Afskipti Rússlands og ESB: tvöfalt siðferði í nafni lýðræðis Júlíus Valsson skrifar 7. júní 2026 15:02 Þingkosningarnar í Armeníu sýna enn á ný hvernig Austur-Evrópa og Suður-Kákasus hafa orðið vettvangur harðrar valdabaráttu milli Rússlands og Evrópusambandsins. Armenía hefur undir forystu forsætisráðherrans Nikols Pasjinjans færst nær Vesturlöndum og Evrópusambandinu, en sú þróun hefur vakið upp óánægju í Moskvu. Rússar hafa lengi litið á þetta fyrrverandi Sovétlýðveldi sem hluta af sínu áhrifasvæði og bregðast jafnan harkalega við þegar þau reyna að losna undan pólitískum og efnahagslegum þrýstingi Kremlverja. Hver er Nikols Pasjinjan? Pasjinjan er þó ekki óumdeildur leiðtogi í lýðræðislegu samhengi. Hann hefur verið gagnrýndur fyrir popúlískan og upplýsingaóreiðu í sínum málflutningi, ekki síst þegar hann stillir kosningunum upp sem vali milli friðar við Aserbaídsjan og nýs stríðs við Rússa. Slík framsetning getur verið varhugaverð í lýðræðisríki, enda ætti ekki að stilla kjósendum upp við vegg með ótta sem helsta kosningavopn. Á sama tíma eru Rússar sagðir hafa reynt að hafa áhrif á lýðræðislegt ferli í Armeníu. Rússnesk stjórnvöld eru gagnrýnd fyrir áróður, þrýsting, hótanir og aðgerðir sem eigi að grafa undan trausti almennings á stjórnvöldum og kosningaferlinu sjálfu. Ef rétt reynist þá er það alvarlegt mál. Ekkert erlent stórveldi ætti að reyna að stýra vilja sjálfstæðra þjóða, hvort sem það er gert með leynilegum aðgerðum, efnahagslegum þrýstingi eða skipulögðum áróðri. Hvers vegna fordæma menn Rússa en ekki ESB? Hér vaknar þó óþægileg spurning: Hvers vegna beinist fordæmingin aðeins að einu stórveldi þegar það reynir að hafa áhrif á lýðræðislegar ákvarðanir smáríkja? Rússland er í dag helsti andstæðingur Evrópusambandsins í evrópskum stjórnmálum. ESB lítur á Rússland sem kerfisbundna ógn við eigin hagsmuni, áhrifasvæði og pólitísk áhrif. Þess vegna kemur ekki á óvart að sambandið gagnrýni rússnesk afskipti í Armeníu. Sú gagnrýni verður þó veikburða þegar ESB sjálft lítur á það sem eðlilegan hlut að taka virkan þátt í pólitískri umræðu innan annarra ríkja. Áhrif ESB á pólitíska umræðu á Íslandi Sambærilega umræðu má einnig sjá á Íslandi. Hér fer fram þjóðaratkvæðagreiðsla 29. ágúst um hvort hefja eigi á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. ESB hefur tekið þeim tíðindum fagnandi og fulltrúar sambandsins hafa talað opinberlega um mikilvægi þess að Ísland færist nær sambandinu. Jafnframt má ætla að samkvæmt yfirlýsingu ESB muni það ekki sitja hjá í þessari umræðu. Sambandið hefur yfir að ráða nánast ómældu fjármagni, stofnunum, sendinefndum, kynningarkerfum og mjög öflugum fjölmiðlavænum kynningartækjum sem geta haft og sem munu hafa áhrif á umræðuna í smáríki eins og Íslandi. Stuðningsmenn ESB-aðildar hér á landi kunna að fagna þessu. Þeir líta á stuðning frá Brussel sem eðlilegan, jákvæðan og upplýsandi. Samt gagnrýna margir sömu aðilar Rússland harðlega þegar þeir eru sagðir reyna að hafa áhrif á kosningar í Armeníu. Þar er talað um ógn við lýðræðið, erlenda íhlutun og áróður. Munurinn virðist því síður felast í aðferðinni sjálfri en í því hver beitir henni. Ef Rússar reyna að hafa áhrif á lýðræðislegt ferli í Armeníu er það kallað „pólitísk afskipti“. Ef ESB reynir að móta umræðu á Íslandi er það gjarnan kallað (verðug) „upplýsingagjöf“. Ef Moskva styður öfl sem eru hlynnt Rússlandi er það talið „hættulegt“. Ef Brussel styður pólitíska stefnu sem þjónar hagsmunum ESB er það sagt vera „framlag til lýðræðislegrar umræðu“. Slíkt má túlka sem tvöfalt siðferði. Íslendingar ættu að vera mjög gagnrýnir á öll slík afskipti, sama hvaðan þau koma. Hvorki Moskva né Brussel ættu að móta framtíð Íslands. Þjóðin ætti sjálf að taka ákvörðun um fullveldi sitt, stjórnarskrá, auðlindir, gjaldmiðil og stöðu landsins í heiminum. Lýðræði snýst ekki aðeins um að kjósa. Það snýst líka um að kjósendur fái að mynda sér skoðun án þess að erlend stórveldi beiti fjármagni, áróðri eða pólitískum þrýstingi með óhóflegum hætti. Það sem er rangt þegar Rússar gera það í Armeníu verður ekki sjálfkrafa réttlætanlegt þegar Evrópusambandið gerir það á Íslandi. Íslandi ber að hafna öllum erlendum áhrifum á lýðræðislegar kosningar! Ríkisstjórn Íslands ber skilyrðislaust að hafna öllum erlendum afskiptum af lýðræðislegum kosningum hér á landi, þar með töldum beinum eða óbeinum mútugreiðslum, og tryggja að slík háttsemi sé stöðvuð og, eftir atvikum, rannsökuð í samræmi við íslensk lög, grundvallarreglur um frjálsar og sanngjarnar kosningar og alþjóðlegar skuldbindingar Íslands á vettvangi ÖSE og Evrópuráðsins. Segjum skýrt NEI þ. 29. ágúst 2026 og björgum Íslandi! Höfundur er læknir og fullveldissinni. Tilvísanir: https://www.althingi.is/lagas/nuna/1940019.html https://www.reuters.com/world/armenia-arrests-six-candidates-pro-russian-opposition-day-before-vote-2026-06-06/ Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Júlíus Valsson Mest lesið Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Halldór 22.10.26 Halldór Baldursson Halldór Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar