Veist þú hvað „foid“ er? Þorsteinn Siglaugsson skrifar 8. júní 2026 08:00 Fyrir skemmstu sendi bandarískur vinur minn mér tvær greinar sem hann hafði rekist á. Önnur greinin fjallaði um hvers vegna konur væru að verða sífellt óhamingjusamari. Þessi þróun hefur samkvæmt höfundi verið stöðug undanfarin 50-70 ár vegna þess að sívaxandi hluti kvenna hafni því að gegna því náttúrulega hlutverki sínu að vera undirgefnar eiginkonur; barnaverksmiðjur og kynlífsviðföng karlmanna. Þetta hlutverk sé konum hins vegar áskapað og ólíkt karlmönnum séu konur ekki færar um að lifa sjálfstæðu lífi, skapa neitt nýtt eða þróa samfélög áfram. Þessu fylgja staðhæfingar um að vestræn lönd séu að fyllast af innfluttum nauðgurum og morðingjum. Hin greinin hefst á umfjöllun um hvernig atvinnuþátttaka karlmanna hafi farið minnkandi meðan atvinnuþátttaka kvenna hafi aukist. En í stað þess að beina sjónum að þeirri augljósu skýringu að konur hafa með auknu frelsi og menntun leitað meira út á vinnumarkaðinn, telur höfundur ástæðuna þá að giftum pörum hafi fækkað og karlmenn sem ekki hafi gifst í kirkju nenni ekki að vinna. Giftingum fækki vegna þess að konur séu ömurlegar, geðbilaðar, taugaveiklaðar, vinstrisinnaðar, hafni venjulegum karlmönnum, og séu að taka yfir bæði stjórn ríkisins og fræðasamfélagið og leggja hvort tveggja í rúst. Rótarorsökin að baki þessu sé baráttan fyrir auknu frelsi kvenna. Hvernig öfgahugmyndir breiðast út Mér var nokkuð brugðið að sjá að þessi vinur minn sendi mér þetta ekki í gamni, heldur var hann, frjálslyndur, hámenntaður fræðimaður og fyrrum prófessor, að velta því fyrir sér hvort þetta kynni kannski bara að vera rétt. Ég hef undanfarið verið að lesa bók Lauru Bates, Men Who Hate Women(2020), en þar greinir höfundur rætur bakslagsins í jafnréttismálum. Bates fjallar í ítarlegu máli um hreyfingarnar sem liggja þarna að baki, Incel (involuntary celibates) – karlmenn sem hata konur vegna þess að þær vilja þá ekki, MGTOW hreyfinguna (men going their own way), sem hafnar alfarið samskiptum við konur, PUA (pick-up artists) og Mens Rights Movement, hreyfingu sem lítur á karlmenn sem fórnarlömb í kynjastríði sem konur („feminazis“) séu að sigra. Hún rekur hvernig hugmyndir þessara hreyfinga liggja að baki fjölmörgum fjöldamorðum, meðal annars í Bandaríkjunum, á Bretlandi og í Ástralíu og hvernig þær rata á endanum inn í meginstraum stjórnmálanna. Og hún fjallar um hvernig þær ná fótfestu í huga venjulegra, frjálslyndra karlmanna, eins og fyrrnefnds vinar míns. Hvað er „foid“? „Foid” er stytting á female humanoid. Orðið stendur hins vegar ekki fyrir neitt vélmenni. „Foid” er einfaldlega notað til að vísa til kvenna; á spjallþráðum, í myndböndum og á fundum hreyfinganna sem fyrr eru nefndar. Það er vegna þess að samkvæmt hugmyndafræði hreyfinganna eru konur í rauninni ekki manneskjur. Þær eru þess í stað eftirlíkingar af manneskjum, ófærar um sjálfstæða hugsun, gráðugar og illviljaðar. Og vegna þess að þær eru ekki manneskjur eiga þær ekki að njóta mannréttinda. Þær má drepa og þeim má nauðga hafni þær því að uppfylla hinar „náttúrulegu“ skyldur sínar, hvað þá ef þær leyfa sér að standa vörð um réttindi sín. Fjöldamorð meðlimanna, á borð við Elliot Rodger 2014, Alek Minassian 2018, Jake Davison 2021 og Mauricio Martinez Garcia 2023 bera vott um þetta. Og það ótrúlega er að furðu margir afsaka slíkar gjörðir og krefjast„jöfnuðar“ í aðgangi að kynlífi til að halda slíkum einstaklingum á mottunni. Með öðrum orðum á að nýta líkama „kvenkyns manngervlanna“ til að ófullnægðir karlmenn „leiðist ekki út í“ fjöldamorð. Það er nefnilega konum að kenna að þeir drepa þær. Röksemdir sumra þeirra sem vilja lögleiðingu vændis eru af svipuðum toga. Laura Bates rekur það í bók sinni hvernig kvenhatur og kvenfyrirlitning færist sífellt í aukana og styður traustum gögnum. Og þessi þróun er síst á undanhaldi. Til marks um það bendi ég á nýlegt myndband bandaríska samfélagsrýnisins Ben Hoerman, The Rise of Online Cruelty þar sem hann fjallar um hvernig ofbeldi á netinu mótar reynsluheim fólks á þrítugsaldri og yngra í sívaxandi mæli. Lýðræðið og frelsið eru í hættu Smátt og smátt, raunar sífellt hraðar, rata öfgahugmyndirnar inn í meginstraum hugarfarsins og stjórnmálanna. Þær birtast fyrst sem tiltölulega sakleysisleg umræða um þörfina á að þjóðin - og þá er átt við fólk af „réttum“ uppruna - eignist fleiri börn, svo dæmi sé nefnt. En þar að baki liggur rasísk hugmynd um hreinleika kynstofnsins og hið „náttúrulega“ hlutverk konunnar. Næst koma kröfur um bann við þungunarrofi, við hjónaböndum hinsegin fólks og eins og þegar má sjá hjá öfgafyllstu öflunum, kröfur um afnám refsinga við kynbundnu ofbeldi og jafnvel afnám kosningaréttar kvenna. Við þurfum líka að gæta að því að sakleysislegar hugmyndir á borð við heimgreiðslur eiga sér í raun sömu rót þegar vel er að gáð. Þær eru að vísu settar fram sem lausn á vandamáli, en í stað þess að leysa vandamálið sjálft, skort á leikskólaplássum, verður „lausnin“ sú að senda konur inn á heimilið og gera þær þannig háðar karlmanninum. Hreyfingar sem ala á kvenhatri og andfeminisma tengjast kynþáttahatri og fasisma nánum böndum líkt og breski blaðamaðurinn Sian Norris rekur í bók sinni Bodies Under Siege (2023). Að baki liggur hugmyndin um „náttúrulegt ástand“ (the natural order), þar sem yfirráð karlmanna eru lykilþáttur og um vernd „hvíta“ kynstofnsins gagnvart „óæðri“ kynþáttum. Þessi hugmyndafræði er í grunninn af nákvæmlega sama meiði og hugmyndafræði nasista og fasista á þriðja og fjórða áratug síðustu aldar og verði hún ofan á er vestrænt lýðræðissamfélag í stórkostlegri hættu. Það er skylda okkar allra sem látum okkur frelsi, mannréttindi og lýðræði varða að takast á við þessa ógn. Fyrsta skrefið er að skilja mynstrin og þar er vinna feminískra greinenda á borð við Lauru Bates og Sian Norris lykilatriði. Það er þeim að þakka að ég áttaði mig strax á því hvað hafði komið fyrir vin minn sem ég gat um í upphafi. Höfundur er áhugamaður um mannréttindi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þorsteinn Siglaugsson Mest lesið Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir Skoðun Halldór 01.08.2026 Halldór Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Sigurgeir Þorkelsson Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Sex ástæður fyrir JÁ-i í ágúst Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Heilbrigt starfsumhverfi Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Sigurgeir Þorkelsson skrifar Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Brestur í manngæsku - ESB og flóttafólk Ari Orrason skrifar Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Evra eða króna? Grímur Grímsson skrifar Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir skrifar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén skrifar Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvernig varð gervigreindin til og hvernig virkar hún? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar eru góðu mennirnir? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Slagorð í stað gagna: Grein Snorra Mássonar um ESB-aðild Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Hættulegasti tími ársins í umferðinni Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Að neita að leita Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun ESB umræðan og gervigreindin Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei skrifar Skoðun Spænska knattspyrnuliðið sem héraðsmetafór fyrir Spán Jordi Oriola Folch skrifar Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran skrifar Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Af hverju já? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Ef lausnirnar eru til, af hverju eru þær ekki notaðar? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Óreiða á samviskunni Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Sjá meira
Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar
Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar