Marius látinn laus Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 8. júní 2026 16:52 Hann segist vera edrú. EPA Marius Borg Høiby hefur farið fram á og fengið samþykkt af héraðsdómi Óslóarborgar að hann verði látinn laus til að vera með móður sinni, Mette-Marit krónprinsessu Noregs. Saksóknari kærði ákvörðunina svo Marius situr áfram inni um tíma. Réttarhöld yfir honum hafa staðið frá í febrúar og er hann ákærður fyrir fjölda ofbeldis- og kynferðisbrota.
Skömmu eftir að héraðsdómurinn samþykkti lausnarbeiðnina kærði saksóknari ákvörðunina og þarf Marius að sitja áfram inni þar til áfrýjunardómstóll hefur tekið málið fyrir. Veikindi Mette-Maritar krónprinsessu hafa ágerst verulega á undanförnum mánuðum en hún hefur um nokkur ár glímt við svokallaða lungnatrefjun. Marius hefur sætt gæsluvarðhaldi í rúma þrjá mánuði. Hann er sonur Mette-Martiar úr fyrra sambandi hennar og því stjúpsonur Hákonar krónprins. „Óbærilegt“ Mette-Marit er nú komin á biðlista eftir lungnaígræðslu. Skilyrði fyrir slíku er að eiga ekki nema eitt til tvö ár eftir ólifuð. Gunnar Guðmundsson lungnalæknir skýrði sjúkdóminn út fyrir lesendum um helgina. „Að sitja inni þegar mamma er svona veik, það er óbærilegt,“ sagði hann fyrir rétti í dag. Þinghald var lokað en því var aflétt í kjölfarið. „Ég vil komast út til að vera með mömmu. Hver sunnudagur sem við hittumst gæti verið í síðasta skipti sem við sjáumst,“ sagði Marius. Lofaði að hafa ekki samband við vitni Hann sagðist einnig vera edrú og að hann hefði engin áform um að fara út á lífið. Hann þvertók sömuleiðis fyrir það að hann hefði í hyggju að setja sig í samband við einhver vitnanna í máli hans. Mette-Marit krónprinsessa og Hákon krónprins heimsóttu Óslóarfangelsi þar sem Marius situr inni í gær. Fréttin var uppfærð eftir að saksóknari áfrýjaði ákvörðuninni.
Noregur Mál Mariusar Borg Høiby Kóngafólk Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Fleiri fréttir Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Sjá meira