Verður einn sá dýrasti í sögu KR Valur Páll Eiríksson skrifar 29. maí 2026 09:30 Fannar Heimisson samdi við KR í vetur en fer til Nordsjælland á næsta ári. Hann verður á meðal dýrari leikmanna í sögu KR. Mynd/KR Nordsjælland mun festa kaup á framherjanum unga Fannari Heimissyni frá KR næsta sumar. Um verður að ræða eina stærstu sölu í sögu KR.
Tipsbladet í Danmörku greinir frá skiptunum. Samkvæmt heimildum Vísis mun Fannar gangast undir læknisskoðun í dag og skiptin að líkindum staðfest fyrir dagslok. Fannar er fæddur árið 2011 og er því aðeins 15 ára gamall en hann mun ganga til liðs við Nordsjælland næsta sumar, þegar hann verður orðinn 16 ára. Tipsbladet greinir frá því að Nordsjælland muni greiða KR hærri fjárhæð en félagið hefur nokkurn tíma fengið áður fyrir unga manninn. Heimildir Vísis herma að það sé ekki fjarri lagi. Fannar hefur aðeins verið leikmaður KR í örfáa mánuði en hann gekk í raðir félagsins frá Stjörnunni í vetur eftir ársdvöl í Garðabæ. Áður var hann hjá Þór á Akureyri, hvar hann er uppalinn. Hann hefur verið fastamaður í yngri landsliðum U15 og U16 síðustu misseri. Fannar leikur sem sóknarþenkjandi leikmaður, ýmist framherji eða kantmaður. Hann er bróðir Birkis Heimissonar, leikmanns Vals. Fannar á enn eftir að spila deildarleik fyrir KR en sat á varamannabekknum í 2-2 jafntefli við Fram í Bestu deild karla fyrr í mánuðinum. Fannar verður annar leikmaðurinn til að fara frá KR til Nordsjælland á einu ári en Alexander Rafn Pálmason, sem hefur stimplað sig rækilega inn í Vesturbænum þrátt fyrir ungan aldur, heldur til danska liðsins þann 1. júlí næstkomandi.
KR Besta deild karla Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti „Lið sem enginn vill mæta núna“ Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira