Platini með sakamálaákæru á hendur forseta FIFA Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. júní 2026 20:03 Michel Platini, þáverandi forseti UEFA og ritari hans Gianni Infantino á meðan allt lék í lyndi. Getty/Philipp Schmidli Michel Platini hefur höfðað mál gegn Gianni Infantino, forseta FIFA, en Platini var í fyrra sýknaður af fjármálamisferli sem endaði draum hans um að verða forseti FIFA árið 2015.
Platini, sem virtist ætla að taka við stjórn FIFA þar til hann var bendlaður við fjármálamisferlið fyrir níu árum síðan og í staðinn var fyrrverandi undirmaður hans, Gianni Infantino, kosinn forseti FIFA. Platini, sem er fyrrum frönsk fótboltahetja, var sýknaður aftur á síðasta ári eftir önnur réttarhöld í Sviss. Hann hefur beðið lögmenn í París um að leggja fram sakamálaákæru á hendur Infantino og fimm öðrum svissneskum embættismönnum úr fótboltaheiminum og saksóknaraembættinu. Platini heldur því fram að um samsæri hafi verið að ræða með fölskum ásökunum til að koma í veg fyrir að hann yrði forseti FIFA fyrir áratug síðan. Lögmenn munu einnig höfða einkamál til að krefjast skaðabóta frá FIFA, sagði talsmaður Platini í yfirlýsingu um ásakanirnar. Infantino var kjörinn leiðtogi FIFA árið 2016 sem óvæntur frambjóðandi frá evrópska knattspyrnusambandinu UEFA, þar sem hann var lengi aðalritari forseta þess, Platini. Almennt var búist við því í fótboltaheiminum að Platini yrði forseti FIFA og tæki við af fyrrverandi læriföður sínum, Sepp Blatter, sem var að láta af embætti í kjölfar rannsókna bandarískra alríkisyfirvalda á spillingu meðal fótboltaembættismanna sem voru gerðar opinberar í maí 2015. Fjórum mánuðum síðar urðu þó bæði Platini og Blatter skotmark sérstakrar svissneskrar rannsóknar á tveggja milljóna svissneskra franka greiðslu til Frakkans sem myndi koma þeim báðum frá völdum snemma. Bæði Platini og Blatter voru sýknaðir tvisvar af ákæru um að hafa svikið fé af FIFA þegar, fyrst fyrir rétti í Sviss árið 2022 og aftur á síðasta ári eftir áfrýjun alríkissaksóknaraembættisins. Meðal þeirra fimm manna sem kæra Platini beinist einnig að eru Michael Lauber, ríkissaksóknari Sviss árið 2015, og Marcoger, þáverandi yfirmaður lögfræðisviðs FIFA.
FIFA UEFA Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Körfubolti Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Sjá meira