Þúsund myndavélar fylgjast með því sem fram fer á flugvellinum Kristján Már Unnarsson skrifar 3. júní 2026 22:40 Hafþór Bjartur Sveinsson er APOC-vaktmaður á Keflavíkurflugvelli. Fyrir aftan má sjá hluta myndavélaskjáinna í samhæfingarstjórnstöð flugvallarins. Egill Aðalsteinsson Sennilega er ekkert svæði á Íslandi eins vel vaktað og Keflavíkurflugvöllur. Um eittþúsund eftirlitsmyndavélar fylgjast með því sem fram fer á flughlöðum og inni í flugstöðinni.
Í kvöldfréttum Sýnar kynnumst við einum anga af margbrotinni starfsemi á vellinum. Við kíkjum bak við luktar dyr í Leifsstöð, inn í bakrými sem kallast APOC, en fjallað var um það í þætti Flugþjóðarinnar um Keflavíkurflugvöll. „APOC stendur fyrir „airport operations center“. Á íslensku væri það samhæfingarstjórnstöð,“ segir Hafþór Bjartur Sveinsson, APOC-vaktmaður á Keflavíkurflugvelli. Úr APOC-samhæfingarstjórnstöðinni í Leifsstöð.Egill Aðalsteinsson „Hérna samhæfum við reksturinn á flugvellinum. Það varðar aðallega úthlutun innviða.“ Eins og því að úthluta stæðum fyrir flugvélar. Í samhæfingarstjórnstöðinni starfa að jafnaði um tuttugu manns á daginn og niður í fimm á nóttunni. Þar fylgjast starfsmenn með miklum fjölda skjáa. Svo viðkvæm þykja öryggismálin að okkur var ekki leyft að mynda suma skjáina. Við leyfum okkur að fullyrða að fáir staðir á Íslandi séu eins vel vaktaðir og flugvöllurinn. Hlutverk APOC er meðal annars að úthluta flugvélum stæðum við flugstöðina.Egill Aðalsteinsson -Er þetta kannski bara heilinn eða hjartað í flugvellinum? „Já, þetta er svolítið svona hjartað í flugvellinum. Við reynum að svona.. að það sé allt miðlægt stýrt héðan. Við samhæfum allt sem þarf að samhæfa,“ segir Hafþór. Þaðan er fylgst með nánast hverju rými í flugstöðinni en einnig því sem fram fer utanhúss. Það þekkja starfsmenn á flughlaðinu. „Það er enginn í eins miklu eftirliti og við. Þetta eru þrjúhundruð og eitthvað myndavélar sem eru að fylgjast með okkur,“ segir Ólafur Guðbergsson, deildarstjóri farþegaaksturs á Keflavíkurflugvelli. Ólafur Guðbergsson er deildarstjóri farþegaaksturs á flughlöðunum.Egill Aðalsteinsson „Allt regluverk á flughlaði er það mikið. Það verða allir að fara eftir því. Þetta gengi ekki upp nema þetta væri svona í föstum skorðum, allt regluverkið,“ segir Ólafur. Eftirlitsmyndavélarnar eru raunar mun fleiri, að sögn Hafþórs. „Án þess að ég viti nákvæma tölu þá ætla ég að skjóta á að þær séu í kringum þúsund, eitthvað svoleiðis.“ Starfsmenn APOC vakta um eittþúsund myndavélar.Egill Aðalsteinsson -Þúsund myndavélar? „Innanhúss og utanhúss, allskonar.“ -Með flugvellinum? „Já.“ -Þetta er nú dálítið flókið að fylgjast með þeim öllum? „Það er ansi flókið. En maður venst því ansi hratt líka,“ segir Hafþór Bjartur Sveinsson hér í sjónvarpsfréttinni: Nýjasta þáttaröðin um Flugþjóðina er sýnd í opinni dagskrá Sýnar þessa dagana, á þriðjudagskvöldum og síðdegis á sunnudögum. Áskrifendur geta séð alla þættina á streymisveitunni Sýn+. Í kynningarstiklu má sjá dæmi um efni þáttanna sjö í þriðju seríu Flugþjóðarinnar:
Keflavíkurflugvöllur Flug Flugþjóðin Öryggi á ferðamannastöðum Tengdar fréttir Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Flugfarþegar sem sjá handfarangur sinn fara í gegnum öryggisskoðun á Keflavíkurflugvelli átta sig fæstir á því að starfsmennirnir sem rýna í innihaldið sitja á allt öðrum stað í flugstöðinni. Sömu starfsmenn skoða einnig hvað leynist í stóru töskunum sem farþegar innrituðu. 23. apríl 2026 14:14 „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt, sérstaklega ef það er myrkur,“ svarar Jón Grétar Herjólfsson, rekstrarstjóri raftæknideildar Keflavíkurflugvallar, og hlær þegar við spyrjum um mikilvægi flugbrautaljósanna í rekstri vallarins. Flugmennirnir treysta á ljósadýrðina til að hitta á réttan stað. 14. apríl 2026 21:54 Smíða tengibyggingu sem verður hjarta Leifsstöðvar Ein stærsta framkvæmd í landinu á næstu árum verður enn frekari stækkun flugstöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli, sem Isavia hyggst hefja á þessu ári. Þetta er smíði 22 milljarða króna tengibyggingar sem verða á hjarta Leifsstöðvar. 10. febrúar 2026 22:33 Óvíða sem flugstarfsemi er jafn stór þáttur í efnahagslífi þjóðar Hjá íslenskum flugfélögum starfa núna um eittþúsund flugmenn og um tvöþúsund flugfreyjur og flugþjónar. Störfin sem tengjast flugrekstri Íslendinga eru þó margfalt fleiri. 26. september 2024 17:17 Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sjá meira
Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Flugfarþegar sem sjá handfarangur sinn fara í gegnum öryggisskoðun á Keflavíkurflugvelli átta sig fæstir á því að starfsmennirnir sem rýna í innihaldið sitja á allt öðrum stað í flugstöðinni. Sömu starfsmenn skoða einnig hvað leynist í stóru töskunum sem farþegar innrituðu. 23. apríl 2026 14:14
„Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt, sérstaklega ef það er myrkur,“ svarar Jón Grétar Herjólfsson, rekstrarstjóri raftæknideildar Keflavíkurflugvallar, og hlær þegar við spyrjum um mikilvægi flugbrautaljósanna í rekstri vallarins. Flugmennirnir treysta á ljósadýrðina til að hitta á réttan stað. 14. apríl 2026 21:54
Smíða tengibyggingu sem verður hjarta Leifsstöðvar Ein stærsta framkvæmd í landinu á næstu árum verður enn frekari stækkun flugstöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli, sem Isavia hyggst hefja á þessu ári. Þetta er smíði 22 milljarða króna tengibyggingar sem verða á hjarta Leifsstöðvar. 10. febrúar 2026 22:33
Óvíða sem flugstarfsemi er jafn stór þáttur í efnahagslífi þjóðar Hjá íslenskum flugfélögum starfa núna um eittþúsund flugmenn og um tvöþúsund flugfreyjur og flugþjónar. Störfin sem tengjast flugrekstri Íslendinga eru þó margfalt fleiri. 26. september 2024 17:17