Erna Sóley Norðurlandameistari og Bryndís eltir Ísold á HM Sindri Sverrisson skrifar 31. maí 2026 13:47 Erna Sóley Gunnarsdóttir keppti á HM í Tókýó síðasta haust. Hún varð Norðurlandameistari í Kaupmannahöfn í dag. Getty/Hannah Peters Ísland eignaðist alls sex verðlaunahafa og þar af einn Norðurlandameistara, á Norðurlandameistaramótinu í frjálsum íþróttum sem fram fór í Kaupmannahöfn nú um helgina. Þá bættist í íslenska hópinn sem fer á HM U20 í Oregon í Bandaríkjunum 5.-9. ágúst.
Ólympíufarinn Erna Sóley Gunnarsdóttir varð Norðurlandameistari í kúluvarpi í dag en hún kastaði lengst 16,62 metra, eða 54 sentímetrum lengra en hin finnska Minttu Laurila sem varð í 2. sæti. Erna átti einnig kast upp á 16,40 metra en Íslandsmet hennar frá því á Akureyri fyrir tveimur árum er 17,91 metrar. Guðrún Karitas Hallgrímsdóttir vann silfur í sleggjukasti en hún kastaði 72,92 metra í fjórðu tilraun. Aðeins hin danska Katrine Koch Jacobsen kastaði lengra eða 74,79 metra. Guðrún setti síðast Íslandsmet í apríl þegar hún kastaði 73,88 metra en þær Elísabet Rut Rúnarsdóttir hafa skipst á að eiga metið á þessu ári. Ólympíufarinn Guðni Valur Guðnason varð í 2. sæti í kringlukasti með 61,20 metra kasti í sjöttu og síðustu tilraun, aðeins 11 sentímetrum á eftir Norðmanninum Ola Stunes Isene sem varð Norðurlandameistari. Sindri Hrafn Guðmundsson varð einnig í 2. sæti í spjótkasti en hann kastaði 75,84 metra, í fyrstu tilraun. Aðeins Finninn Topias Laine kastaði lengra eða 79,89 metra. Íslendingunum gekk sérstaklega vel í kastgreinunum á mótinu og í gær varð Hilmar Örn Jónsson í 2. sæti í sleggjukasti, með kasti upp á 75,10 metra. Ingibjörg Sigurðardóttir komst einnig á verðlaunapall í gær en hún varð þá í 3. sæti í 400 metra grindahlaupi, á 62,16 sekúndum. Bryndís inn á HM U20 og Ísold náði öðru lágmarki Íslendingar stóðu sig einnig vel á European Challenger Championships sem fram fór í Mónakó í gær. Stærstu tíðindin komu í spjótkasti kvenna og 100 metra grindarhlaupi kvenna. Bryndís Embla Einarsdóttir kastaði spjótinu 51,28 metra, bætti sinn besta árangur og hafnaði í 2. sæti, og tryggði sér um leið farseðilinn á HM U20 í Eugene í ágúst. View this post on Instagram A post shared by Bryndís Embla Einarsdóttir (@bryndisemblaeinarsdottir) Ísold Sævarsdóttir átti einnig frábæran dag. Hún hljóp 100 metra grindahlaup á 14,09 sekúndum, bætti sig og hafnaði í 2. sæti. Árangurinn er jafnframt undir lágmarki á HM U20 sem er 14,10 sekúndur en Ísold hafði þegar tryggt sér farseðilinn á mótið í sinni aðalgrein sem er sjöþraut. Ísold keppti einnig í kúluvarpi í Mónakó og varð 4. með 12,26 metra kasti, og í langstökki þar sem hún varð í 5. sæti með 5,80 metra stökki. Garðar Atli Gestsson bætti sinn besta árangur í spjótkasti karla þegar hann kastaði 65,35 metra og hafnaði í 3. sæti. Keppt var með 800 gramma spjóti en til að ná lágmarki á EM U18 þarf Garðar hins vegar að kasta 62,00 metra með 700 gramma spjóti, þannig að árangurinn sýnir að hann er í góðu formi þó hann þurfi enn að ná lágmarkinu við réttar aðstæður. Fleiri Íslendingar náðu í verðlaun á mótinu í Mónakó. María Rún Gunnlaugsdóttir hljóp 100 metra grindahlaup á 14,19 sek, sem er persónulegt met, og varð í 3. sæti. Hún varð einnig 3. í hástökki með 1,66 metra stökki. Christina Alba M. Hafliðadóttir varð svo í 2. sæti í 100 metra hlaupi á 11,91 sekúndum.
Frjálsar íþróttir Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Fleiri fréttir Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Einmana á botninum í hléinu „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Atli Steinn kláraði Stjörnuna Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Tryggvi hafði betur gegn Rubio Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Fyrstur síðan David Robinson var og hét Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjá meira