Vonar að völlurinn verði ekki til vandræða Ágúst Orri Arnarson skrifar 6. júní 2026 16:45 England er í æfingabúðum í Flórída um þessar mundir. Eddie Keogh - The FA/The FA via Getty Images Thomas Tuchel, landsliðsþjálfari Englands, vonar að nýlagður völlur verði ekki til vandræða þegar liðið mætir Nýja-Sjálandi í æfingaleik í kvöld.
Blaðamenn Daily Mail hafa fjallað mikið um vallaraðstæður á Raymond James leikvanginum í Tampa í Flórídafylki. Af myndum að dæma er völlurinn í mjög lélegu ásigkomulagi en nýlega var gras lagt þar yfir. Graslagningin virðist ekki hafa heppnast vel. Á myndum Daily Mail má sjá að grasið er illa saumað saman á mörgum stöðum og óttast er að meiðslahætta skapist. 🔍 Exclusive pics of tomorrow’s playing surface in Tampa that awaits England👇 Full story below w/ @MikeKeegan_DM https://t.co/UNsHCh6E5c pic.twitter.com/ZTiznsH0RF— Craig Hope (@CraigHope_DM) June 5, 2026 „Þetta mun ekki hafa áhrif á liðsvalið, út frá því sem ég hef heyrt verður völlurinn í lagi. Við vonum auðvitað að hann verði það. Ég sá bara mynd, sem gerði mig áhyggjufullan, en við munum meta þetta betur þegar við mætum á staðinn,“ sagði Tuchel á blaðamannafundi. „Ef það verða einhver vandamál getum við alltaf brugðist við því. Við erum með vallarstjóra sem sér um þetta og vonandi verður allt í fínu lagi. Þetta er amerískur fótboltavöllur. Maður sér það. En okkur er sagt að það verði allt í góðu,“ bætti Tuchel við. Landsliðsþjálfarinn greindi frá því að hann muni spila sitt hvoru liðinu í fyrri og seinni hálfleik. Englendingar munu því fá gott tækifæri til að ganga í augun á Tuchel. Leikurinn gegn Nýja-Sjálandi er síðasti æfingaleikur Englands fyrir HM. Þar verður England með Króatíu, Panama og Gana í riðli. Æfingaleikur Englands og Nýja-Sjálands hefst klukkan 20:00 og verður í beinni útsendingu á Sýn Sport Viaplay.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Enski boltinn „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ Fótbolti FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Fótbolti Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal Íslenski boltinn Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Handbolti „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ Sport Viktor skoraði í fjórða sigrinum í röð Fótbolti „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Íslenski boltinn „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ Fótbolti Haukur leiddi endurkomu Löwen Handbolti Fleiri fréttir Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal Neitar að hafa tekið þátt í mannráni „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ „Við náðum einum af þessum stóru í ár“ „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Breiðablik - Afturelding 2-1 | Blikar bikarmeistarar í annað sinn Lagði upp á leið í undanúrslit FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Viktor skoraði í fjórða sigrinum í röð Markasúpa í Noregi Spenntur að sjá rauða hafið í stúkunni Meðvitaðir um pressuna Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“ Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Ólafur skilur Magga en er ekki sammála Róbert Frosti með slitið krossband og á leið í aðgerð Sjáðu markaveislur United og Bayern München Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag United aldrei í vandræðum Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Bakverðir til bjargar Frakkar vilja Infantino burt Tvö íslensk hæfileikabúnt til Molde Sjá meira