,5%, á meðan kjósendur Samfylkingarinnar hafa meiri áhyggjur af þrýstingi á viðkvæma hópa, eða 71,5%. Kjósendur Sjálfstæðisflokksins virðast síður hafa slíkar áhyggjur, en 34,9% nefna þann þátt. Könnunin dregur fram að andstaða við dánaraðstoð byggist síður á afdráttarlausri andstöðu við að fólk geti fengið aðstoð við að deyja, en frekar á áhyggjum af mögulegum afleiðingum lögleiðingar. Þetta undirstrikar mikilvægi traustrar lagaumgjarðar, skýrra skilyrða og virks eftirlits, líkt og reynsla þeirra landa þar sem dánaraðstoð er heimil undirstrikar. Flókið samspil gilda Í heild sinni snýst umræðan ekki einfaldlega um að vera með eða á móti heldur um spennu milli tveggja grundvallargilda: sjálfræðis annars vegar og verndar hins vegar. Stuðningsmenn leggja áherslu á rétt einstaklingsins til að ráða eigin lífslokum og forðast óbærilega þjáningu. Andstæðingar beina hins vegar sjónum að ábyrgð samfélagsins til að vernda viðkvæma hópa og tryggja að slíkar ákvarðanir séu teknar án þrýstings og við skýrar aðstæður. Næstu skref munu því ekki aðeins ráðast af því hvort dánaraðstoð verði heimiluð, heldur einnig af því hvernig hægt verður að samræma þessi gildi með vandaðri löggjöf og traustri umgjörð. Þörf fyrir áframhaldandi umræðu Til að samfélagið geti tekið upplýsta afstöðu þarf að skapa rými fyrir ólík sjónarhorn. Umræðan um dánaraðstoð þarf að byggjast á skýrum hugtökum, traustum upplýsingum og gagnkvæmri virðingu. Hún þarf jafnframt að taka alvarlega bæði óskir þeirra sem vilja hafa val við lífslok og áhyggjur þeirra sem óttast að lögleiðing geti haft ófyrirséðar afleiðingar. Spurningin er því ekki aðeins hvort heimila eigi dánaraðstoð, heldur hvernig tryggja má að bæði sjálfræði og vernd fái raunverulegt vægi þegar ákvarðanir um lífslok eru teknar. Þar liggur kjarni umræðunnar: að virða rétt fólks til að ráða eigin lífslokum, án þess að samfélagið víki sér undan skyldu sinni til að vernda þau sem standa höllum fæti. Höfundur er formaður Lífsvirðingar, sem berst fyrir lögleiðingu dánaraðstoðar á Íslandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ingrid Kuhlman Mest lesið Íslensk, sænsk eða engin króna Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Mín kynslóð brást! Margrét Kristmannsdóttir Skoðun Hinir miklu alvitringar Baldur Vignir Karlsson Skoðun Evrópuherinn og hlutur Íslendinga Haraldur Ólafsson Skoðun Hinn háværi minnihluti Unnar Geir Unnarsson Skoðun Af hverju ég kýs Já 29. ágúst Halldór Jörgen Olesen Skoðun Ferðaþjónusta fatlaðra Atli Már Haraldsson Zebitz Skoðun Var þetta kosningaloforðið? Fannar Logi Waldorff Sigurðsson Skoðun Hvað kostar núverandi staða verslunina og íslenska neytendur? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Ofan í skotgrafirnar Júlíus Valsson Skoðun Skoðun Skoðun Íslensk, sænsk eða engin króna Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hinir miklu alvitringar Baldur Vignir Karlsson skrifar Skoðun Evrópuherinn og hlutur Íslendinga Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Var þetta kosningaloforðið? Fannar Logi Waldorff Sigurðsson skrifar Skoðun Mín kynslóð brást! Margrét Kristmannsdóttir skrifar Skoðun Kerfið sem síar fjármuni út úr ríkissjóði bakdyramegin Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvaða áhrif hefur það á hlaupara að hlaupa fyrir góðan málstað? Þórdís Lilja Gísladóttir skrifar Skoðun Draugasögur nútímans Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hinn háværi minnihluti Unnar Geir Unnarsson skrifar Skoðun Af hverju ég kýs Já 29. ágúst Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Ofan í skotgrafirnar Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvað kostar núverandi staða verslunina og íslenska neytendur? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Ferðaþjónusta fatlaðra Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Lesum í sumar – börnin okkar fylgjast með Jón Heiðar Gunnarsson skrifar Skoðun Íbúðalán í raunheimum: Svar við athugasemdum Gauta B. Eggertssonar Agnar Tómas Möller skrifar Skoðun Landráðabrigsl og skrípaleikir Einar Kárason skrifar Skoðun EES eða ESB – þar er efinn Dóra Sif Tynes skrifar Skoðun Hér býr fólk! Rödd íbúa á framkvæmdasvæði Miðbæjar í mótun í Kópavogi Elín Kona Eddudóttir skrifar Skoðun Fyrst þarf Ísland að ná niður verðbólgu og vöxtum með krónunni. Þá fyrst kemur evran til greina Jón Helgi Egilsson skrifar Skoðun Meira en Kaupmannahafnarskilyrðin Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar nýbakaðir foreldrar lenda á vegg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Er það hræðsla að segja nei? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Hvað er mikilvægast? Jónas Hagan Guðmundsson skrifar Skoðun Yfir 2.000 til 3000 milljarða tap á 15 - 17 árum – og enginn ber ábyrgð Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Reykjavík er frjáls Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Að kveðja verðtrygginguna: Stærsta kjarabót sem íslensk heimili geta fengið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Sumarhátíðir, rándýrir vextir og óopnað umslag Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Innan ESB „mun Ísland stjórna fiskveiðum í Norður-Atlantshafi“ Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Hver þorir næst? Knútur Emil Jónasson,Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Hermann Ingi Gunnarsson,Unnur Brá Konráðsdóttir,Jóhanna Hreinsdóttir,Ásta Stefánsdóttir,Aldís Hafsteinsdóttir,Bergþór Bjarnason,Haraldur Þór Jónsson skrifar Skoðun Orð skipta máli Birgitta Þorsteinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvaða áhrif hefur það á hlaupara að hlaupa fyrir góðan málstað? Þórdís Lilja Gísladóttir skrifar
Skoðun Hvað kostar núverandi staða verslunina og íslenska neytendur? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Íbúðalán í raunheimum: Svar við athugasemdum Gauta B. Eggertssonar Agnar Tómas Möller skrifar
Skoðun Hér býr fólk! Rödd íbúa á framkvæmdasvæði Miðbæjar í mótun í Kópavogi Elín Kona Eddudóttir skrifar
Skoðun Fyrst þarf Ísland að ná niður verðbólgu og vöxtum með krónunni. Þá fyrst kemur evran til greina Jón Helgi Egilsson skrifar
Skoðun Yfir 2.000 til 3000 milljarða tap á 15 - 17 árum – og enginn ber ábyrgð Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Að kveðja verðtrygginguna: Stærsta kjarabót sem íslensk heimili geta fengið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Hver þorir næst? Knútur Emil Jónasson,Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Hermann Ingi Gunnarsson,Unnur Brá Konráðsdóttir,Jóhanna Hreinsdóttir,Ásta Stefánsdóttir,Aldís Hafsteinsdóttir,Bergþór Bjarnason,Haraldur Þór Jónsson skrifar