FIFA tók U-beygju og bannar vatnsflöskur Sindri Sverrisson skrifar 4. júní 2026 13:31 Hitinn var mikill á HM félagsliða í Bandaríkjunum fyrir ári síðan og ljóst að hann mun hafa sín áhrif á HM landsliða sem hefst eftir viku. Getty/Catherine Ivill FIFA ákvað á síðustu stundu að hætta við að leyfa áhorfendum að taka vatnsflöskur með á leikvangana á HM í fótbolta, þrátt fyrir hitann sem búist er við á leikjum á mótinu.
Í grein The Athletic segir að FIFA hafi fyrir aðeins þremur vikum verið með þá stefnu að fólk mætti koma með allt að eins lítra plastflöskur á leikina. Nú er búið að hætta við það og senda tölvupóst þess efnis á miðahafa þar sem segir að vatnsflöskur verði ekki leyfðar á leikvöngunum. Í raun verða engar flöskur leyfðar en þetta er til þess að koma í veg fyrir að flöskum sé kastað inn á völlinn. The Athletic segir ljóst að þetta muni valda óánægju þar sem fólk geti ekki lengur fyllt á vatnsflöskur sínar heldur neyðist til þess að kaupa vatn. Á HM félagsliða, þar sem einnig var spilað í Bandaríkjunum, hafi vatnsflöskur kostað 4-6 dollara en ekki sé ljóst hvert verðið verði núna. Coca-Cola hafi lengi verið samstarfsaðili FIFA og selji vatn undir merki Dasani. Óttast er að mikill hiti muni hafa áhrif á HM sem hefst eftir viku, í Mexíkó, Kanda og Bandaríkjunum. Samkvæmt skýrslu Climate Central eru mestar líkur á að hiti hafi áhrif á leik Úrúgvæ og Spánar í Guadalajara 26. júní, eða 70% líkur, og talið að hitinn verði mikill á 97 af 104 leikjum mótsins.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Enski boltinn „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ Fótbolti FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Fótbolti Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal Íslenski boltinn Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Handbolti „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ Sport „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Íslenski boltinn Viktor skoraði í fjórða sigrinum í röð Fótbolti „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ Fótbolti Haukur leiddi endurkomu Löwen Handbolti Fleiri fréttir Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal Neitar að hafa tekið þátt í mannráni „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ „Við náðum einum af þessum stóru í ár“ „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Breiðablik - Afturelding 2-1 | Blikar bikarmeistarar í annað sinn Lagði upp á leið í undanúrslit FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Viktor skoraði í fjórða sigrinum í röð Markasúpa í Noregi Spenntur að sjá rauða hafið í stúkunni Meðvitaðir um pressuna Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“ Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Ólafur skilur Magga en er ekki sammála Róbert Frosti með slitið krossband og á leið í aðgerð Sjáðu markaveislur United og Bayern München Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag United aldrei í vandræðum Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Bakverðir til bjargar Frakkar vilja Infantino burt Tvö íslensk hæfileikabúnt til Molde Sjá meira