Hver er munurinn á Þorgerði Katrínu og Donald Trump? Júlíus Valsson skrifar 5. júní 2026 09:32 „Hugarástand Bandaríkjaforseta eitthvað til að hafa áhyggjur af“ Þorgerður Katrín, RÚV 5. Janúar 2026 „...þröngsýnn, fáfróður, fordómaf. fábjáni“Þórdís Kolbrún um Trump, visir.is 2015 Fullveldið er ekki einkamál Þorgerðar Katrínar Eftir því sem umræðan um Evrópusambandið færist nær þjóðaratkvæðagreiðslu verður æ ljósara að hér er ekki aðeins tekist á um viðskiptakjör, gjaldmiðil eða tæknileg samningsatriði. Málið snýst um sjálfan kjarna íslenska lýðveldisins. Fullveldi snýst um hver hefur æðsta vald yfir ríki, en lýðræði snýst um hvernig það vald er skipulagt og nýtt af fólkinu. Tveir síðustu utanríkisráðherrar Íslands, hvorki núverandi né sá fyrrverandi hafa barist fyrir hagsmunum Íslands á alþjóðavettvangi. Þvert á móti hafa þær, að því er virðist, markvisst grafið undan efnahag og fullveldi þjóðarinnar Má þar nefna þriðja orkupakka ESB og Bókun 35 við EES-samninginn, ETS-gjöldin og kolefnisgjöld ESB, sem hafa komið illa niður á íslenskum fyrirtækjum, svo sem Play og Icelandair. Afstaða þeirra og tengsl við utanríkisstefnu ESB hafa, að mati höfundar, sett stöndug útflutningsfyrirtæki á hausinn stöndug útflutningsfyrirtæki þ.e. Baader Skaginn 3X og tæknifyrirtækið Vélfag á Akureyri. Nú bíða flugfélaganna Icelandair og Play sömu örlög vegna sem lögð voru á fyrirtækin vegna þess að fyrrverandi utanríkisráðherra þorði ekki að styggja ESB. Það hefði getað rýrt „samningsstöðu“ hennar í umsóknarferli um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Alþingi hefur samþykkt að haldin verði þjóðaratkvæðagreiðsla 29. ágúst 2026 um hvort Ísland eigi að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið? Ríkisstjórnin og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra lögðu málið upphaflega fram sem saklausa spurningu um hvort „halda eigi áfram viðræðum“ um aðild Íslands að Evrópusambandinu. En það var afar villandi framsetning. Aðildarviðræður við ESB eru ekki hlutlaust upplýsingaverkefni. Þær eru pólitískt og stjórnskipulega ferli sem miðar að því að laga íslenskt stjórnkerfi að yfirþjóðlegu valdi. Umsókn um aðild að ESB er ávísun á framsal fullveldis Kjarni málsins er þessi: Aðild að Evrópusambandinu felur ekki aðeins í sér samstarf ríkja. Hún felur í sér að verulegur hluti löggjafarvalds færist frá Alþingi til stofnana ESB. Dómsvald færist að hluta undir túlkun og fordæmi dómstóla Evrópusambandsins. Framkvæmdavald íslenskra stjórnvalda verður bundið af ákvörðunum, reglugerðum og tilskipunum sem mótaðar eru utan íslenskrar lýðræðislegrar stjórnskipunar. Þannig fá lög og reglugerðir ESB bein réttaráhrif á Íslandi, sem þær gera ekki vegna EES-samningsins nema með samþykki Alþingis. Reglan um forgang ESB-réttar eftir inngöngu í ESB eða samþykkt Bókunar 35 merkir að ef árekstur verður milli ESB-réttar og landsréttar aðildarríkis á ESB-réttarsviði, þá gengur ESB-réttur framar. Brot á stjórnarskrá Íslands Gagnrýnendur telja þetta fela í sér framsal fullveldis sem samrýmist ekki stjórnarskrá íslenska lýðveldisins“. Það á ekki að fela það á bak við orð eins og „viðræður“, „upplýsingar“, ”kíkja í pakkann” eða „að ná betri samningsstöðu“. Þorgerður Katrín hefur varað við „Brexit-augnabliki“ á Íslandi og sakað andstæðinga ESB-ferlisins um hræðsluáróður, upplýsingaóreiðu og falsupplýsingar. Slík orðræða er afar hættuleg. Hún snýr umræðunni frá efninu sjálfu og gerir þá tortryggilega sem vilja verja stjórnarskrá landsins, Alþingi og fullveldi íslensku þjóðarinnar. Samanburður við Donald Trump Samanburður við Donald Trump er athyglisverður í þessu samhengi, einkum þegar litið er til meðferðar leynigagna og ábyrgðar stjórnmálamanna gagnvart almenningi. Trump hefur verið sakaður um að ganga of langt í nafni bandarískra hagsmuna og þjóðarvalds Bandaríkjanna. Hann hefur sætt fjölda ákæra og málaferla, auk þess sem dómsniðurstöður hafa fallið í sumum málum. Á sama tíma hafa bandarísk stjórnvöld smám saman birt ýmis leyniskjöl og trúnaðargögn sem tengjast málum hans, þannig að almenningur og fjölmiðlar geti, að minnsta kosti að hluta, metið málsatvik sjálfstætt. Þorgerður Katrín hefur hins vegar ekki verið ákærð. Hún hefur þó verið kærð fyrir landráð af íslenskum borgurum vegna framgöngu sinnar í tengslum við EES-málið, Bókun 35 og ferlið gagnvart Evrópusambandinu. Kæran hefur verið til meðferðar hjá embætti ríkislögreglustjóra frá júní 2025 og sá dráttur, ásamt öðrum atriðum, vekur auðvitað furðu og hefur nýlega verið borinn undir Umboðsmann Alþingis. Málið verður enn alvarlegra í ljósi þess að Þorgerður Katrín hefur neitað almenningi um aðgang að um 300 leyniskjölum eða öðrum trúnaðargögnum sem tengjast samskiptum hennar og stjórnvalda við Evrópusambandið. Þannig er almenningi í reynd gert erfitt eða ómögulegt að sjá hvaða upplýsingar, forsendur og samskipti liggja að baki stefnumótun stjórnvalda í jafn afdrifaríku máli og hugsanlegri inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Þessi munur hefur verulega þýðingu. Kæra er ekki ákæra og felur ekki, ein og sér, í sér sönnun um sekt. Hún sýnir þó hve alvarlegt málið er í augum þeirra sem telja að stjórnskipulegu sjálfstæði Íslands sé ógnað. Þegar stjórnmálamaður sem fer með utanríkismál ríkisins neitar að birta lykilgögn um samskipti stjórnvalda við yfirþjóðlegt valdakerfi, vakna óhjákvæmilega spurningar um gagnsæi, lýðræðislegt umboð og virðingu fyrir lýðræðislegum vilja almennings. Munurinn á Trump og Þorgerði Katrínu er því ekki einungis persónulegur eða pólitískur. Trump hefur verið sakaður um að verja vald eigin þjóðríkis af óhóflegri hörku. Þorgerður Katrín er hins vegar gagnrýnd fyrir hið gagnstæða: að vinna að því að færa vald frá íslensku þjóðinni til yfirþjóðlegs kerfis. Þar liggur kjarni samanburðarins. Fullveldið er verðmætasta eign þjóðarinnar Fullveldi Íslands er ekki tæknilegt samningsatriði. Það er ekki einkamál utanríkisráðherra, ríkisstjórnar eða embættismanna. Það er eign þjóðarinnar sjálfrar. Enginn ráðherra hefur siðferðilegt eða stjórnskipulegt umboð til að ýta Íslandi inn í ferli sem getur endað með því að löggjafarvald, dómsvald og framkvæmdavald færist að verulegu leyti úr landi. Ef þjóðin á að greiða atkvæði um nýja umsókn um að aðild að ESB eða framhald ESB-viðræðna verður hún að fá að vita sannleikann: Þetta snýst ekki aðeins um viðræður. Þetta snýst um það hvort Ísland eigi áfram að vera fullvalda lýðveldi þar sem æðsta vald er hjá íslensku þjóðinni, eða hvort það vald verði fært, skref fyrir skref, til yfirþjóðlegs valds í Brussel. Það er fáheyrt í sögu lýðræðisríkja að einstaka ráðherra komist upp með að grafa undan fullveldi þjóðar sinnar án þess að pólitískur vilji stjórnvalda og/eða kjósenda liggi þar fyrir og án þess að stjórnvöld og eða þjóðin sjálf grípi þar inn í og stöðvi ferlið. Í bandarísku stjórnkerfi og í flestum öðrum lýðræðisríkjum hefði slík framganga líklega leitt til harðra þingrannsókna, pólitísks uppgjörs og kröfu um ábyrgð ráðherrans. Alþingi Íslendinga hefur algjörlega brugðist lögbundnum skyldum sínum að þessu leyti. Höfundur er læknir og fullveldissinni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Júlíus Valsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Halldór 22.10.26 Halldór Baldursson Halldór Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Sjá meira
„
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar