„Greiddi smyglurum verulegar upphæðir til að komast á leiðarenda“ Agnar Már Másson skrifar 2. júní 2026 14:57 „Viðkomandi taldi að endastöð átti að vera Bretland, en endar svo hér,“ segir Ómar Mehmet. Sex erlendar konur voru sakfelldar fyrir skjalafals við landamæri Íslands í síðustu viku. Í einu málinu telur lögreglan sig hafa rökstuddan grun um smygl á fólki, þar sem viðkomandi hafi greitt smyglara háar fjárhæðir til að komast til Bretlands en endað á Íslandi.
Fyrir helgi féllu sex dómar yfir erlendum konum í Héraðsdómi Reykjaness er sneru að skjalafalsi. Upp komst um skjalafalsið við landamærin í Keflavík. Þrjár kvennanna eru víetnamskar og voru sakfelldar fyrir að vísa fram annarra manna vegabréfi er þær komu saman til landsins í desember. Kínversk kona var sömuleiðis sakfelld fyrir að vísa fram grunnfölsuðu dvalarleyfiskorti frá Kanada og tvær íranskar konur voru jafnframt sakfelldar fyrir að vísa fram breytifölsuðu vegabréfi frá Frakklandi. „Ég get staðfest það að í einu af þessum málum virðist vera rökstuddur grunur um að það sé verið að smygla fólki. Viðkomandi greiddi smyglurum verulegar upphæðir til að komast á leiðarenda,“ segir Ómar Mehmet Annisius, aðstoðaryfirlögregluþjónn á Suðurnesjum, í samtali við Vísi. Hann vill ekki gefa upp hvaða mál um ræðir en að viðkomandi hafi borgað smyglurum umtalsverðar fjárhæðir til að komast til öruggs Evrópulands. „Viðkomandi taldi að endastöð ætti að vera Bretland, en endaði svo hér.“ Ómar segir að smygl á fólki sé umfangsmikið verkefni sem allar þjóðir eigi við og að lögreglan á Íslandi stóli mjög mikið á alþjóðasamvinnu í þeim efnum. „Eftir að við ákváðum að efla löggæslueftirlitið höfum við verið að fá fleiri mál í netið,“ segir Ómar. Oft vakni grunur um smygl á fólki. „Við höfum verið að sjá það að það eru að koma mál þar sem einstaklingar virðast ekki vera meðvitaðir um sína ferðaleið og hafa sett traust sitt á herðar einhvers annars,“ segir Ómar. „Það ýtir undir þann grun að það sé verið að smygla fólki.“
Keflavíkurflugvöllur Landamæri Innflytjendamál Smygl Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Fleiri fréttir Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Sjá meira