Samfélag í bleyti framlag Íslands á Feneyjartvíæringnum í arkitektúr Magnús Jochum Pálsson skrifar 29. maí 2026 14:32 Sýningarteymið að baki sýningunni: Marcos Zotes, Kristín Eva Ólafsdóttir, Rán Flygenring, Perla Dís Kristinsdóttir, Hrólfur Karl Cela, Nils Wiberg. Aldís Pálsdóttir Sýningin Samfélag í bleyti hefur verið valin sem framlag Íslands á 20. alþjóðlega Feneyjatvíæringinn í arkitektúr sem fer fram árið 2027. Sýningin setur íslenska baðmenningu fram sem mótvægi við aukinn einmanaleika og sundrung samtímans.
Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs en miðstöðin hefur umsjón með íslenska skálanum fyrir hönd menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins. „Samfélag í bleyti veltir upp spurningum um samfélagslegt hlutverk arkitektúrs og setur íslenska baðmenningu fram sem einstakan vettvang jafnræðis og mótvægi við aukinn einmanaleika og sundrung samtímans,“ segir í tilkynningunni. Sýningarstjóri er Marcos Zotes, einn eigenda Basalt arkitekta, og með honum í teymi eru arkitektarnir Hrólfur Karl Cela og Perla Dís Kristinsdóttir, hönnuðirnir Kristín Eva Ólafsdóttir og Nils Wiberg frá Gagarín, auk Ránar Flygenring, mynd- og rithöfundar. „Á tímum aukinnar félagslegrar einangrunar hefur sjaldan verið meiri þörf fyrir rými sem styðja við samveru og mannleg tengsl. Samfélag í bleyti byggir á séríslenskri baðmenningu og skoðar hvernig sundlaugar og baðstaðir hafa þróast í mikilvæga félagslega innviði þar sem fólk mætist á jafnræðisgrundvelli, óháð aldri, stöðu eða uppruna,“ segir um sýninguna. Menningin sem skapist í vatninu verði vettvangur fyrir óformleg samskipti og samfélagslega samheldni. Sýningin kortleggur hversdagslegar venjur íslenskrar baðmenningar og kannar hvernig þessi sameiginlega reynsla af vatni getur styrkt tengsl milli fólks.
Feneyjatvíæringurinn Tíska og hönnun Sundlaugar og baðlón Sund Mest lesið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira