Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Sindri Sverrisson skrifar 4. júní 2026 08:32 Guðmundur Baldvin Nökkvason sá um að blóðga þorska í túr með afa sínum og föðurbróður, á milli anna með Stjörnuliðinu. Samsett/Vísir/Leó Snær Á meðan að liðsfélagar hans og kollegar úr Bestu deildinni nýta sína örfáu frídaga til að spóka sig um í tískuborginni Mílanó eða lækka forgjöfina, þá fór Guðmundur Baldvin Nökkvason á strandveiðar með afa sínum. „
Maður vildi bara núlstilla sig og eiga samveru með ömmu og afa og skyldmennum. Það gefst ekki mikið tækifæri til þess á sumrin að koma til Eyja,“ segir Guðmundur Baldvin við Vísi. Þessi 22 ára miðjumaður Stjörnunnar, sem valinn var efnilegastur í Bestu deildinni á síðustu leiktíð, hefur notið lífsins í Vestmannaeyjum í fimm daga fríinu sem leikmenn liðsins fengu vegna landsleikjahlésins. Þó að Guðmundur Baldvin sé Garðbæingur er hann ættaður úr Eyjum en þaðan er föðurfjölskylda hans og lék pabbinn, Nökkvi Sveinsson, fótbolta með ÍBV og reyndar einnig eitt sumar með Fram. Guðmundur Baldvin Nökkvason með Svenna afa sínum og Baltasar Hrafni frænda sínum, við bryggjuna í Vestmannaeyjum.Mynd/Leó Snær Guðmundur Baldvin hafði farið á einn túr með Svenna afa sínum, fyrir tveimur árum, og fór svo aftur í fyrradag en þá var föðurbróðir hans, Leó Snær, einnig með í för. „Þeir eru náttúrulega báðir sjóarar þannig að það er smá gæðamunur á þeim og mér en þetta sleppur hjá mér. Við sigldum austur til Víkur í Mýrdal en þetta var nú reyndar versta veiði sumarsins núna þegar ég kom, sem er svolítið leiðinlegt,“ en það skrifast nú varla á nýliðann? „Ja, ég vona ekki. En við fengum allavega fínt veður, það var lítill sem enginn öldugangur. Fyrir mér var það líka stórsigur – það var engin æla,“ segir Guðmundur Baldvin léttur. Guðmundur Baldvin Nökkvason og félagar ætla sér að hala inn stigum hraðar í Bestu deildinni en þeir gerðu í maí.vísir/Diego Stjörnumönnum hefur ekki gengið sem skyldi í Bestu deildinni í sumar en unnu Þór á Akureyri síðasta sunnudag og eru því með 10 stig í 9. sæti, auk þess að vera komnir í 8-liða úrslit Mjólkurbikarsins þar sem þeir mæta Aftureldingu. Það verður fyrsti leikur Guðmundar Baldvins eftir dvölina í Eyjum. „Þetta er góð núllstilling eftir að hafa verið í miklu leikjaálagi og gengið ekkert spes. Þá er fínt að koma hingað og gera eitthvað allt annað og pæla í einhverju allt öðru. Við bræðurnir komum hingað mjög oft þegar ég var yngri en heimsóknirnar hafa verið færri síðustu ár.“ Stjörnumenn hefja aftur æfingar á laugardaginn og mæta svo Aftureldingu næsta miðvikudagskvöld. Eins og fyrr segir nýta liðsfélagar Guðmundar Baldvins fríið með ýmsum hætti en sjálfsagt eru allir jafn staðráðnir í að rétta vel úr kútnum í Bestu deildinni að fríi loknu. Menn voru ánægðir með hvernig kappinn tók sig út á á trillunni: „Ég fékk bara mikla ást þegar ég sendi myndband af mér í liðsgrúppuna. Menn í hópnum eru hér og þar, margir hverjir erlendis, og ég set bara þá kröfu að menn komi ferskir og endurnærðir til baka og ég ætla mér það líka.“
Besta deild karla Stjarnan Mest lesið „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Engin uppalin spilaði með Fram Íslenski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Fleiri fréttir Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Sjá meira