Verði hægt að sækja um skilnað án þess að gefa upp ástæðu Agnar Már Másson skrifar 2. júní 2026 13:51 Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra hefur birt frumvarpsdrög í samráðsgátt. vísir/ívar fannar Lagt er til í nýjum frumvarpsdrögum að sýslumanni verði alfarið falið að veita leyfi til skilnaðar og horfið frá því að dómstólar leysi úr ágreiningsmálum um skilnað. Þá verði einnig hægt að óska eftir lögskilnaði án þess að tilgreina ástæðu.
Í tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu er greint frá því að sifjalaganefnd hafi skilað dómsmálaráðherra drögum að tveimur lagafrumvörpum; annars vegar að frumvarpi til nýrra hjúskaparlaga og hins vegar að frumvarpi til breytinga á barnalögum. Drögin að nýjum hjúskaparlögum hafa verið birt í samráðsgátt en drög að nýjum barnalögum verða birt seinna að því er fram kemur á vef ráðuneytisins. Breytingarnar sem sifjalaganefnd leggur til snúa meðal annars að því að gera maka kleift að óska lögskilnaðar án þess að tilgreina ástæðu. Um leið verði felldar brott sérstakar lögskilnaðarástæður, svo sem vegna hjúskaparbrots og ofbeldis. Þá segir ráðuneytið að með einfaldari skilnaðarskilyrðum sé lagt til að sýslumanni verði alfarið falið að veita leyfi til skilnaðar og horfið frá því að dómstólar leysi úr ágreiningsmálum um skilnað. Þá eru enn fremur lögð til skýrari ákvæði um fjárskipti milli hjóna. Ein tillagan er sú að almennt sé gert ráð fyrir að maki geti krafist þess að lífeyrisréttindi, sem myndast með greiðslu lágmarksiðgjalds, komi ekki undir fjárskipti vegna skilnaðar en önnur lífeyrisréttindi komi til fjárskipta. Þá eru einnig lagðar til breytingar á ákvæðum um framfærsluskyldu hjóna, skýrari ákvæði um samninga milli hjóna sem og breytingar á hjónavígsluskilyrðum, hjónavígslu og ógildingu hjúskapar. Síðast voru breytingar á hjúskaparlögum samþykktar á Alþingi þann 15. júní 2022 en þá var kveðið á um það í bráðabirgðaákvæði að ákvæði hjúskaparlaga og framkvæmd þeirra skyldu endurskoðuð innan tveggja ára frá samþykkt laganna, að því er fram kemur í tilkynningunni. Umræddar breytingar tóku gildi 1. júlí 2023 en markmið frumvarpsins er var meðal annars að styrkja stöðu þolenda heimilisofbeldis og einfalda skilnaðarferli fyrir hjón sem væru sammála um að enda hjúskap sinn. Í tilkynningu er það rakið að við meðferð þess hjá Alþingi hafi allsherjar- og menntamálanefnd tekið fram í nefndaráliti sínu að þörf væri á heildarendurskoðun á lögum sem lúta að hjúskap til að stuðla að fullnægjandi réttaröryggi fyrir þolendur heimilisofbeldis.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Fjölskyldumál Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik Sjá meira