„Ég verð að spila“ Valur Páll Eiríksson skrifar 7. júní 2026 08:02 Þrátt fyrir slakt gengi fékk Chiesa fá tækifæri hjá Arne Slot á síðustu leiktíð. Chris Brunskill/Fantasista/Getty Images Federico Chiesa íhugar að yfirgefa Liverpool til að spila meiri fótbolta. Hann mun taka stöðuna með nýjum stjóra þegar undirbúningstímabilið fer af stað.
Chiesa er 28 ára gamall og byrjaði aðeins einn deildarleik á nýliðinni leiktíð undir stjórn Arne Slot. Hann mun fara yfir málin með Andoni Iraola sem tók við af Hollendingnum á dögunum. Líklegast þykir að Chiesa snúi þá aftur til heimalandsins í leit að spiltíma. „Ég verð að spila og ef ég finn ekki samfellu hér í ensku úrvalsdeildinni þarf ég að finna hana annars staðar,“ sagði Chiesa við Gazzetta dello Sport. „Þetta tímabil var rétt að klárast, ég fékk næstum engar mínútur. Ég fer til Bandaríkjanna í undirbúningstímabilið, svo tala ég við félagið og Iraola og við sjáum til.“ Chiesa var orðaður frá Liverpool til Ítalíu í janúar en vegna veru Mohamed Salah á Afríkumótinu og meiðsla Alexanders Isak var ekki möguleiki fyrir hann að leita á önnur mið. „Ég á frábært samband við Liverpool. Í janúar sagði félagið og Slot að ég gæti ekki farið. Þeir þurftu á mér að halda. Þetta snerist um fjölda. Við vorum í kreppu,“ „Ég skildi stöðuna og var áfram, með bros á vör. Við erum enn að tala um Liverpool. Í fyrra gerði liðið mér kleift að vinna úrvalsdeildina.“ Chiesa var spurður beint út í að snúa aftur til Juventus, félags sem hann segist vilja spila fyrir aftur, og Como, sem spilar í Meistaradeildinni á næsta tímabili. Hann sagðist vera „opinn fyrir öllu“ og bætti við: „Það sem skiptir mig máli er leiktíminn. Ég er ekki nógu hrokafullur til að segja: Ég verð að vera byrjunarliðsmaður. Ég er tilbúinn að berjast fyrir sæti mínu hvar sem er.“ Jones spurði um Ítalíu Chiesa var síðan spurður út í framtíð liðsfélaga síns hjá Liverpool, Curtis Jones, sem hefur verið orðaður við skipti til Inter Milan. „Allt sem hann (Jones) spurði mig var hvernig lífið væri á Ítalíu,“ sagði Chiesa. „Ég sagði honum að það væri frábært og veðrið væri betra en í Liverpool sem, fyrir utan það, er sérstakur staður. Jones er tæknilega séð mjög góður leikmaður. Inter ætti að íhuga að semja við hann.“ Chiesa bætti við að hann byggist við að Alisson, sem Juventus hefur áhuga á, yrði áfram hjá Liverpool. „Að því sem ég heyri, þá verður hann áfram í Englandi. Svo skulum við sjá. Við erum að tala um einn af fimm bestu markvörðum jarðarinnar. Hann er frábær leiðtogi. Hann hefur unnið allt og skiptir öllu máli á vellinum og í klefanum.“
Liverpool FC Enski boltinn Ítalski boltinn Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Bein útsending: Arnar kynnir landsliðshópinn Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fleiri fréttir „Ég er ekki Mohamed Salah“ Parker nýr þjálfari West Ham Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Áfram skorar Andri Lucas „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Sjá meira