Hætt við sýningarflug Airbus-þotu yfir Reykjavík Kristján Már Unnarsson skrifar 7. júní 2026 16:48 Airbus A320-þotan TF-IAT lenti á Keflavíkurflugvelli um klukkan 19:20 í kvöld. Ekkert varð af því að hún flygi yfir Reykjavík. Sigurður B. Magnússon Nýjasta viðbótin í flugflota Icelandair, þota af gerðinni Airbus A320, er væntanleg til landsins um kvöldmatarleytið. Flugstjórinn Kári Kárason, flotastjóri Airbus-véla Icelandair, hafði áætlað að fljúga henni yfir Reykjavík en núna hefur verið fallið frá þeim áformum.
Flugvélin fór í loftið frá Ostrava í Tékklandi klukkan 15:34 að íslenskum tíma. Kári áætlaði að vera yfir Reykjavík milli klukkan 19:15 og 19:30. Fyrir brottför gerði hann ráð fyrir að taka aðflug yfir Reykjavíkurflugvöll og bjóst við að fara niður í 500 feta hæð yfir flugbrautinni. Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, hefur núna tjáð fréttastofu að ekkert verði af yfirfluginu yfir Reykjavík. Flugvélin myndi fljúga beint til Keflavíkur. Airbus A320 er 6,9 metrum styttri en A321.Sigurður B. Magnússon Athugasemd klukkan 20:20. Fréttin hefur verið uppfærð með nýjum ljósmyndum af flugvélinni á Keflavíkurflugvelli. Flugvélin var smíðuð árið 2015 og var áður hjá Wizz Air. Sætaskipan hefur verið breytt og vélin fengið íslenska skráningu, TF-IAT, að sögn Guðna. 154 sæti eru í vélinni, þar af 16 á Saga premium. Ekki hafa verið settir skjáir í sætisbök en boðið verður upp á afþreyingarkerfi í streymi þar sem farþegar nota eigið tæki. Icelandair ákvað að leigja þessa vél vegna seinkunar á afhendingu nýrrar Airbus A321-þotu, sem átti að vera sú sjöunda í nýja Airbus-flotanum en kemur ekki fyrr en í haust. Tafir urðu á afhendingu vélarinnar, sem átti að hlaupa í skarðið, og því þurfti félagið að taka inn aðra flugvél í blautleigu í nokkra daga í byrjun mánaðar frá flugfélaginu Heston Airlines í Litháen. Þeirri vél verður núna skilað. Nýjasta Airbus A321-þota Icelandair, TF-IAE, Hofsjökull, við komuna til landsins þann 28. mars. Flugvélin sem kemur í kvöld er 6,9 metrum styttri, af gerðinni Airbus A320.Icelandair/Lukas Mach
Icelandair Airbus Reykjavíkurflugvöllur Lágflug Icelandair yfir Vestmannaeyjum Tengdar fréttir Segir ekkert eiga að koma í veg fyrir að Airbus noti Reykjavík Framkvæmdastjóri Isavia Innanlandsflugvalla, Sigrún Björk Jakobsdóttir, telur Reykjavíkurflugvöll hæfan til að taka á móti Airbus-þotum og segir burðarþol flugvallarins nægilegt til að taka við þeim. Hún segir það mat Isavia innanlands að ekkert í regluverkinu eigi að koma í veg fyrir notkun Airbus-véla Icelandair á Reykjavíkurflugvelli til vara. 4. júní 2026 17:17 Icelandair tekur litáíska vél á leigu Icelandair hefur erlenda flugvél í leigu frá litháíska leiguflugfélaginu Heston Airlines. Er um svokallaða blautleigu að ræða og fylgir erlend áhöfn með vélinni. 6. júní 2026 12:49 Engin Icelandair-þota sást á flugsýningunni Flugáhugamenn sem lögðu leið sína á hina árlegu flugsýningu Flugmálafélags Íslands á Reykjavíkurflugvelli í gær undruðust margir að sjá enga af þotum Icelandair birtast, hvorki á flugvellinum sjálfum né í yfirflugi yfir hann. Sumir spurðu sig jafnvel hvort samskipti félagsins og flugmanna þess væru í slíku frosti að ekki væri einu sinni hægt að taka þátt í flughátíð. 31. maí 2026 20:30 Mest lesið Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Vance biðlar til ungra reiðra manna Erlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Innlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira
Segir ekkert eiga að koma í veg fyrir að Airbus noti Reykjavík Framkvæmdastjóri Isavia Innanlandsflugvalla, Sigrún Björk Jakobsdóttir, telur Reykjavíkurflugvöll hæfan til að taka á móti Airbus-þotum og segir burðarþol flugvallarins nægilegt til að taka við þeim. Hún segir það mat Isavia innanlands að ekkert í regluverkinu eigi að koma í veg fyrir notkun Airbus-véla Icelandair á Reykjavíkurflugvelli til vara. 4. júní 2026 17:17
Icelandair tekur litáíska vél á leigu Icelandair hefur erlenda flugvél í leigu frá litháíska leiguflugfélaginu Heston Airlines. Er um svokallaða blautleigu að ræða og fylgir erlend áhöfn með vélinni. 6. júní 2026 12:49
Engin Icelandair-þota sást á flugsýningunni Flugáhugamenn sem lögðu leið sína á hina árlegu flugsýningu Flugmálafélags Íslands á Reykjavíkurflugvelli í gær undruðust margir að sjá enga af þotum Icelandair birtast, hvorki á flugvellinum sjálfum né í yfirflugi yfir hann. Sumir spurðu sig jafnvel hvort samskipti félagsins og flugmanna þess væru í slíku frosti að ekki væri einu sinni hægt að taka þátt í flughátíð. 31. maí 2026 20:30